Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 8
8 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR 1. Hvað heita stóru köngulærn- ar sem mikið hefur verið af í Hafnarfirði undanfarið? 2. Hvenær taka lög um bann við reykingum á veitingahúsum gildi? 3. Hvaðan voru flóttamenn- irnir sem handteknir voru við komu til Kanaríeyja um helgina? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 VEISTU SVARIÐ? AFGANISTAN, AP Einn kanadískur hermaður fórst og nokkrir særð- ust í gærmorgun þegar tvær bandarískar herþotur á vegum NATO gerðu loftárás í suðurhluta Afganistans. Loftárásin var gerð að beiðni NATO-sveitanna sem áttu þar í bardögum á jörðu niðri við talibana. Meira en 20 manns að auki fór- ust í Afganistan í gær, þar á meðal fjórir Afganar og einn breskur hermaður þegar sjálfsmorðsárás var gerð á bílalest NATO í höfuð- borginni Kabúl. Hörð átök geisuðu um helgina milli talibana og NATO-hermanna í Kandahar-héraði í suðurhluta landsins. Átökin eru þau mann- skæðustu frá því að bandaríski herinn og bandamenn hans steyptu talibanastjórn landsins af stóli fyrir fimm árum. Hersveitir NATO hófu á laugar- daginn harða herferð gegn herská- um talibönum í Panjwayi-héraði, sem er hluti af Kandahar. Mark- mið herferðarinnar, sem hefur fengið nafnið Medúsa, er að hrekja hina herskáu talibana á brott frá svæðinu. Fjölmennur hópur talibana hefur haft aðsetur í Panjawi um langa tíð og skipulagt þar and- spyrnu gegn bandaríska hernum og nú síðast gegn hersveitum á vegum NATO, sem tók við stjórn héraðsins í síðasta mánuði. Hersveitir NATO halda því fram að meira en 200 talibanar hafi fallið fyrstu tvo dagana frá því að herferðin hófst, á laugardag og sunnudag. Afganska varnar- málaráðuneytið segir að 89 tali- banar hafi fallið, en sjálfir halda talibanar því fram að þeir hafi misst innan við tíu manns. „Þeir segjast hafa drepið 200 talibana en þeir drápu ekki einu sinni tíu,“ sagði Mullah Dadullah, sem er leiðtogi herskárra talibana í suðurhluta Afganistans. Hann talaði við fréttamann AP-frétta- stofunnar í gegnum gervihnattar- síma, en fréttamaðurinn hefur áður talað við Dadullah og þekkti rödd hans. Dadullah sagði einnig að Mullah Omar væri enn æðsti leiðtogi tali- bananna, en hann fór í felur þegar talibanastjórnin hraktist frá völd- um á sínum tíma. NATO heldur því einnig fram að afganska lögreglan hafi handtekið 80 talibana og 180 aðrir hafi flúið. Á sunnudaginn fórust einnig fjórir kanadískir hermenn og sjö særðust í bardögum við herskáa talibana í Pajwayi. Frá árinu 2002 hafa þá samtals 32 kanadískir her- menn og einn kanadískur stjórnar- erindreki fallið í Afganistan. Frá því í nóvember árið 2001 hafa einnig 37 breskir hermenn fallið í Afganistan. Í gær sagði Richard Dannatt, yfirmaður breska herráðssins, í viðtali við breska dagblaðið Guardian, að það væri alveg á mörkunum að breski her- inn réði við þau verkefni, sem hann hefði tekið að sér í Afganistan og Írak. gudsteinn@frettabladid.is KANADÍSKIR HERMENN Í AFGANISTAN Hermennirnir voru býsna niðurlútir í gær eftir að fréttir bárust af því að félagi þeirra hefði fallið fyrir skotum úr vinveittri flugvél. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Skotinn til bana af samherjum Einn Kanadamaður fórst í árásum frá herþotum á vegum NATO í Afganistan. Alls hafa fimm Kanada- menn fallið í átökum við talibana síðustu daga. SKÓLAMÁL „Það bíða of margir nem- endur eftir þjónustu sálfræðings eins og staðan er núna en verið er að vinna í því að stytta biðlistann,“ segir Þorsteinn Hjartarson, skóla- stjóri Fellaskóla. Í Breiðholtinu bíða flest börn í Reykjavík eftir sálfræðiþjónustu eða 92 og er mest fjölgun á tilvísun- um vegna hegðunarvandamála. Þorsteinn segir uppeldi í auknum mæli að færast yfir til skólanna og eitt af því sem þurfi að kenna nem- endum sé góð hegðun. Ástæða þess að þessi mál eru komin yfir til skól- anna telur Þorsteinn meðal annars vera breytingar í samfélaginu sem hafa haft áhrif á hlutverk fjölskyld- unnar. „Þeir sem starfa við skóla eru hins vegar missáttir við þetta nýja uppeldishlutverk skólanna sem kallar á samstarf margra aðila. Í Fellaskóla eru úrræði fyrir börn með mismunandi þarfir og reynt er að koma til móts við þarfir þeirra sem bíða sálfræðigreining- ar.“ Sem dæmi um fjölbreytileikann í flóru nemenda í Fellaskóla nefnir Þorsteinn að fjórði hver nemandi við skólann hafi annað móðurmál en íslensku. „Eftir hefðbundinn skóladag býður Fellaskóli upp á sérstakt úrræði, Æskufell, sem er ætlað börnum sem þurfa á stuðningi að halda. Úrræðið er í samstarfi við ÍTR og Þjónustumiðstöð Breið- holts.“ - hs Reynt er að koma til móts við þarfir þeirra nemenda sem bíða sálfræðiþjónustu: Of mörg börn bíða þjónustu ÞORSTEINN HJARTARSON Uppeldi er í auknum mæli að færast yfir til skólanna. BRETLAND Hlýnandi loftslag jarðarinnar veldur því að bakterí- ur breiðast nú til heimshluta þar sem þeirra hefur lítt orðið vart fyrr. Þetta kom fram í máli Pauls Hunter, bresks prófessors í heilsugæslu, á ráðstefnu í Bretlandi sem BBC fjallaði um. Nokkrir Norðurlandabúar hafa smitast af kóleru í sumar við það að synda með opin sár í Atlants- hafinu, og einn Dani lést úr Vibrio vulnificus, sem hingað til hefur aðallega haldið sig í Mexíkóflóa. Hunter segir bráðnauðsynlegt að fylgjast betur með hættulegum og tiltölulega algengum sjúkdóm- um svo sem malaríu. - smk Gróðurhúsaáhrifin: Sjúkdómar breiðast víðar VEIÐI Enn á eftir að veiða 250 hrein- dýr af 909 dýra kvóta á hreindýra- veiðisvæðunum á Austurlandi. Veið- ar hafa gengið treglega að undanförnu því þoka hefur legið yfir stórum hluta veiðisvæðanna. Jóhann G. Gunnarsson, hjá Umhverfisstofnun, segir mikið óveitt af dýrum á Fljótsdalsheiði en ekkert meira nú en á sama tíma á undanförnum árum. „Það var afspyrnuvont veður hér í síðustu viku en var gott í dag og í gær. Ef veðrið helst gott þá erum við bjart- sýnir á að þetta náist nú mest allt. Það á eftir að ná 139 törfum og 130 kúm.“ Mikill áhugi er fyrir hreindýra- veiðum og bárust rúmlega 2.000 umsóknir til veiða á 909 dýra kvóta þessa árs. Þar af bárust 30 umsóknir frá útlendingum. - shá Hreindýraveiðitímabilinu lýkur 15. september: 250 dýr enn óveidd AF VEIÐISLÓÐ Nú líður senn að lokum hreindýraveiðitímabilsins. MYND/REIMAR DÓMSMÁL Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær ákærður fyrir þjófnað og fjársvik. Maðurinn er ákærður fyrir að stela fartölvu í Verzlunarskólan- um í febrúar síðastliðnum. Í apríl gerði maðurinn sér svo lítið fyrir og stal sex páskaeggj- um úr verslun 11/11 að verð- mæti tæplega átta þúsund krónur. Auk þess var maðurinn ákærður fyrir að hafa tvisvar blekkt starfsmenn á bensínstöð- um fyrir að láta sig fá sígarettu- pakka og tvö símakort sem ákærði þóttist ætla að kaupa, en stakk svo af. - æþe Þjófur ákærður í héraðsdómi: Stal sex páska- eggjum úr búð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.