Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 24
ATVINNA
10. september 2006 SUNNUDAGUR4
Sölufulltrúar óskast
Remax heimili og skip óska eftir 2—3 reyndum
sölufulltrúum til starfa ásamt starfandi sölu-
fulltrúum í nýju útibúi miðsvæðis í Reykjavík.
Áhugasamir sendi inn umsóknir í gegnum
tölvupóst: stefanp@remax.is eða pantið viðtal
hjá Huldu í síma 420 0800.
533412 FASTEIGNAMIÐLUN Fr 14.7.6 12:05
FÖRÐUNARFRÆÐINGUR
KYNNING & SALA
Við óskum eftir að ráða annars vegar förðunarfræðing og hins
vegar einstakling til kynningar og sölu á L'Oréal snyrtivörum.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi jákvætt viðmót og reynslu af sambærilegu
starfi. Afburða þjónustulund og ánægja af því að vinna með fólki er skilyrði.
Um hlutastarf er að ræða, en fer eftir önnum. Við óskum eftir
umsóknum frá höfuðborgarsvæðinu sem og af norðurlandi og
æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendið umsóknir og fyrirspurnir til Maríu Jónu
Samúelsdóttur á netfangið maria@globus.is eða til Globus,
Skútuvog 1F, 104 Reykjavík, merkt Maríu Jónu.
Umsóknafrestur er til 17. september n.k.
Sálfræðingur óskast
í fullt starf á meðferðarheimili Götusmiðjunnar.
Götusmiðjan er staðsett á Akurhóli rétt við Hellu í Rangárþingi.
Húsæði á staðnum getur fylgt starfi nu. Götusmiðjan er sérhæft
meðferðarheimili fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára með
vímuefnavanda.
Upplýsingar veitir Guðmundur Týr í síma 566-6100 milli
9 og 5 alla virka daga. Einnig er hægt að senda umsóknir
eða fyrirspurnir á: mummi@gotusmidjan.is
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Framtíðarstörf hjá Norðuráli
Norðurál óskar eftir að ráða röskt og áhugasamt starfsfólk
til starfa í vaktavinnu í framleiðsludeild
Norðurál
Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér að framleiðslu-
geta álversins verður aukin í 260.000 tonn á næsta ári. Hjá okkur starfa nú um 380
manns að margvíslegum verkefnum og gert er ráð fyrir því að starfsfólki fjölgi enn
frekar næsta ári.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 22. september
n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.is,
sent umsókn þína á netfangið: umsókn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina, merkta: Ný störf
Trúnaður
Við förum með umsókn þína og allar persónulegar
upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður
svarað.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Rakel Heiðmarsdóttir,
framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 430 1000.
Við leitum að fólki sem býr yfir metnaði og lipurð
í samskiptum og hefur vilja til að takast á við krefjandi
verkefni.
Um framtíðarstörf er að ræða og æskilegt er að
umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Hvað er í boði?
● Góður aðbúnaður hjá fyrirtæki í mikilli sókn
● Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks
● Mikið atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun
að hluta árangurstengd
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Snyrting, neglur, förðun
og fótaaðgerðir.
Nú gefst þér tækifæri á að leigja aðstöðu þar sem þú getur
starfað alfarið í þína þágu. Um er að ræða nýja stofu á
besta stað í bænum þar sem öll þægindi eru fyrir hendi.
Ýmsir möguleikar eru í boði.
Opnunatíminn er sveigjanlegur og mikið viðskiptavinafl æði
er nú þegar fyrir hendi. Allar upplýsingar gefur Svana
gsm:8669512. Dekurhús didrix.