Fréttablaðið - 04.09.2006, Page 20
20 4. september 2006 MÁNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn
Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Björgvin Guðmundsson AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFANG: ritstjorn@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
Portúgal
Tyrkland
Bókaðu strax á www.plusferdir.is
39.900kr.
Heitt TILBOÐ
Portúgal - Gisting á Alagoamar
Tyrkland - Gisting á Club Ilaida
Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100
Innifalið: Flug, flugvallarskattar,
gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
PL
U
33
82
9
08
/2
00
6
www.plusferdir.is
Í
síðustu viku var Samkeppnisstofnun gerð afturreka með
úrskurð um kaup Dagsbrúnar, móðurfélags Fréttablaðis-
ins, á Senu sem áður hét Skífan. Áfrýjunarnefnd vísaði
málinu frá á þeim grundvelli að réttur eins málsaðila til
andmæla hefði ekki verið virtur. Sú niðurstaða er endan-
leg og sameiningin heimiluð, án þess að fyllilega hafi verið tekin
afstaða til þess efnislega hvort kaupin samræmdust markmið-
um samkeppnislaga um heilbrigðan markað og samkeppni.
Slíkt getur varla talist gott. Það sem er athyglisvert við þessa
niðurstöðu er að hún varpar ljósi á veikleika í lögum sem leiða
til þess að mistök í framkvæmd úrskurðar slá mál út af borðinu.
Markmiðið með því að setja stjórnvöldum skorður í framgöngu
sinni við rannsókn mála er gott og gilt. Þar er horft til þess að
óvissa sem skapast af löngu ferli getur valdið fyrirtækjum
miklum skaða og jafnvel leitt til gjaldþrota. Hraði í afgreiðslu
er því mikilvæg dyggð í vinnu eftirlitsstofnana.
Hins vegar hlýtur það að vera umhugsunarefni þegar mál geta
fallið á einu tækniatriði, án þess að nokkur möguleiki sé að gera
bragarbót á. Eins og það er flestum ljóst að hugleiðingar um að
reyna að klastra saman fyrsta ákærulið í Baugsmálinu í þriðja
sinn voru fáránlegar, þá er jafn ljóst að sú óefnislega niðurstaða
af kaupunum á Senu er engum til góðs. Það að mál geti fallið á
einföldum tækniatriðum býður heim hættu á spillingu.
Umræðan snýst gjarnan með þeim hætti að eftirlitsaðilar séu
varðliðar réttlætis og sanngirni meðan fyrirtæki landsins séu
samansafn gráðugra villimanna sem svífist einskis í að skara
eld að eigin köku. Þessi mynd er afar takmörkuð. Staðreyndin
er sú að upp til hópa er fólk heiðarlegt og vill vinna til gagns
fyrir samfélag sitt. Inn á milli slæðist svo alltaf einn og einn
sem verður hált á svelli dyggðanna og það gildir auðvitað jafnt
um fyrirtæki og opinbera embættismenn. Óleiðréttanleg mis-
tök gætu við einhverjar kringumstæður orðið freisting spilltum
embættismanni, þegar miklir hagsmunir eru í húfi.
Þegar horft er til eftirlits og refsinga er mikilvægt að horfa
til markmiða eftirlitsins. Markmið umferðarlögreglu er slysa-
laus umferð, ekki fjöldi sektaðra. Markmið samkeppnisyfir-
valda er virkur markaður, ekki fjöldi sektaðra. Sama má segja
um aðrar eftirlitsstofnanir, rannsóknar- og ákæruvald. Bestu
kennararnir þurfa aldrei að hækka róminn. Þar ríkir virðing og
agi án þess að valdi eða desibilum sé nokkru sinni beitt. Þannig
eru líka bestu knattspyrnudómararnir þeir sem láta leikinn
ganga og þurfa ekki að grípa til gulu og rauðu spjaldanna. Of
mikill fjöldi þeirra er venjulega til marks um að tökin á leikn-
um hafi tapast.
Sama gildir um allt eftirlit á markaði. Það að fá mál komi til
kasta dómstóla er ekki eitt og sér merki um aðgerðaleysi eftir-
litsins, heldur allt eins að virðing sé borin fyrir leikreglum. Sú
virðing þarf auðvitað að sem mestu leyti að koma frá leikmönn-
unum sjálfum. Þannig eru þó nokkur dæmi um taumhald af
óskráðum reglum sem engin viðurlög fylgja. Einfaldlega vegna
þess að nógu mikil virðing er fyrir þeim borin og þeir sem ganga
gegn þeim dæma sig sjálfir fyrr eða síðar úr leik.
Meðalhóf og sanngirni í leikreglum og eftirliti:
Markmiðið er
góður leikur
HAFLIÐI HELGASON SKRIFAR
Umræðan | Bygging 800 stúdentaíbúða
Eindregin samstaða var í borgarráði í síðustu viku um tillögu Samfylk-
ingarinnar um að vinna að byggingu
800 stúdentaíbúða í miðborg og Vatns-
mýri. Verkefninu var vísað til skipu-
lagsráðs með bókun meirihlutans þar
sem tekið var undir þær fyrirætlanir
sem tillagan fól í sér og Samfylkingin
kynnti í aðdraganda síðustu borgar-
stjórnarkosninga. Öruggt húsnæði á
viðráðanlegu verði er að mati Samfylk-
ingarinnar eitt brýnasta verkefnið á
vettvangi borgarstjórnar. Langir bið-
listar eftir stúdentaíbúðum og óhóflega
hátt leiguverð undirstrika það.
Svæðin sem um er að ræða eru í mið-
borg og Vatnsmýri. Í miðborginni voru nýlega vígð-
ir nýir stúdentagarða við Lindargötu. Bygging
þeirra markaði þá stefnu að stúdentaíbúðir ættu að
byggjast upp í miðborginni þar sem ungt fólk vill
helst búa. Svæðin sem nú eru í deiglunni eru á svo-
kölluðum Barónsreit við Hlemm þar sem um 100
íbúðir geta risið, við Einholt-Þverholt, þar sem fyr-
irhugað er að byggja upp allt að 400 herbergi og
íbúðir. Þá eru ótaldir byggingarreitir í Vatnsmýr-
inni sem munu opna fjölmarga möguleika fyrir
stúdentagarða með nýju skipulagi á svæðum HÍ og
HR. Samfylkingin vill einnig að hið nýja byggingar-
svæði við Mýrargötu verði að hluta
nýtt til uppbyggingar leiguíbúða í þágu
ungs fólks.
Rökin fyrir staðsetningu stúdentaí-
búða í seilingarfjarlægð frá háskóla-
svæðunum eru fjölmörg. Þannig dreg-
ur úr ferðum stúdenta borgarmarka á
milli og þar með umferðinni á götun-
um. Verslun, þjónusta og líf í miðborg-
inni njóta jafnframt góðs af uppbygg-
ingu í þágu stúdenta. Mannlíf nýtur
góðs af því að leiguíbúðir fyrir stúd-
enta geta bæði stuðlað að æskilegri
félagslegri fjölbreytni á eftirsóttustu
búsetusvæðum borgarinnar og á þeim
svæðum sem eiga undir högg að sækja.
Samþykkt borgarráðs vekur vonir um að þessum
verkefnum verði fylgt fast eftir en gefur jafnframt
tóninn um hvernig Samfylkingin ætlar sér að vinna
í stjórnarandstöðu á komandi kjörtímabili. Sam-
fylkingin mun veita uppbyggilegt aðhald og vinna
ötullega að framgangi sinna stefnumála með öflug-
um tillöguflutningi og kröftugum málflutningi.
Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í borgar-
stjórn.
Góðar fréttir fyrir stúdenta
Hvað er það sem verndar viðkomu landans? / Vitið þér
hvað það er? Mér er það hulið,“
orti Megas. Hér mætti snúa út úr
og bæta við staf: Hvað er það sem
verndar viðkomur landans?
Eitthvað hlýtur það að vera, því
það er nánast sama hvar Íslend-
inga ber niður, alls staðar gengur
þeim vel.
Síðastliðið vor var ég á ferð á
meginlandinu. Á götu í Berlín
rakst ég á gamla kunningja. Helgi
Björns og Vilborg Halldórsdóttir
sátu að snæðingi undir berum
himni. Ég settist hjá þeim og
komst að því að Helgi og félagi
hans, Jón Tryggvason, ynnu
ásamt öðrum að því að endurræsa
gamla Metropol-leikhúsið við
Friedrichstrasse, eitt stærsta og
glæstasta leikhús Þjóðverja. Í
partýi um kvöldið hitti ég krakka
sem þekktu til verka Egils
Sæbjörnssonar, myndlistar-
manns. Og þegar Sigur Rós var
komin í spilarann kom í ljós að
þessi þýsku úthverfabörn kunnu
öll lögin utanað. Ég vissi ekki að
hægt væri að læra texta Sigur
Rósar.
Daginn eftir var ég kominn til
Prag og tékkaði mig inn á hótel í
bandi Holiday Inn-keðjunnar,
aðeins til að komast að því að það
var í eigu Íslendings. Þó var það
ekki sami Íslendingurinn og átti
veitingastaðinn sem við borðuð-
um á um kvöldið.
Heimleiðin lá í gegnum
Kaupmannahöfn og auðvitað
stóðst maður ekki mátið og kíkti
inni í Magasin og Illums Bolig-
hus. Á vegg við Strikið var plakat
sem auglýsti tónleika Trabant og
Apparat og á kaffihúsi hitti ég
danskan blaðamann sem sagði
mér að margir kollegar hans
hefðu þegar sótt um starf á
Nyhedsavisen. Úti á Kastrup-
flugvelli blasti Arnaldur marg-
faldur Indriðason við í hillum
bókabúðar og á bestseller-borðum
lágu bækur Dans Brown, gefnar
út af Ferdinand, forlagi Snæ-
bjarnar Arngrímssonar.
Út um gluggann á Icelandair-
vélinni kom ég auga á tvær
flugvélar merktar félögum sem
Íslendingar höfðu annað hvort
keypt eða selt á árinu. Við hlið
mér sat maður frá Tólf Tóna-
búðinni á Skólavörðustíg. Hann
tjáði mér að þeir væru að opna
útibú í Köben. Mugison myndi
spila við opnunina.
Það er undarleg tilfinning að
vera Íslendingur þessa dagana.
Hvar sem maður kemur, alstaðar
er Ísland. Allir gömlu kunn-
ingjarnir orðnir heimsfrægir.
Ég stóð alltaf í þeirri meiningu
að Helgi Björns væri að gera það
gott þegar hann náði réttinum á
Hellisbúanum í Þýskalandi. Nei
nei, það var þá bara smotterí. Nú á
hann leikhús í Berlín. Og ég sem
hélt að Valdi á Caruso væri í
góðum málum með þann stað. Nei
nei, það var þá bara biðleikur. Nú á
hann hótel í Prag. Og ég sem hélt
að það væri merki um velgengni
Snæa að hafa tekist að halda Bjarti
á floti í fimmtán ár... Nei, vinur
minn. Það var þá bara kökusneið.
Nú á hann bókaforlag í Köben.
Hér áður fyrr var okkar besti
maður alltaf nr. 99 þegar hann fór
út að keppa. „Íslenski keppandinn
kom í mark einni mínútu og
tuttugu sekúndum á eftir
sigurvegaranum.“ Nú er okkar
fremsti leikstjóri að sýna Pétur
Gaut í Ibsenlandi. Okkar fremstu
leikarar að leika á West End.
Okkar fyndnasti teiknari kominn
á samning hjá Penguin. Okkar
fremstu viðskiptamenn að kaupa
London og Köben. Okkar lyfjarisi
að gleypa þann króatíska. Okkar
fremsti glæpasagnahöfundur
bestur í Bretlandi. Okkar fremsti
knattspyrnumaður í besta liði
heims. Og nú er okkar fremsti
sveitaballasöngvari orðinn
rokkstjarna í Bandaríkjunum.
Óneitanlega breytir þetta
landinu okkar örlítið. Leiksýning í
Þjóðleikhúsinu fær umfjöllun í
Guardian. Allt sem Eiður Smári
segir ratar í heimsblöðin.
Unglingahljómsveit úr Hafnar-
firði fær umfjöllun í Rolling
Stone. Tom Waits á ekki bara
titillagið í íslenskri kvikmynd
heldur leikur hann í annarri. Jón
Ásgeir er nær daglegur gestur á
síðum Financial Times. Og
sveitaball í Ölfushöll er ekki
lengur bara sveitaball í Ölfushöll
heldur viðburður í amerísku
sjónvarpi.
Við Íslendingar eigum tvö
þjóðarsport: Að baktala velgengni
landans og oftúlka velgengni
hans. Við ættum að leggja niður
hvort tveggja og líta um öxl, til
þess tíma þegar hvorki gekk né
rak hjá okkar fólki og enginn tók
mark á þessu litla skitna landi, og
vera síðan þakklát fyrir þá
heimsins happasól sem ákvað
skyndilega að skína á okkur.
Verum stolt og samgleðjumst
okkar besta fólki. Því þessi
margfalda velgengni landans á
öllum sviðum er ekkert minna en
ótrúleg.
Viðkomur landans
HALLGRÍMUR HELGASON
Í DAG | Velgengni landans
DAGUR B.
EGGERTSSON
Það er undarleg tilfinning að
vera Íslendingur þessa dag-
ana. Hvar sem maður kemur,
alstaðar er Ísland.
Frambærilegasta daman
Fjöldi fólks tók þátt í sumarferð
Samfylkingarinnar á laugardaginn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiddi
fylkinguna um Suðurnesin. Komið
var við í Vogum, Sandgerði, á Garðs-
skaga og á Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Þá var kíkt í Bláa lónið og í heimsókn
hjá Hitaveitu Suðurnesja. Um kvöldið
var haldin fínasta grillveisla í Höfða-
skógi við Hafnarfjörð þar sem
Lúðvík Geirsson bæjar-
stjóri hélt uppi fjör-
inu ásamt öðrum.
Kristín Pálsdóttir
fékk meðal annars
viðurkenningu fyrir að
botna eftirfarandi
fyrripart:
Kosningarnar
koma senn/þá
kárnar margra gaman./ Þar saman
fylkja fræknir menn/og frambærileg-
asta daman.
Umdeild netkosning
Þó vel hafi farið á með samfylking-
arfólki á laugardaginn er farið að
gæta nokkurs titrings vegna komandi
prófkjörs. Vilji stendur til þess innan
fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík að
heimila fólki að kjósa í prófkjörinu
á netinu að því gefnu að kerfið sé
öruggt. Ekki eru allir sáttir við það
fyrirkomulag og mótmælti Jóhanna
Sigurðardóttir þessari aðferð. Þá
mun Ásta R. Jóhannesdóttir einnig
vera þessu mótfallin. Hár meðalald-
ur helstu stuðningsmanna þessara
frambjóðenda er líklegasta skýringin
á andstöðunni enda tölvueign fátíðari
hjá elsta aldurshópnum.
Kalt á toppnum
Steinunn Valdís Óskarsdóttir sæk-
ist eftir fjórða sæti á framboðslista
Samfylkingarinnar í komandi alþingis-
kosningum. Ingibjörg Sólrún verður í
fyrsta sæti og svo má reikna fastlega
með að þau Össur Skarphéðinsson
og Jóhanna Sigurðardóttir komi þar á
eftir. Blásið hefur köldu á milli þeirra
tveggja og formannsins og verður
staða Ingibjargar
því erfiðari en
ella komi til
þess að velja
þurfi ráðherra
flokksins í
næstu ríkis-
stjórn.
bjorgvin@frettabladid.is