Tíminn - 06.08.1978, Page 31
Sunnudagur 6. ágúst 1978
31
, .ÖFUGUR
ALDURSMUNUR’ ’
Það hefur sífellt færst
í aukana, að ungir
menn kvænist sér eldri
konum. Sumir hafa
verið með vangaveltur
yfir þessari þróun og
nýlega birtust í ensku
blaði nokkrar brúðar-
myndir, þar sem
brúðurin var í það
minnsta 10 árum eldri
en brúðguminn. í sam-
bandi við þessar
myndir var sagt, að,
konur nú til dags beri
aldurinn betur en fyrri
tíma konur (og hafi
líka betri hjálparmeðul
til þsss!)
Fyrst sjáum við
mynd af Sybil Burton
(fyrrverandi eigin-
konu Richard Burton)
og manni hennar Jor-
dan Christopher. Þeg-
ar þau giftu sig var
hún 36 ára en hann 24.
Jordan segist þó vera
„sá sterkari" í hjóna-
bandinu. Kannski er ég
alltaf að reyna að
sanna, að ég sé
þroskaður maður, og
standi henni ekki að
baki?
Merle Oberon er gift
Robert Wolders, en
hann lék hér áður í kú-
rekamyndum og er 40
ára. Merle er alþekkt
stjarna frá frægðar-
dögum kvikmyndanna,
lék t.d. í Wuthering
Heights (Fýkur yfir
hæðir). Aldur hennar
óákveðinn, sagt var í
myndatextanum, að
hún væri á aldrinum
frá 59-70! Aldurinn
skiptir okkur ekki
máli, við erum ást-
fangin eins og ungling-
ar, sagði kvikmynda-
stjarnan sæl og bros-
andi.
Nyree Dawn Porter,
sem lék í Forsythe-ætt-
inni í sjónvarpinu, er 42
ára og þar með 10 ár-
um eldri en eiginmað-
ur hennar núverandi.
„Ég hef aldrei fundið
fyrir neinum aldurs-
mun á okkur", sagði
Robin Halstead, en það
er nafn hins unga
eiginmanns Nyree.
Brigitte Bardot er 43
ára. Með henni á
myndinni er 30 ára
myndhöggvari, Miro-
slav Brozed. Þau eru
ekki gift, en hafa verið
saman um skeið. „Jú,"
sagði Brigitte, „ég
verð oft ástfangin af
ungum mönnum, en ég
er ekkert að reyna að
yngja mig upp með
því. Það vita allir hvað
ég er gömul, og mér
finnst aldur ekki skipta
máli. Ég vel mér vini
eftir því hvernig mér
fellur við fólk, en ekki
eftir aldri þess", sagði
BB.
Sybil og Jordan
Nyree og Robin
Merle og Robert
Brigitte og Miroslav
\