Tíminn - 06.08.1978, Qupperneq 27
Sunnudagur 6. ágúst 1978
27
Devo-dagur
Bandaríska „furðu-
fuglahljómsveitin" Devo,
sem hefur að innihalda
einkaskjólstæðinga
þeirra David Bowie og
Brian Eno, hefur gert
það gott að undanförnu í
Bretlandi þvert ofan í aII-
ar hrakspár, og sérstak-
lega hefur framkoma
Devovakið mikla athygli,
en tóniist þeirra hefur
hingað til legið á milli
hluta. /
Devo hafa hingað til ekki
hljóðritað stóra hljómplötu, en
þess i stað einbeitt sér að þeim
smærri, en nú er eftir öllum
sólarmerkjum að dæma von á
þvi að þeir snúi við blaðinu, þvi
að Virgin hljómplötufyrirtækið
hefur tilkynnt að þann 25. ágúst
komi stór Devo plata út og hefur
dagurinn af þessu tilefni verið
skirður D-dagur (D-day), sem
þýða mun innrásardagur eftir
bestu heimildum frá heims-
styrjöldinni siðari að dæma.
Varðandi útgáfu þessarar
Devo plötu þá var bryddað upp
á þvi að gefa hana út i eins kon-
ar tónalitum, þ.e. hægt verður
að fá 5 mismunandi liti, stálgrá-
an, hvitan, bláan, gulan og
rauðan, allt eftir smekk hvers
og eins, og lýsir þetta Devo vel,
þvi að ekki geta þeir hagað sér
eins og (aðrir) siðaðir hljóm-
listarmenn. þá munu fyrstu 25
þusund eintökin verða pressuð i
„iðnaðargrátt vinyl”. En ekki
nægir þetta „Jómfrúar hljóm-
plötum” og Devo, þvi að sam-
timis verður markaðurinn
mettaður með Devo — merkj-
um, — bolum og öðru sliku
auglýsingafóðri, og varðandi
Devo sjálfa, þá munu þeir
leggja land undir fót og halda i
Evrópuferð til þess að útbreiða
afkárahátt sinn enn frekar.
—ESE
Atlanta Rythm Section
— Champagne Jam
Polydor 2391 319
Það sem rytma sveit Atlantaborgar býður mönn-
um uppá á „Champagne Jam”, er einkar þægileg
afslöppunartónlist, sem krefst nær einskis af
hlýðandanum, sem rétt eins gæti verið sofandi.
Eins og kemur fram i nafni hljómsveitarinnar, þá
er hún ættuð frá Atlanta i Georgia riki i Bandarikj-
unum, eins og Allman Brothers Band, Marshall
Tucker Band og bræðurnir Johnny og Edgar Wint-
er. Tónlist Atlanta Rythm Section dregur að sjáif-
'sögðu dám af þessu, en nokkuð vantar þó á að hún
nái sama „standard” og t.a.m. Allman Brothers.
Það sem er athyglisvert við Atianta Rythm Section
er það i fyrsta lagi, að þeir njóta töluverðra vin-
sælda i Bretiandi, þar sem að þeir vinna stöðugt á.
Á plötunni „Champagne Jam” ber mest á sam-
nefndu titillagi sem komist hefur hátt á vinsældb-
lista. Annars eru öil lögin keimlik og einstaklega
þægileg áheyrnar, en fyrir þá sem vilja eitthvað
spennandi er A.R.S. ekki svarið.
— ESE
★
★ ★ +
The Moody Blues
Octave
PS707/Fálkinn
Octave, fyrsta plata the Moody Blues eftir að þeir
tóku saman að nýju, er áfellislaus og mjög áheyri-
leg plata þó að hún i sjálfu sér bæti litlu við fyrri
feril hljómsveitarinnar. Tónlist þeirra félaga I
Moody Blues er að venju auðmeltanleg og mjög
þægileg og eins og samin fyrir þá sem viija láta
plötuna veltast áfram með Ijúfum og jöfnum
rythma þó þannig að tónlistin geri ekki allt of
miklar kröfur. Þetta er alls ekki sagt sem hnjóðs-
yrði um Octave, aðeins er verið að benda á að tón-
list Moody Blues er ekki lengur, hafi hún þá ein-
hvern tima verið frumleg . Hún er hins vegar mjög
vönduð á slna visu og notkun Moody Blues á ýmsum
„orkestral” hjóðfærum á köflum mjög skemmtileg.
„Octave” er kjörin plata fyrir alla þá sem vantar
rólegaog ljúfa tónlist sem þó er að mestu laus við
væmni. Hún er góð plata sem sllk.
KEJ
Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar
óskar eftir að ráða tvo framkvæmda-
stjóra.
Annan til að annast rekstur fiskiðjuvers
og togara, hinn til að annast fjármál og
skrifstofustjórn.
Umsóknir skulu sendar fyrir 15. ágúst til
útgerðarráðs, pósthólf 120, Hafnarfirði.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KÓPAVOGSHÆLI
STARFSFÓLK óskast til sumaraf-
leysinga og einnig til áframhaldandi
starfa. Upplýsingar veitir forstöðu-
maður i sima 41500 og tekur hann
jafnframt við umsóknum.
Reykjavik, 6. ágúst 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000.
Húsvarðarstaða — Hlégarður
Húsvarðarstaða, Hlégarði, Mosfellssveit
er laus nú þegar.
Ibúð 3 herbergi, eldhús, ekki er talið æski-
legt að umsækjendur hafi á framfæri sinu
börn innan 10 ára aldurs.
Umsóknir sendist sveitarstjóra Mosfells-
hrepps, Hlégarði fyrir 10. ágúst n.k.
Húsnefnd.
Httfl
Bókasafnsfræðingur
Bókasafn Borgarspitalans óskar að ráða
bókasafnsfræðing i hálft starf, frá 1. sept.
n.k.
Nánari upplýsingar gefur yfirbókasafns-
vörður.
Reykjavik, 4. ágúst 1978,
Borgarspitalinn.
Bújörð —
íbúð í Reykjavík
Höfum mjög góðan kaupanda að litilli bú-
jörð.
Vill skipta á góðri ibúð i Reykjavik. Jörðin
þarf að vera fremur nálægt Reykjavik.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
Austurstræti 6,
slmi 1-69-33.
[aðurinn