Tíminn - 13.08.1978, Blaðsíða 16
16
Sunnudagur 13. ágúst 1978
Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands:
Mig
langar
alltaf í
moldarverk
— Tómstundagamanmitt? Ég
veit ekki hvaöég ætti aö nefna.
Ég hef gaman af ákaflega
mörgu og hef alltaf haft, en
föndurvinnu hef ég enga.
Svo fórust hr. Sigurbirni
Einarssyni, biskupi Islands orö
þegar við ræddum viö hann um
áhugamál hans utan daglegra
anna.
— Mér fellur vel útivera og
likamleg vinna og mig langar
alltaf i moldarverk, einkum á
vorin.ogþoliillaaðfinna lykt af
grænni töðu án þess aö langa i
heyvinnu. Ég elska fjöll, mér
þykir vænt um dýr: hesta,
hunda, ketti: og vildi hafa f leiri
tækifæri til að umgangast
skepnur, gróöur og fjöll.
Slikt sem þetta fylgir að sjálf-
sögðu flestum eða öllum þeim,
sem hafa alist upp i sveit og er
ekkert sérstakt fyrir mig.
Borgarbarn hef ég i rauninni
aldrei verið og verð aldrei.
— Gaman hef ég af bókum.
Ekki skal ég neita þvi og les
nokkurn veginn jafnt bækur af
ýmsu tagi, þó aö guðfræði sé
mér alltaf hugfólgnust og þaö sé
mér alltaf ánægja og endurnýj-
un aötakafram góða bók af þvi
sviði.
— Tónlistar nýt ég i rikum
mæli og tel það dásamlega af-
þreyingu að hlusta á góða
tónlist.
— Annars er þaö hliföin min i
þessu starfi, sem vist má teljast
annasamt talsvert og kröfu-
frekt, að viðfangsefnin eru
breytileg. Maður er alltaf að
fara úr einu i annað og sinna
einu af öðru, og i þvi er tilbreyt-
ing fólgin og þar meö hvild. A
móti kemur svo, að dagsverki
lýkur raunverulega aldrei.
Maður hverfur ekki inn i svefn-
inn að loknu dagsverki, heldur
tekur viðfangsefnin með sér inn
i svefninn.
— Ég á auðvelt með að hvil-
ast. 1 sjálfu sér er ákaflega góð
hvild að koma i kirkju, og ég f er
að jafnaöi hressari þaðan út en
þangað inn — og þaö þó aö ég
embætti sjalfur.
Sigurbjörn Einarsson biskup: Gaman hef égaf bókum, ekki neita égþvi.
„Þaö eru margir, sem vilja
hafa „pottana" heitari en
ég"
segir
Guðmundur
Jónsson
söngvari, sem
ásamt konu
sinni Þóru
Haraldsdóttur
er tíður gestur
i Sundlaug
Vesturbæjar
t>óra Haraldsdóttir og Guomundur Jónsson: — Mér tókst f fyrsta skipti f sumar ao fá hana úr Laugar-
dalnum.
— Það er búið að taka svo
mikið af myndum af mér og
þæp bestu eru teikningar, ja,
náttúrulega fyrir utan myndina,
semhannBjarnleifurtókaf mér
i peysufötunum hér um árið,
sagði Guðmundur Jónsson
söngvari og framkvæmdastjóri
rikisiitvarpsins, þegar Tryggvi
ljósmyndari gekk til stofu hjá
honum og konu hans Þóru
Haraldsdóttur að Hagamel 44.
Heimili þeirra hjóna er þægi-1
lega nálægt Sundlaug Vestur-
bæjar, en þar er Guðmundur
Jónsson daglegur gestur, eins
og landslýð mun kunnugt. Þóra
stundar lika sundlaugina en
ekki af alveg sama kappinu og
maki hennar.
— Nei, það er ekki rétt að ég
ráði hitastiginu i pottunum,
sagði Guðmundur, það eru fjöl-
margir, sem vilja hafa þá heit-
ari en ég. Mér þykir þægilegt að
fara niður i svona 45 stiga heitt
vatn.
— Þú segir mér, að þeir séu
alltaf að leysa heimsmálin
þarna inn frá i Laugardalslaug-
inni. Þaö gerum viö ekki hér'
vestur frá. Við erum nokkrir,
sem erum tíðir gestir í lauginni
á svipuðum tima og við ræðum