Tíminn - 06.08.1978, Side 29
Sunnudagur 6. ágdst 1978
29
Við hringveginn
Vopnafjaröar-
þáttur
A Vopnafirði eru nú 867 íbúar i
hreppnum öllum og fjöigar stöð-
ugt. Þar er nú unnið að bygg-
ingu heilsugæslustöðvar sem
fyrirhugað er að taka' i notkun
1979. Þá er hreppurinn að hefja
byggingu fjölbýlishúss með 6
ibúðum, en þar sem viðar hefur
staðið á fyrirgreiðslu Húsnæðis-
málastofnunar og voru teikn-
ingar loks að koma um miðjan
júli, en hefðu að sjálfsögðu þurft
að vera tilbúnar i siðasta lagi i
april. Þessi saga er þekkt i fleiri
sveitarfélögum og virðist sem
Húsnæðismálastofnun vinni
skipulega að þvi að seinka
byggingarframkvæmdum
vegna skorts á fjármagni.
Mönnum ber þó saman um að
ekki sé við starfsmenn stofn-
unarinnar að sakast, þetta sé
skipulagt „ofanfrá”.
Hreppurinn er i sumar að
ljúka malbikun aðalgötunnar að
þeim mörkum, sem vegagerð
rikisins tekur við. Eru þetta um
500 metrar.
tbúðarhúsabyggingar einstak-
linga eru alltaf nokkrar en auk
þess er Samvinnubankinn að
reisa hús yfir útibú sitt á staðn-
um.
Þó nokkrir dekkbátar og trill-
ur eru gerðir út frá Vopnafirði
og aflast allvel. Nokkuð er um
aðkomutrillur.
1 júni landaði ein trillan með
þrem á, 39,6 tonnum af fiski og
miðað við 100 kr. á kiló, sem er
nálægt meðalverði, þá hafa
þessir þrir menn aflað fyrir nær
4 millj. kr. á einum mánuði.
Brettingur, skuttogari Vopn-
firðinga, landaði fyrstu 6 mán.
ársins alls 1410 tonnum, og
sveitarstjórinn Kristján
Magnússon skrapp á skak hluta
sunnudags og mánudags og
landaði einn 650 kg af þorski um
hádegi á mánudag.
K.Sn.
Unnið er að lagfæringu á samkomuhúsinu á Vopnafirði. Við störf þar hittum við tvo áhugasama
knattspyrnumenn.
Einherji, félag þeirra keppir nú í þriðju deild og hefur unnið alla leiki sina til þessa i sumar, nema
leik við Akurnesinga sem Vopnfirðingar töpuðu.
Einherjamenn sjást hér við vinnu sina á vinnupöllunum við samkomuhúsið. Þeir eru: Hafsteinn
Sveinsson til vinstri og Aðalbjörn Björnsson til hægri, en hann er formaður félagsins.
Fjölskyldudagar
í Vindáshlíð
Nokkrar umræður hafa veriö
hér á landi aö undanförnu um
fjölskylduna, stööu hennar og
hlutverk i samfélaginu.
Dagana 26. — 30. júli sl. komu
saman nokkrar fjölskyldur i
sumarbúðunum i Vindáshliö t
Kjós, til þess aö ræða þessi mál og
eiga ánægjulegar samverustund-
ir.
Ahersla var lögð á að ræöa fjöl-
skylduna sem einingu og á hvern
hátt unnt væri aö byggja sem
traustastan grundvöll hennar á
kristinni trú.
1 þvi sambandi fóru fram mikl-
ar umræöur um bænina og bæna-
lif, en sr. Karl Sigurbjörnsson
sóknarprestur i Hallgrimskirkju i
Reykjavik, flutti inngang aö um-
ræðum þessum og annaðist stjórn
þeirra. Einnig var höfö sérstök
fjölskylduguösþjónusta á sunnu-
deginum, sem sr. Þorvaldur Karl
Helgason, æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar, annaðist.
Þátttakendur voru á einu máli
um, að bænin væri ákveðið svar
kristinnar kirkju við hvers konar
þrýstingi og utanaðkomandi
spennu, sem fjölskyldan verður
nú fyrir i æ rikara mæli, og á svo
margan hátt.
Dagskrá þessara daga var að
öðru leyti sniðin fyrir alla fjöl-
skylduna bæði yngri og eldri, en
alls tóku þátt i þessari samveru
rúmlega 50 manns.
£3EcSGJ|jj
Ritstjóm. skrifstofá og afgreiðsla
ÁNING
VIÐ HRINGVEGINN
býður ferðafólk velkomið til
Vestur-Skaftafellssýslu og veitir því þjónustu:
i Vikurskála, er selur flestar vörur fyrir
ferðafólk, svo sem:
Matvörur — Ferðavörur — Sportvörur —
Ljósmyndavörur — Tóbak — Benzin, oliur
o.m.fl. Góð hreinlætisaðstaða.
í almennri sölubúð i Vik, allar algengar
neyzluvörur.
i Hóteli (opið allt árið).
i bifreiðaverkstæði er annast almennar
viðgerðir.
í smurstöð og hjólbarðaviðgerð.
í Esso, Shell og BP-þjónustu.
Á Kirkjubæjarklaustri:
í Skaftárskála, sem býður upp á flestar
vörur er ferðafólk þarfnast.
í almennri sölubúð, allar algengar neyzlu-
vörur og Esso, Sheli og BP-þjónustu.
Verið velkomin á félagssvæði okkar!
Kaupfélag Skaftfellinga
Vik og Kirkjubæjarklaustri