Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 4. september 2006 5
Úrval búningasilfurs frá lokum
17. aldar til okkar tíma er nú
til sýnis á Þjóðminjasafninu.
Sýning stendur nú yfir í rann-
sóknarrými Þjóðminjasafnsins á
íslenskum búningum og búninga-
skarti. Þar getur að líta úrval
búningasilfurs frá lokum 17.
aldar til okkar tíma; ennisspangir,
koffur, sprotabelti, lyklasylgjur,
húfu- og sjalprjóna, skúfhólka,
millur, reimanálar og samfellu-
hnappa. Sumir gripirnir eru í
eigu safnsins en aðrir fengnir að
láni fyrir þessa sýningu. Þarna
má einnig sjá átta búninga með
tilheyrandi skarti: faldbúning,
peysuföt, upphlut, tvo telpnabún-
inga og drengjabúning, kyrtil-
búning og skautbúning.
Sýningin var gerð í sam
vinnu við Þjóðbúningaráð í til-
efni Norrænnar þjóðbúninga-
ráðstefnu sem haldin var í
Reykjavík í ágúst en sýningin
stendur til 19. nóvember. Hönn-
uður sýningarinnar er Guðrún
Gunnarsdóttir en er styrkt af
Samtökum iðnaðarins.
Með gullband um
sig miðja
Margs konar búningaskart gefur að líta á
sýningunni, Með gullband um sig miðja.
Sýningin var unnin í samvinnu við Þjóðbúningaráð í tilefni Norrænnar þjóðbúninga-
ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík í ágúst .
Hægt er að lengja sumarið í garðinum með
réttu hugarfari.
Þrátt fyrir að haustið hóti nú komu sinni með
auknum kulda þarf það ekki að þýða að Íslend-
ingar verði að flýja úr görðum sínum alveg
strax. Með réttu hjálpartækjunum er hægt að
eiga notalega stund í garðinum enn um hríð.
Kulda er jú hægt að klæða af sér auk þess
sem hægt er að fá ýmis tæki sem veita yl. Fyrst
ber að nefna ósköp venjulegt teppi eða værðar-
voð sem yljar vel. Svo eru til nýmóðins tæki
eins og gashitarar sem eru að verða töluvert
vinsæl hjá landanum.
Falleg lukt gefur góða stemningu þegar
myrkva tekur en henni má koma haganlega
fyrir á borði eða hengja í næsta tré. Þá
er ekkert annað sem þarf nema
skemmtilegan félagsskap og góða
skapið.
Notaleg stund í
garðinum að hausti
Kók eykur kraftinn
Í SUMUM TILFELLUM ÞARF EKKI FLÓKNAR AÐGERÐIR
TIL ÞESS AÐ AUKA VATNSKRAFTINN Í STURTUNNI.
Ef sturtan á heimilinu er ekki nógu kraft-
mikil getur ástæðan einfaldlega verið sú að
sturtuhausinn sé stíflaður. Með tímanum
safnast kísill úr heita vatninu innan í
hausinn sem minnkar rennslið í gegnum
hann. Gott ráð við þessu getur verið að
skrúfa sturtuhausinn af og leggja hann í
bleyti í kók yfir nótt. Kókið losar kísilinn
innan úr hausnum og rennsli vatns í
gegnum hann ætti að verða mun betra
á eftir. Ágætt getur þó verið að athuga
hversu mikill kraftur er á vatnsrennsl-
inu úr sturtubarkanum eftir að hausinn
hefur verið skrúfaður af áður en lengra
er haldið, því ef að það er jafn lítið eru
augljóslega einhverjar aðrar ástæður fyrir
því að krafturinn í sturtunni er ekki sem
skyldi. - eö
Kók getur komið að
góðum notum.
Kísill getur minnkað rennsli í
gegnum sturtuhausa.
Ekki þarf að ganga frá garðhúsgögnunum alveg
strax.
Ef lauf falla
á stétt og
húsgögn er
ekkert annað í stöð-
unni en að sópa þeim
burt og halda áfram að njóta
útiverunnar.
Luktin veitir vina-
lega stemningu
þegar myrkva
fer.
Gashitarar
eru vinsælir
og lengja
sumarið í
garðinum.
Það er kósý að vefja sér í teppi
á köldum haustkvöldum.
Formaco • Fossaleynir 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 2050 • Fax: 577 2055 • www.formaco.is
SPURÐU FASTEIGNASALANN...
...HVORT ÞAÐ SÉU
GLUGGAR Í DRAUMAÍBÚÐINNI
Því það skiptir máli.
Notaleg stemning með flottum fylgihlutum
fyrir heimilið og sumarbústaðinn
�