Tíminn - 06.08.1978, Side 18
18
Rætt við Kristmann
Guðmundsson
rithöfund i tilefni
af þvi að AB hefur
gefið út skáldverk
hans I átta bindum
og nýjum þýðingum
Sunnudagur 6. ágúst 1978
„Tóm della, að
fjalli ekki
um annaö
Þýöendur hafa eflaust gert sitt
bezta, en þaö þurfti meira til.
Það tók mig fimm ár að læra is-
lenzkuna eins vel og norskuna
og fimm ár var ég að þýða verk-
in. Ennþá er ég að fara yfir
bækur, sem eiga eftir að koma
út seinna, og lagfæri svona smá-
villur, sem upp á koma. Ég hef
t.d. nýlokið við þýðingu bókar-
innar „Jarðarbörn”, Jordens
barr..”
Kristmann kvaðst vera með
nýja bók i. smiðum, og segði sú
frá gömlum manni, sem kæmi
að æskustöðvum sinum i eyði.
„Hvort þar sé ást á ferðinni?
Já, mér þætti gaman að sjá þá
skáldsögu, sem sniðgengi ást-
ina. Astin hefur stóra þýðingu i
lifinu og fram hjá þvi verður
ekki gengið. En það er tóm
della, að segja að bækur min-
ar séu eintómar ástarbækur
eins og sumir, — sem e^ert
þekkja til, vilja vera láta.”
Það hefur vakiö nokkra at-
hygli, að Kristmann á 6 dætur
og hálf öld er milli þeirrar elstu
og þeirrar yngstu. „Ég er ekki
ástfanginn i bili, en það gæti
dottið yfir mig, hvenær sem er”.
Vildu heldur
Gudmundsson en
Inga Vitalin
„Já, það er rétt. Ég skrifaði
eina bók undir dulnefninu Ingi
Vitalín. Það var visindaskáld-
skapur, „Ferðin til stjarn
anna”, og seldist sú bók afar vel
eins og aðrar slíkar, sem ég
gerði meira mér til afþreyingar.
Ég var lengi vel að hugsa um að
taka Vitalin upp sem rit-
höfundarnafn, en Norðmennirn-
ir vildu ekki breyta Gudmunds-
sonar nafninu. Það minnti þá á
Þelamerkurmanninn Gudmund
Thorsen Storebingen eða Guð-
mund frá Stóra-Haug, sem var
striðsmaður og mikil hetja
heima i héraði.”
Kristmann hefur ekki áhyggj-
ur af dauðanum. Hann sé eins
og hver annar svefn.
„Skrokkurinn lognast út af og
við tekur likami, sem við förum
i hinum megin”. Hér á árum
áður stundaði Kristmann hug-
leiðslu og las dulræn fræði og
þykist hafa fengið sönnun fyrir
þvi, að menn taki annan likama
eftir dauðann. Hann staðhæfir
tilvist huldufólks, lék sér enda
við litil huldubörn allt fram til 10
ára aldurs, er þau hurfu honum
skyndilega. „Amma min Var
aftur á móti skyggn alla ævi.”
Kristmann hefur staðið af sér
alla storma i lifinu og er
nú mjög hamingjusamur mað-
ur. Skáldsögurnar i ritsafn-
inu, sem nú er komiö út, eru
Brúðarkyrtillinn (1927), Morg-
unn lifsins, en þá bók kvik-
mynduðu Þjóðverjar árið 1953,
Arfur kynslóðanna, Armann og
Vildis, Ströndin blá, ein
fegursta frásögn af unglingaást,
sem um getur, Fjallið helga,
Góugróöur, Nátttröllið glottir,
Gyðjan og nautið, sú bók var
bönnuð i Þýzkalandi Hitlers ,
Þokan rauða og áttunda bindið
inniheldur 51 smásögu, sem
ritaðareruá ýmsum timum rit-
höfundarferils Kristmanns, en 8
smásögur eru i fyrsta bindinu.
I fyrsta bindinu ritar Sigurður
Einarsson frá Holti grein um
höfundinn. Eirikur Hreinn
Finnbogason cand. mag. útbjó
bækurnar til prentunar.
bækur
mínar
en ást”
FI — Þegar bezt lét hér áöur
vann ég 10 tima á dag við skrift-
ir. Nú vinn ég svona þrjá til
fjóra tima og finnst það alveg
nóg. Starfsþrekið er farið að
gefa sig, þú skilur, sagði Krist-
mann Guðmundsson rithöfund-
ur, þegar við ræddum við hann,
þar sem hann býr að Hrafnistu i
Hafnarfirði.en Kristmann er nú
76 ára gamall. Nýlega gaf Al-
menna bókafélagið út skáldverk
Kristmann Guðmundsson: „Ég er ekki ástfanginn i bili, en sllkt
gæti dottið yfir mig hvenær sem er.”
Timamynd: Tryggvi
eftir hann i átta bindum, alls 10
skáldsögur og 59 smásögur.
Skáldsögurnar eru ritaðar á 25
ára timabili, frá 1925-1950, og
eru 8 þeirra frumritaðar á
norsku og tvær á islenzku.
„Þýðendur gerðu
sitt bezta, en. ..”
„Ég var ekki ánægður með
þýðingarnar eins og þær voru.
kaupfélag Borgfirðinga
BORGARNESI
Esso-nesti — Borgarnesi
Ferðamenn!
Kaupfélag Borgfirðinga rekur Esso-nesti i Borg-
arnesi:
Heitir smáréttir, mjólk, brauð, álegg, gosdrykk-
ir, sælgæti o.fl.
Ennfremur hjólbarðaþjónusta og smurstöð.
Verzlanir: Hellissandi, Ólafsvík og Akranesi
Veitingahús að Vegamótum
Snæfellsnesi:
Grillþjónusta, kökur, gosdrykkir, sælgæti.
Bensin, oliur og gasáfyllingar.
Veiðileyfi i Hraunsfjarðarvatni, Selvallavatni og
Baulárvallavatni.