Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 72
32 10. september 2006 SUNNUDAGUR NFL Dhani Jones er stórstjarna í Bandaríkjunum en hann leikur í vörninni hjá liði Philadelphia Eagles sem hefur verið eitt af betri liðunum í NFL-deildinni síðustu ár. Hann hóf feril sinn hjá New York Giants og var hann í herbúðum félagsins í fjögur ár. Árið 2004 söðlaði hann um og gekk í raðir Eagles og strax á sínu fyrsta ári með liðinu fór hann alla leið í sjálfan Super- Bowl-leikinn. Þessi 29 ára leikmaður er orð- inn mjög reyndur og sjóaður í bransanum. Hann er þegar farinn að huga að endalokum ferilsins og hefur því stofnað fyrirtæki og svo vinnur hann einnig fyrir ESPN- sjónvarpsstöðina, þar sem hann er með eigin þátt, en hann hefur mik- inn hug á að halda áfram á því sviði þegar hann leggur skóna á hilluna. Nýtur þess að skoða heiminn Jones kom í sína fyrstu heimsókn til Íslands í sumar ásamt félaga sínum og hann var frekar lítið sof- inn eftir líflega nótt þegar undir- ritaður hitti hann á Nordica-hótel- inu upp úr hádegi. Hann bar sig engu að síður vel, var kurteisin uppmáluð en félagarnir voru enn brosandi eftir nóttina og áttu ekki orð til að lýsa næturlífinu á Íslandi. Svo sáttir voru þeir með ferðina að sú hugmynd var uppi að fjár- festa í íbúð á landinu. „Þetta er einn af kostunum við að spila í NFL-deildinni. Það er gefið langt frí og ég hef allan minn feril reynt að nýta tímann til að skoða heiminn og fer þá helst á staði sem eru öðru fólki fram- andi,“ sagði Jones yfirvegaður með kaffibolla í hendi en hann vakti óskipta athygli kvennahóps á staðnum enda stæðilegur karl- maður. Jones hefur alltaf notið mikill- ar kvenhylli en á þeim tíma sem hann lék með Giants komst hann á lista yfir fimmtíu eftirsóttustu piparsveina New York. Jones er enn konulaus og hann segir sér líka það vel. Ég spyr hann strax að því hvort það sé ekki ljúft líf að vera NFL-leikmaður og hvort hann vaði ekki í peningum. Legg líf mitt að veði í vinnunni „Ég hef það mjög gott, ég neita því ekki. Á móti kemur að ég vinn fyrir laununum mínum og það gera allir leikmenn í deildinni. Í hvert skipti sem ég fer út á völlinn legg ég líf og limi í hættu og sú hætta er alltaf til staðar að ég yfir- gefa völlinn án þess að geta geng- ið aftur. Lífið í NFL-deildinni hefur tekið sinn toll af mér og þótt núna séu nokkrir mánuðir síðan tíma- bilinu lauk er mér enn illt í löpp- unum. Ég er með stöðugan verk og ég læt mig hafa það,“ sagði Jones en hann fær tæpan milljarð í laun fyrir fimm ára samning við Eagles sem er mjög gott fyrir mann sem spilar hans stöðu. Handtekinn í Miami Jones er nokkur glaumgosi og honum líkar ljúfa lífið vel. Fyrr á árinu var hann að skemmta sér í Miami og lenti þá í því að vera handtekinn. Ekki gerði hann neitt stórkostlegt af sér heldur var hann handtekinn fyrir dansa úti á götunni og neita að hætta. „Æi, þarftu endilega að spyrja mig um þetta,“ sagði Jones bros- andi og tók utan um andlit sér. „Hvað get ég sagt? Mér finnst gaman að skemmta mér og það var mikið fjör þetta kvöld.“ Líf NFL-leikmannsins er sveip- að ákveðnum dýrðarljóma í sjón- varpsþáttum og kvikmyndum og sé mið tekið af þeim eru NFL-leik- menn stanslaust í svakalegum svallpartíum þar sem hver maður hefur fjórar konur upp á arminn. Það er ekki annað hægt en spyrja Jones að því hvort þetta sé svona í raunveruleikanum? Það eru villt partí „Það eru vissulegu partí og stund- um mjög villt partí. Það stunda samt ekki allir þennan gleðskap og það eru helst ungu og óreyndu mennirnir sem eru duglegir að skemmta sér. Eftir ákveðinn tíma þá áttar maður sig á því að ef maður ætlar að endast í boltanum þá verður maður að passa vel upp á sig. Ég var nokkuð duglegur að mæta í partí á mínum yngri árum en læt það vera nú. Hvað varðar þessa ímynd þá á hún við nokkur rök að styðjast en er heldur mikið ýkt samt,“ sagði Jones alvarlegur, en það er ekki bara glansmynd sem er brugðið upp af NFL-leik- mönnum því í þættinum Playma- kers, sem Sýn sýndi á sínum tíma var dregin upp mjög dökk mynd af leikmönnum í NFL-deildinni. Þeir áttu að vera á sterum, í eit- urlyfjum og læknar liðanna þar að auki gerspilltir menn sem hugs- uðu eingöngu um hag félagsins en skeyttu í engu um heilsu leik- mannanna. Aðeins ein þáttaröð var framleidd en NFL kom í veg fyrir að önnur yrði framleidd. Einhverjir í neyslu og á sterum „Það eru líka dökkar hliðar. Ekki spurning. Rétt eins og í daglega lífinu eiga menn miserfitt með að fóta sig og eflaust eru til menn í deildinni sem neyta stera og eru í eiturlyfjum. Það er alls staðar þannig, líka hjá venjulega fólki sem vinnur í banka. Ég hef enga sérstaka skoðun á þessum þætti en hann dregur ekki upp jákvæða mynd af okkur. Svo mikið er víst,“ sagði Jones. Þessi magnaði varnarmaður komst eins og áður segir í Super- Bowl árið 2004 en því miður fyrir hann tapaðist leikurinn. Hann von- ast til að komast aftur í úrslita- leikinn áður en hann hættir. „Það var ótrúleg upplifun að fara í SuperBowl. Öll vikan var eins og ævintýri en tapið gerir það að verkum að maður horfir ekki með eins jákvæðum huga til baka. Ég vil frekar horfa fram á veginn og reyna að komast þangað aftur,“ sagði Jones en hvað ætlar hann að spila lengi? „Ég veit það ekki. Ég mun samt passa mig á að spila ekki of lengi og mun hlusta á líkamann þegar hann segir mér að nú sé nóg komið. Ég vil halda heilsu eftir að ferlin- um lýkur, njóta lífsins og uppfylla aðra drauma eins og að vinna áfram í sjónvarpi,“ sagði Dhani Jones en hann stefnir á að heim- sækja Ísland aftur bráðlega. henry@frettabladid.is VIÐ VINNUM FYRIR LAUNUNUM OKKAR NFL-stjarnan Dhani Jones segir í einkaviðtali við Fréttablaðið að lífið í NFL- deildinni sé ekki bara gleði og glaumur. Ferillinn hefur tekið sinn toll af þess- um 29 ára varnarmanni en í spjalli við Henry Birgi Gunnarsson ræðir hann opinskátt um partíin, glamúrinn, eiturlyfin og sterana sem margir leikmanna deildarinnar eru taldir nota í óhófi. JONES Flottur með slaufuna. Í VINNUNNI Dhani sést hér á vellinum með Philadelphia Eagles en hann fór með liðinu alla leið í SuperBowl fyrir aðeins tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES LÍKAR LJÚFA LÍFIÐ Dhani Jones er laus og liðugur og hefur engan áhuga á að stofna fjölskyldu á næstunni. Hann er duglegur að leika sér og mætir á flestar uppákomur þar sem hann er á gestalistanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES NFL Dhani Jones er öfundaður af mörgum karlmönnum enda er hann ekki bara leikmaður í hæsta gæðaflokki í vinsælustu íþrótt Bandaríkjanna heldur er hann einnig fjallmyndarlegur og konur slást um að komast á stefn- mót með honum og margar fræg- ar konur hafa sést úti á lífinu með Jones. Kynþokki Jones var undir- strikaður rækilega fyrir ári þegar hann var talinn meðal fimmtíu eftirsóttustu pipar- sveina heims að mati People- tímaritsins en flestir á þeim lista eru heimsþekktir leikarar og nægir þar að nefna nöfn eins og Tom Cruise og Brad Pitt. Þegar Dhani kom hingað til lands fyrr í sumar sletti hann rækilega úr klaufunum og aðspurður sagði hann íslenskt kvenfólk vera gullfallegt og sér að skapi. Á meðan undirritaður tók við- tal við Jones var íslenska kvenna- landsliðið á leið út af hótelinu og niður á Laugardalsvöll þar sem stelpurnar voru að fara að spila landsleik. Jones snarsnerist í sæti sínu er hann sá stelpurnar koma og var augljóslega ánægð- ur með það sem hann sá. Hann sagðist vera sérstaklega hrifinn af dökkhærðum stelpum og markvörðurinn Guðbjörg Gunn- arsdóttir greip auga hans fljótt. Hann kallaði á Guðbjörgu er hann gekk út en hún horfði á hann furðulostin og hélt förinni áfram án þess að svara. - hbg Dhani Jones hefur allt sem þarf: Einn eftirsóttasti piparsveinn heims HANN ER VINSÆLL OG VEIT AF ÞVÍ... Dhani er eftirsóttir hjá kvenfólkinu. Hann sést hér með hinni íðilfögru leikkonu Shannon Elisabeth sem hefur meðal annars leikið í Amercian Pie-myndunum. NFL Dhani Jones sló rækilega í gegn á NFL-sjónvarpsstöðinni árið 2003 þegar hann kom ávallt fram með slaufu, en karlmenn sjást æ sjaldnar með slaufur þessa dagana. Svo góð viðbrögð fékk Jones við slaufunum að hann byrjaði að hann sínar eigin slaufur og opnaði í kjölfarið verslunina „Five star bow ties“ þar sem eingöngu eru seldar slaufur sem Jones hannar. „Ég hafði aldrei spáð í að setja upp slaufu þar til vinur minn manaði mig til þess að mæta með slíkt um hálsinn. Hann var nýbúinn að berjast við krabba- mein og ég ákvað að bera slaufuna og votta þannig baráttu hans virðingu mína,“ sagði Jones. - hbg Hæfileikaríkur strákur: Hannar slaufur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.