Tíminn - 06.08.1978, Side 24
24
Sunnudagur 6. ágúst 1978
pórunn: var u«
Ragnheiður: Var elcirí i
nS' að romsa Ut lir sér innihaldinu.
Dagskrá á
skátamótum
Skátamót eru yfirleitt yfir helgi
byrja að kveldi föstudags og
standa fram á sunnudag. ‘
Föstudagur fer aðallega i að
koma sér vel fyrir og koma upp
tjaldbúðum. Laugardagurinn er
svo vel nýttur i dagskrá, göngu-
ferð, flokkakeppni og iþrótta-
keppni og fl. Allir elda sjálfir sinn
mat, og um kvöldið er varðeldur,
þar sem hvert félag kemur með
skemmtiatriði og sungnir eru
skátasöngvar. A sunnudaginn er
dagskrá framhaldiö og mótinu er
svo slitið og gengið er vel frá
mótssvæðinu eins og komið var
að þvi og helst betur.
Tilgangurinn með dagskránni á
skátamótum er að sjálfsögðu að
eitthvað sé við að vera fyrir sem
flesta. Gefa skátunum kost á að
bjarga sér úti i náttúrunni. A
skátamótum reynir á þekkingu og
hæfni skátans, ef hann á að geta
látið sér liða vel i tjaldbúðinni i
misjöfnum veðrum og göngu-
ferðum. Eða með öðrum orðum
,,að gera skátann hæfari tíl að
bjarga sér við erfiðar og ókunnar
aðstæður.
Flokkur
mótsins
A all-flestum skátamótum fer
fram svokölluð flokkakeppni. Þá
fá flokkarnir verkeíni sem einatt
krefjast kunnáttu i skátafræðum,
og leysa ýmsar þrautir. A af-
mælismóti Landnema 1978 var
þessari venju i engu breytt, nema
hvað keppnin var þriskipt. 1
fyrsta lagi var tekið tillit til um-
gengni um tjaldbúð, i öðru lagi
var 6 tima markferð (hike) sem
farin var á laugardegi og i þriðja
lagi var póstaleikur þar sem
ýmsar þrautir voru leystar á
sunnudegi. Við munum þó ekki
eyða miklu púðri á póstaleikinn,
þar sem þessi pistill er að mestu
saminn meðan á honum stendur,
en eyðum þess meiru i markferð-
ina.
Bestum árangri i markferðinni
náðu Uglur sem eru i Garðbúum i
Reykjavik. Flokkurinn telur 9
manns með flokksforingja sem
heitir Kristin Þorgrimsdóttir.
Uglurnar höfðu þegar hér var
komið staðið sig best allra flokka
á mótinu. Þær fengu 10, 10 og 8
þegar tjaldbúðir voru skoðaðar,
en þar var hæst hægt að fá 10 og i
markferðinni fékk flokkurinn 93
stíg af 100 mögulegum og var 20
stígum hærri en næstu flokkar
tveir, sem voru Ur Ægisbúum og
Garðbúum og fengu báðir 73 stig.
Við tókum Uglurnar tali i
miðjum póstaleiknum eða réttara
sagt þegar flokkurinn kom á
þrautapóstínn og fer viðtalið hér
á eftir:
„Það er
skemmtilegt
að geta
klárað allt”
— Hvernig undirbjugguð þið
ykkur fyrir þessa markferð?
— Við fengum lista yfir útbúnað
hjá Landnemunum og tókum allt
til. Og svo höfum við haldið við
kunnáttu okkar i skátaferðum í
vetur. Það er skemmtilegt að
klára allt. Leiöinlegt er að þurfa
að sleppa einhverju vegna
kunnáttuleysis.
— Hvað var gert i markferð-
inni?
— Við fengum urmul af verk-
efnum sem við áttum að leysa og
skila svo úrlausnum, t.d. áttum
við að safna 3 mismunandi jurt-
um og 3 tegundum af skordýrum
og vita nöfn á þeim. Einnig út-
bjuggum við 2 jarðvegssýni og
fundum 3 mismunandi steinteg-
undir. Við mældum breidd, dýpt
og straumhraða árinnar hjá
mótsstaðnum og fundum rennslið
i m3/klst. Svo spurðum við mann
sem við hittum á leiðinni að nafni,
heimilsfangi og starfi.
Eina sameiginlega máltið
áttum við að elda úti á viðar-
kolum og gerðum svo kort af eld
unarsvæðinu. lOörnefniáttum við
aðskrifa niður og finna fjarlægð i
gráðum frá uppgefnum punktum
A og B, hæð háspennulinu fundum
við og ekki má gléyma þvi að alla
leiðina gengum við eftir áttavita.
Að lokum áttum við að segja álit
okkar á markferðum i útilegum
og hvort okkur hefði fundist
gaman i markferðinni.
— Og fannst ykkur gaman?
— Já, það var bæði gaman og
fræðandi.
— Svona að lokum, af hverju
eruð þið i skátafélagi?
— Ja, til að vera i góðum fé-
lagsskap, kynnast fólki. Það er
mikið um útilif og starfið er upp-
byggjandi.
Við þökkum Uglunum kærlega
fyrir spjallið.
Úa, Svava og Hildigunnur: Alvanar útilegum.
• Tindur úr Skátafélaginu Fifli með bakpokann sinn, eða réttara sagt
bakpokinn með Tind. «,