Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 8
8 10. september 2006 SUNNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
���������������������
��������������������������� ��������������
�������������������������������������
��������� ������ �������������������
�������������������������������� ��
���������������������������� ��
������� �����������������������
���������������������������������������������������������
���������������������������� �������������������
�������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
���������������
��������������������������������������������������������
�������������� �����������������������������������������
���������������������������������������
�������������������������������������������������������
������� �������������������������������
����������������������
������������������������
������ ��������������������������
���������������������������������������������������
1 Hvað heitir söfnun Rauða
krossins sem fram fór í gær?
2 Í hvaða hús flutti Háskólinn í
Reykjavík á dögunum?
3 Hvað nefnist geimferjan sem
NASA skaut á loft í gær?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
STYRKTARHÁTÍÐ Hátíð til styrktar
tíu ára dreng með hvítblæði fer
fram í Grindavík í dag. Meðal
þeirra sem koma fram eru KK,
íbúar Latabæjar, Skítamórall og
Rúnar Júlíusson. Allir sem taka
þátt í hátíðinni gefa sína vinnu og
rennur aðgangseyririnn til
fjölskyldu drengsins. Hátíðin
verður haldin í Festi og hefst
klukkan fimm.
Drengurinn, Frank Bergmann
Brynjarsson, greindist með
hvítblæði fyrr á árinu og þarf að
fara utan til að láta skipta um
beinmerg. Foreldrar hans hafa
tekið sér frí frá vinnu og munu
fylgja honum út. - sþs
Styrktarhátíð í Grindavík:
Styrkja dreng
með hvítblæði
MIÐBORGIN Hverfisráð miðborgar
ætlar að leita leiða til þess að
auka öryggiskennd þeirra sem
vilja sækja miðborgina heim,
hvort sem er í miðri viku eða um
helgar. Kannanir sýna að margir
landsmenn telji að þeim sé hætta
búin af því að vera í miðborginni
að kvöldi til. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá ráðinu.
Ráðið telur að skipulag menn-
ingarnætur hafi heppnast mjög
vel og vill að lærdómur verði dreg-
inn af löggæslunni þá. Hverfisráð
miðborgar er samráðs- og sam-
starfsvettvangur íbúa, stofnana
og fyrirtækja í miðborg Reykja-
víkur. - sþs
Hverfisráð miðborgar:
Ætlar að auka
öryggiskennd
LÖGREGLUMÁL Tveir Litháar sitja í
gæsluvarðhaldi eftir að alls rúm
ellefu kíló af ætluðu amfetamíni
fundust í tveimur bifreiðum mann-
anna við komu hingað til lands með
ferjunni Norrænu á Seyðisfirði á
fimmtudaginn.
Annar Litháinn hefur verið
búsettur hér á landi um nokkurt
skeið og var bifreiðin sem hann ók
með íslenskum skráningarnúmer-
um.
Málið er í rannsókn fíkniefna-
deildar lögreglunnar í Reykjavík
en enn hafa engir fleiri verið hand-
teknir í tengslum við málið.
Fjórir Marokkóbúar voru hand-
teknir síðastliðinn fimmtudag við
komuna til landsins eftir að Toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli hafði
afskipti af þeim vegna fíkniefna-
smygls. Tveir þeirra reyndust hafa
hass innvortis eftir gegnumlýs-
ingu. Það mál er enn í rannsókn og
fleiri hafa ekki verið handteknir
viðriðnir málið.
Samkvæmt öruggum heimild-
um Fréttablaðsins er einn fjór-
menninganna bróðir norður-afrísku
konunnar sem kom ásamt manni
og barni til landsins á dögunum. Í
fjölskylduföðurnum, sem er frá
Suður-Ameríku, fundust rúmlega
sjö hundruð grömm af hassi í
smokkum eftir gegnumlýsingu,
sem hann hafði gleypt. Allt þetta
fólk er búsett hér á landi og hefur
ekki komið við sögu lögreglu áður.
Tengsl þessi gefa sterklega til
kynna að hópur erlends fólks,
búsetts hér á landi, hafi skipulagt
innflutning á hassi.
Nú sitja tólf manns í gæsluvarð-
haldi vegna fíkniefnamála. - æþe
Litháar og Marokkóbúar búsettir hér á landi sitja inni fyrir fíkniefnasmygl:
Innflutningurinn skipulagður
FANGAGEYMSLUR Fjórir menn sitja nú í
gæsluvarðhaldi fyrir nýleg fíkniefnamál.
Tveir eru Litháar sem gripnir voru með
amfetamín falið í bifreiðum og tveir
Marokkóbúar sem reyndu að smygla
kannabisefnum inn til landsins innvort-
is. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
INDLAND, AP Tvær sprengjur
sprungu á fjölfarinni götu í
bænum Malegaon á vestanverðu
Indlandi í fyrrakvöld. Rúmlega
þrjátíu manns fórust og hundrað
særðust.
Sprengjurnar voru festar við
reiðhjól og sprungu skammt frá
mosku að loknu bænahaldi.
Embættismenn sögðu spreng-
ingarnar vera hryðjuverk sem
ætlað væri að espa fólk til
frekara ofbeldis. Átök milli
múslima og hindúa hafa löngum
sett sterkan svip á borgina. - gb
Notuðu reiðhjól til árása:
Þrjátíu fórust í
sprengjuárás
EYÐILEGGING Tvær sprengjur sprungu
að loknu bænahaldi í mosku.
UMFERÐ Fjölmörg alvarleg umferð-
arslys hafa orðið vegna aksturs
yfir óbrotna línu á þjóðvegum
landsins.
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi umferðarstofu,
segir mjög algengt að ekið sé yfir
heilar línur og telur víst að öku-
menn geri sér ekki grein fyrir
hættunni sem því fylgir. „Heil lína
er til að láta ökumenn vita að það
er hættulegt að aka framúr og þar
af leiðandi er það bannað,“ segir
Einar Magnús.
Að hans sögn hefur fjöldi alvar-
legra slysa orðið í umferðinni
vegna svona háttalags. „Það er til
fjöldi dæma um mjög alvarleg
slys vegna þess að menn taka
sénsinn á þessu.“
Ásgeir Þór Ólafsson ók um Hell-
isheiðina á dögunum og varð þess
áskynja að ökumaður bílsins á eftir
honum ætlaði að taka framúr með
því að aka yfir óbrotna línu. Ásgeir
fékk samferðamann sinn til að
mynda athæfið.
Hann segist oft hafa orðið vitni
að akstri sem þessum. „Það þarf
ekki að fara oft um Hellisheiðina
til að sjá svona lagað og að auki
fara fjölmargir framúr á vegöxl-
inni vinstra megin við akreinina,“
segir Ásgeir, sem líkt og Einar
Magnús hvetur menn til að láta af
þessu háttalagi. - bþs
EKIÐ YFIR HEILA LÍNU Fjölmörg alvarleg
umferðarslys hafa orðið þegar ökumenn
aka yfir heila línu á þjóðvegunum.
Algengt að ökumenn virði ekki óbrotnar línur á þjóðvegunum:
Orsök fjölda alvarlegra slysa
OFBELDI Ákveðið var að taka ekki
inn í íslensk lög sérákvæði um
heimilisofbeldi þegar rætt var
um breytingar á lögum til þess að
laga þau að þörfum þolenda heim-
ilisofbeldis. Frumvarp Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra
var samþykkt en í því er refsi-
þyngingarástæða, sem hægt er að
beita þegar náin tengsl gerenda
og brotaþola þykja hafa aukið
grófleika verknaðar.
Róbert Ragnar Spanó, formað-
ur refsiréttarnefndar og kennari
við lagadeild Háskóla Íslands,
segir það hafa verið samróma álit
nefndarinnar að óþarft væri að
breyta lögum á þann veg að sérá-
kvæði um heimilisofbeldi væri
komið á. „Við mátum það svo að
það væri ekki ástæða til þess að
setja sérstakt ákvæði í lög um
heimilisofbeldi. Við mæltum hins
vegar með því að sett yrði sérstakt
ákvæði um að líta skuli til þess ef
gerandi hefur brotið gegn nákomn-
um einstaklingi við ákvörðun refs-
ingar. Ákvæðið er því refsiþyng-
ingarástæða. Það var samdóma álit
innan nefndarinnar að það væri
ekki tilefni til þess að taka inn í
lögin sérstakt ákvæði um heimilis-
ofbeldi,“ sagði Róbert Ragnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður og varaformaður Samfylk-
ingarinnar, lýsti þeirri skoðun
sinni í Fréttablaðinu á dögunum
að skynsamlegast væri að koma
sérákvæði um heimilisofbeldi inn
í lög til þess að geta tekið á heimil-
isofbeldi með skilvirkari hætti.
Bjarnþór Aðalsteinsson, full-
trúi í ofbeldisbrotadeild lögregl-
unnar, sagði í viðtali við Frétta-
blaðið 5. september síðastliðinn að
það væri almennt viðhorf innan
lögreglunnar að nauðsynlegt væri
að breyta nálgunarbannslöggjöf-
inni á þann veg að hægt væri að
beita henni betur í heimilisofbeld-
ismálum.
Björn Bjarnason segir skyn-
samlegast að fylgjast náið með því
hvernig breytingar á lögum skila
sér gegn heimilisofbeldi á næstu
árum. „Ég flutti frumvarp um
breytingar á lögum varðandi
heimilisofbeldi á síðasta þingi auk
þess sem ég beitti mér fyrir nýjum
verklagsreglum hjá lögreglu
vegna heimilisofbeldis. Ég tel að
fá eigi reynslu af þessum breyt-
ingum, áður en gripið verður til
frekari breytinga á inntaki
íslenskra laga um þetta efni.“
magnush@frettabladid.is
Óþarft sérákvæði
um heimilisofbeldi
Formaður refsiréttarnefndar segir það hafa verið einróma álit nefndarinnar að
sérákvæði um heimilisofbeldi væri óþarft. Ágúst Ólafur Ágústsson telur sér-
ákvæði til bóta. Dómsmálaráðherra vill sjá hvernig lagabreytingin reynist.
STARFSMENN NEYÐARLÍNUNNAR Eins og greint var frá í Fréttblaðinu hefur tilkynn-
ingum barna til Neyðarlínunnar vegna heimilisofbeldis fjölgað umtalsvert. Deilt er
um hvernig best sé að bregðast við heimilisofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Laminn með eigin fæti
Bandarískur framhaldsskólanemi var
barinn með eigin gervifæti í Missouri-
fylki um seinustu helgi. Tveir menn
réðust á hann í bílageymslu, hrifsuðu
af honum fótinn og notuðu hana
sem barefli. Árásarmennirnir sitja í
varðhaldi og bíða dóms.
BANDARÍKIN
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
Segir sérákvæði
um heimilisofbeldi
til bóta.
BJÖRN
BJARNASON
Vill sjá hver
reynslan verður af
lagabreytingunum.