Tíminn - 06.08.1978, Side 26
26
Sunnudagur 6. ágúst 1978
Nútíminn ★ ★ ★
Sólarupprás við „Sjávarmál”
— Sea Level ný hljómsveit byggð
á rústum Allman Brothers Band
Fyrir nokkrum árum var bandaríska hljómsveitin Allman Brothers Band ein-
hver alvinsælasta hljómsveit heims. Stofnendur hennar voru bræðurnir Greqg og
Duane Allman/ sem hafði m.a. verið í Derek and The Dominos.
Allman Brothers Band náði á skömmum tíma miklum vinsældum, en eftir dauða
Duaneog bassaleikara hljómsveitarinnar Bery Oakley, sem létust með árs milli-
bili i umferðaróhöppum, sem bæði áttu sér stað á svipuðum stað, þá fór að halla
undan fæti.
Þrátt fyrir að frábærir hljóm-
listarmenn eins og Dickey Betts
og Chuck Leavell gengju til liðs
við hljómsveitina, leystist
hljómsveitin upp skömmu eftir
útkomu hljómplötunnar „Win,
Loose or Draw” , sem margir
töldu algjörlega mishcppnaða.
Eftir upplausn Allman Brothers
Band fór Gregg Allinan að sinna
sólóferli sínum og álpast um
með söngkonunni Cher, en þetta
hvoru tveggja hefur sýnt sig að
hcl'ur mistekist. Aðrir meðlimir
Allman Brothers hafa haft hægt
um sig en þó var sagt frá i Nú-
timanum um daginn frá hljóm-
sveit Dickey Belts, og nú hefur
Chuck Leavell, liinn frábæri pi-
anóleikari Alimann Brothers,
svo og Jai Johanny Johanson
(Jaimo) fyrrum trommuleikari
Allman Bros. og Lamar Willi-
ams fyrrum bassaleikari sömu
hljómsveitar ásamt fjórum öðr-
um slofuað hljómsveitina SEA
LEVEL og voru þeir félagar á
ferðalagi um Bretlandseyjar i
lok siðasta mánaðar þar sem
þeir léku á nokkrum hljómleik-
um. Þeim lil aðstoðar var
bandariski „Southern-boogie
jazz rock kvintettinn” Dixie
Dregs en báðar hafa þessar
hljómsveitir nýverið sent frá
sér hljómplölur undir merkjum
Capricorn hljómplötufyrirtæk-
isins og heita þær „Cats on the
Coats" — Sea Level og Free
Fall — Dixie Dregs. Ekki þarf
að draga i efa, að ef SEA
LEVEL kemsl með „tærnar”
Chuck Leavell
þar sem Allman Brothers voru
með „hælana” þá er þar um
hljómsveit á heimsmælikvarða
að ræða og þvi ætti það að vera
óhætl fyrir Allman Brothers
unnendur að taka vasaklútana
frá grátbólgnum hvörmum sin-
um, þvi að bráðum kemur betri
tið með blóm i haga.
Þess má geta að siðustu
fregnir herma að Jaimo tromm-
ari Sea Level þjáist nú af
meiðsium i baki sem hann hiaut
fyrir skömmu og af þeim ástæð-
um bafi hann lagt kjuðana á
hilluna um nokkurn tima, en i
hans stað kom Joe English,
fyrrum trommari Wings (hætti I
fyrra eftir tveggja ára vist), og
mun liann leika með Sea Level
þangað til Jaimo hefur náð sér
að fullu. —ESE.
Ný plötuhreinsun
Þeim sein annt er um
plöturnar sinar ætti að vcra það
fagnaðarefni að nú er komið á
markað erlendis efni sem gerir
alla hreinsun á hljómplötum
muu auðveldari en áður.
Það er fyrirtækið Disco Film
Gmbll i Vestur Berlin sem
framleitt liefur þetta efni sem
talið er inuni hafa gjörbyltingu
í för með sér i þessum efnum. i
stuttu máli sagt þá verkar hið
nýja efni sein er í sprautubrús-
um, á eftirfarandi hátt: Spraut-
aðer á hljómplötuna úr brúsan-
um og við það myndast þunnt
fljótandi lag á yfirborði hennar,
sem harðnar eftir ca. 90 mínút-
ur. Efnið sem fellur vel ofan i
allar raufar plötunnar er gætt
þeim eiginleika, að öll rykkorn
sem á plötunni eru, limast við
það. Eftir nokkurn tima getur
viðkomandi plötuhreinsunar-
maður fengið sér smá limband
sein hann limir yfir yfirborð
plötunnar, og um leið og lim-
bandið er fjarlægt fylgir „húð-
in" með og öll öhreinindi eru á
bak og burt og platan betri en
ný-
Af frainleiðandans liálfu er
talið að liver brúsi dugi til þess
að húða uin 70 plötur og verðið
er um tæpar 8000 islenskar, en
þess ber að geta að efni þetta
fæst ekki enn hérlendis.
Heimild Newsweek
ELP eru ekki
dauðir úr öllum æðum
Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylg-
ist með fréttum úr popp heiminum, að það hefur
verið meira en litið hljótt um hljómsveitina Emer-
son Lake & Palmer undanfarin ár, en þrátt fyrir
það eiga þeir sér stóran hóp aðdáenda sem bundið
hefur mikla tryggð við hljómsveitina, sem einu
sinni var nefnd besta hljómsveit heims og var það;
að dómi flestra sem vit höfðu á, sannmæli.
Nú virðist sem svo að hreyf-
ing sé að komast á ELP á nýjan
leik, þvi að lýst hefur verið yfir
að hljómsveitin sé nú i Nassau á
Bahamaeyjum, þar sem þeir
vinna að upptökum á nýrri
hljómplötu og mun sú koma út i
endaðan nóvembermánuð n.k.,
eða i byrjun desember. Þá hafa
ELP lýst þvi yfir að vilji sé fyrir
hendi að halda hljómleika i
Bretlandi um leið og platan
kemur út, en á siðasta ári féliu
niður ráðgerðir hljómleikar
þeirra i Bretlandi og viðar.
þannig að nú er tækifæri til þess
að bæta fyrir það, ef úr þessum
hljómleikum i Bretlandi verður
þá eru einkum þrir staðir sem
til greina koma, þ.e. Olympia,
Wembley Arena eða Earls
Court, þar sem Bob Dylan hélt
sina velheppnuðu hljómleika á
dögunum.
Ekki er að efa að ELP unn-
endur bjóða þá Keith Emerson,
Greg Lake og Carl Palmer vel-
komna i slaginn eftir langa fjar-
veru.
—ese
Keith Emerson — tilhúinn I slaginn
Sham 69 Bannaðir í USA
Iiljómsveitinni Sham
(ií) sem er ein af þekkt-
ustu hljómsveitum
Breta i dag hefur verið
meinað að leika i
Bandarikjunum.
Astæðan? — Jú það kom á
daginn að Jimmy Pursey höfuð-
paur Sham 69 var á sakaskrá i
Bretlandi, hafði hann meðal
annars til saka unnið að neita að
koma með á stöðina eftir að
hann hafði brotið allt og braml-
aö i Vortex klúbbnum i London.
Pursey segist sjálfur kæra sig
kollóttan um hvort hann fái að
fara til Bandarikjanna eða ekki,
hann hafi nóg að gera annars
staðar, og ef þeir vilji hann og
Sham 69 ekki þá sé það verst
fyrir þá sjálfa.
Já, ólikt hafast þeir að. A öðr-
um staðnum hleypa þeir ekki
vandræðagemlingunum út og á
hirum staðnum ekki inn. Þetta
hljóta að vera ósættanlegar
andstæður.
—ESE
Jimmy Pursey
FLEETW00D MAC - með nýja plötu
Hljómsveitin Fleetwood Mac sem ætlaði allt úr skorðum að færa á dögunum þeg-
ar síðasta hljómplata þeirra „Rumors" kom út, lætur ekki deigan síga, heldur eru
upptökur hafnar á nýrri plötu sem koma mun út í haust. í upphafi var fyrirhugað
að þessi hljómplata yrði tvöföld í roðinu og yrði önnur platan tekin upp á hljómleík-
um og hin í hljómveri, en nú mun hafa verið horfið frá þeirri hugmynd og árangur-
inn er ein hljómplata hljóðrituð í hljómveri.
Fleetwood Mac eru annars iðnir við kolann þessa dagana því að nú eru þeir að
Ijúka við þriggja vikna Bandaríkjaferð og fleira var í deiglunni, m.a. var búið að
ákveða að Mac léku fyrir „félaga Brésnjef" á Rauða torginu í Moskvu, ásamt
Joan Baez og Santana á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna 4. júli, en af einhverjum
ástæðum var horf ið frá þessu hljómleikahaldi og því sátu Sovétborgarar eftir með
sárt enniö.