Fréttablaðið - 04.09.2006, Side 68
4. september 2006 MÁNUDAGUR28
G-star hélt á fimmtudaginn
tískusýningu sem Steinunn
Sigurðardóttir skipulagði.
Í Loftkastalanum fengu góðir
gestir nasasjón af vöruúrvalinu í
búðinni og af því sem er væntan-
legt frá merkinu. G-star er „hrátt“
gallabuxnamerki en er einnig með
boli, peysur og ýmislegan annan
fatnað fyrir bæði kynin.
Tískusýning hjá G-star
HRÁR STÍLL Flottar töffaralegar galla-
buxur við einfaldan hvítan bol bregðast
aldrei. Trefill og sólgleraugu lífga svo
upp á lúkkið.
TÍSKULITIR Hettupeysa og gallabuxur
í gráum og bláum, heitustu tískulitum
haustsins.
KAMPAKÁTAR KONUR Kolla, Þóra og
Drífa voru hressar í Loftkastalanum.
ÁNÆGÐAR MEÐ SÝNINGUNA Ásdís og
Arna skemmtu sér vel.
GALLABUXNAGELLUR Kolbrún og Kristín virtu fyrir sér framboðið frá G-star.
SPÁÐ Í FÖTIN Berglind Laxdal og Esther
Ýr voru flottar á tískusýningunni.
Sjónvarpsstöin Skjár einn verður með Magna-
vöku á undan Rock Star: Supernova þættinum
sem er á dagskrá annað kvöld. Spennan
magnast með hverri mínútu enda eru nú
einungis fimm keppendur eftir sem berj-
ast um fjögur laus sæti í úrslitaþættin-
um. Þau Guðrún Gunnarsdóttir og Felix
Bergsson munu leiða fólk í allan sann-
leikann um keppendurna, taka á móti
góðum gestum og sýna hvað fer fram
á bak við tjöldin.
Hróður þessa geðþekka Borg-
firðings hefur borist út fyrir
landsteinana enda horfðu um sjö
milljónir manna á síðasta þátt-
inn þar sem Ryan Star var send-
ur heim. Greinarhöfundur
menningarhluta New York
Times er með litla úttekt á
keppendunum en þar er Magni
á forsíðunni. Þar lýsir greinahöfundur yfir
gremju sinni með þá staðreynd að á meðan
hæfileikalausir einstaklingar á borð við Kevin
Federline og Paris Hilton skuli komast upp
með að gefa út „sorp“ þurfi hæfileikaríkt
fólk á borð við þá keppendur sem eftir eru
í Rock Star að ganga í gegnum þrettán
vikna starfsviðtal.
Á heimasíðunni supernovafans.com
er Magni enn með töluvert forskot
á hina sem aðdáendur hljómsveit-
arinnar vilja sjá sem söngvara
hljómsveitarinnar. Hefur hann
stuðning helmings þeirra sextíu
þúsund gesta sem heimsótt
hafa síðuna en Dilana Robi-
chaux er með rúmlega fimmt-
ung atkvæða. Athygli hefur
vakið að fjórir keppendur
verða að öllum líkindum eftir
í lokaþættinum og rennir það stoðum undir
þær kenningar sem birst hafa á aðdáendasíð-
unni að karl og kona muni leiða hljómsveit-
ina. - fgg
Magnaæðið heldur áfram
MAGNI
Hefur átt hug og hjörtu
þjóðarinnar að undan-
förnu.
SUPERNOVA Sú staðreynd að fjórir keppendur verði
að öllum líkindum eftir í lokaþættinum rennir stoðum
undir þá kenningu að tveir söngvarar frekar en einn
muni leiða hljómsveitina.
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda –
framhalds –
og talæfi ngafl okkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
Íslenskunámskeið
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga I
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga II
Verklegar greinar
FRÍSTUNDAMÁLUN
GLERLIST
HAUSTKRANSAGERÐ
LEIRMÓTUN
LOPAPEYSUPRJÓN
SKRAUTRITUN
TRÉSMÍÐI
ÚTSKURÐUR
Tölvunámskeið
FINGRASETNING
VEFSÍÐUGERÐ
FrontPage
TÖLVUGRUNNUR
TÖLVUGRUNNUR
Framhald
WORD
Ritvinnsla
Saumanámskeið
BÚTASAUMUR
CRAZY QUILT
FATASAUMUR /
BARNAFATASAUMUR
AÐ ENDURSAUMA FÖT
OG HANNA AÐ NÝJU
ÞJÓÐBÚNINGUR -
SAUMAÐUR
SKRAUTSAUMUR –
BALDERING
Ýmis námskeið
BÓKHALD
SMÆRRI FYRIRTÆKJA
Grunnatriði í bókhaldi
SAMSKIPTI
LÍF OG LÍÐAN
Námskeið fyrir konur
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2006
Matreiðslunámskeið
GÓMSÆTIR BAUNA–
PASTA – OG
GRÆNMETISRÉTTIR
GÓMSÆTIR HOLLIR
SUÐRÆNIR RÉTTIR FRÁ
MIÐJARÐARHAFS-
LÖNDUNUM
HRÁFÆÐI
MATARMIKLAR SÚPUR
OG
HEIMABAKAÐ BRAUÐ
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN I
Grunnnámskeið
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN II
Framhaldsnámskeið
SPENNANDI BÖKUR
Innritun í síma 564 1507 4. – 14. sept. kl. 10 - 18
á vef skólans http:// kvoldskoli.kopavogur.is eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla
Fyrstu námskeiðin hefjast 19. september.
Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans
Vefsíða:http:// kvoldskoli.kopavogur.is Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is
Íslenskar hljómsveitir hafa verið
duglegar við að spila í Danmörku að
undanförnu og virðist íslensk tónlist
eiga upp á pallborðið hjá frændum
okkar í austri. Á föstudagskvöldið
var komið að piltunum í Jeff Who?
og Eberg að kynna íslenska tónlist
og Iceland Airwaves hátíðina fyrir
Dönum, löndum sínum til mikillar
gleði enda lagði fjöldi þeirra leið
sína á tónleikana. Margir Danir tóku
einnig þátt í gleðinni eins og sannað-
ist á tónleikunum í fyrrakvöld og
allir virtust skemmta sér vel.
Dönum selt íslenskt
Í ÖLLU SÍNU VELDI Jeff Who? hefur slegið í gegn hér heima með rokkslagaranum Bar
Fly sem hefur tröllriðið öllum vinsældalistum.
SVEITT STEMNING Danskir áhorfendur
virtust kunna vel að meta íslenskt rokk.
FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN
EINBEITTUR Elli var einbeittur á bassan-
um í Kaupmannahöfn enda náðu þeir
félagar upp góðri stemningu.
Beyoncé Knowles hefur hrist af
sér sögusagnir um að hún ætli sér
að giftast kærastanum sínum, Jay-
Z, í brúðarkjól sem sé sniðinn eftir
kjól Díönu prinsessu. Söngkonan
heldur því fram að fréttir um að
hún ætli að herma eftir kjól prins-
essunnar séu gjörsamlega út í
hött. Beyoncé hefur heyrt alls
konar sögur um komandi brúð-
kaup og segir um þær: „Ég vildi að
ég gæti talað við þann sem skrif-
aði þetta, því það er alveg frábært.
Sá sem er svona hugmyndaríkur
ætti að vera brúðkaupsskipuleggj-
andi þar sem hann er þegar búinn
að skipuleggja æðislegt brúðkaup
fyrir mig og Jay. Það er meira að
segja talað um að kavíar sé á boð-
stólnum og mér finnst kavíar
vondur,“ segir söngkonan hlæj-
andi.
Hlær að brúð-
kaupssögunum
ENGIN HERMIKRÁKA Beyoncé ætlar
ekki að láta gera kjól eftir brúðkaupskjól
Díönu prinsessu.