Fréttablaðið - 05.09.2006, Síða 34
5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR12
Handknattleiksmaðurinn Gísli Rúnar Guðmundsson, sem gekk nýverið í raðir
danska liðsins Ajax Heros í Kaupmannahöfn, segir andlegt ástand sitt ráða
miklu um það hvað honum finnist skemmtilegt eða leiðinlegt að gera. „Það
sem mér finnst skemmtilegast eða leiðinlegast að gera er í raun og veru bara
spurning um andlegt ástand hverju sinni. Ég segi alveg frá hjartanu að það er
ekkert eitt frekar en annað sem mér finnst leiðinlegra eða skemmtilegra en
annað.
Þetta er allt spurning um það hvernig maður er stemmdur hverju sinni. Það
getur til dæmis verið grútleiðinlegt að ryksuga þegar maður er þvingaður til
þess. Þegar maður aftur á móti er einn heima, rétt stemmdur og setur góða
tónlist á fóninn getur verið mjög gaman að ryksuga.
Þannig er þetta með alla hluti, bara spurning um stemninguna hverju sinni og
það er okkar að hafa hana okkur í hag og gera þannig alla hluti skemmtilega.“
SKEMMTILEGAST/LEIÐINLEGAST
Hugarfarið skiptir öllu
GÍSLI RÚNAR GUÐMUNDSSON LÍTUR SPEKINGSLEGUM AUGUM Á TILVERUNA.
Ofurhetju-myndir eru misvinsælar
og sjálfsagt vinsælastar á ófriðartím-
um. Ástæðan er rakin til óskhyggju
áhorfenda um að vandamálin
hverfi eins og dögg fyrir sólu, með
svipuðum hætti og hetjan á hvíta
tjaldinu bjargar málunum með einu
handtaki. Vinsældir slíkra mynda
undanfarin ár renna stoðum undir
þá kenningu, auk þess sem tölvu-
brellur nútímans hafa rutt brautina
fyrir alls kyns sjónhverfingum sem
voru áður illframkvæmanlegar.
1. V for Vendetta (2005): Hefndar-
engill leitar leiða við að sækja
spilltan þjóðarleiðtoga og glæpa-
hyski hans til saka fyrir samfélags-
lega glæpi. Sannkallaður hvalreki
fyrir unnendur ofurhetjumynda,
enda sjaldan sem myndir af þessu
tagi eru jafn innihaldsríkar og vel
leiknar.
2. Batman Begins (2005): Eftir
ósköpin sem leikstjórinn og fyrrum
gluggaskreytingamaðurinn Joel
Schumacher framreiddi með fjórðu
myndinni um Leðurblökumanninn
var ekki annað hægt en að byrja
seríuna upp á nýtt. Handrit, lág-
stemmdur leikur og svartur húmor
gera hana að þeirri bestu í röðinni.
3. X-men (2000) og X-Men 2: X-Men
United (2003) deila með sér þriðja
sæti yfir bestu ofurhetju-myndir
allra tíma. Hér er valinkunnur maður
í hverju hlutverki með þau Hugh
Jackman, Patrick Stewart og Famke
Jessen fremst í flokki stökkbrigða sem
þrá samfélagslega viðurkenningu.
4. Spiderman 2 (2004): Peter Parker
togast á milli ástar og hetjudáða.
Í seinni myndinni er unnið út frá
sögunni sem grundvölluð var með
fyrstu myndinni í trílógíunni, en að
uppbyggingu eiga þær síðan ískyggi-
lega mikið sameiginlegt með fyrstu
tveimur Superman-myndunum.
5. Superman (1978): Er þetta fugl?!
Nei! Er þetta flugvél? Nei þetta er
Superman! Vísindamaður sendir
barnungan son sinn til jarðar til að
bjarga mannkyninu áður en heima-
pláneta hans tortímist. Myndin ber
með sér öll einkenni stórmyndar,
meira að segja þakkarlistinn í lokin
er yfir sjö mínútna langur, sem var
met á þeim tíma.
TOPP 5:
OFURHETJU-MYNDIR
SJÓNARHORN
Gengið um Goðaland í Þórsmörk í blíðskaparveðri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA