Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 32
ATVINNA
10. september 2006 SUNNUDAGUR12
Um starfið
Blikksmíði er löggilt iðn-
grein. Blikksmiðir vinna
bæði innan og utan dyra. Í
blikksmiðju smíða þeir alla
hluti loftræstikerfis og setja
síðan upp á byggingarstað.
Utanhúss vinnur blikksmið-
ur við að leggja klæðningar
á þök og veggi, auk þess að
smíða og ganga frá þak-
brúnum og öðrum vanda-
sömum byggingarhlutum.
Þeir nota flóknar skurðar-,
beygju- og völsunarvélar
með tölvustýringu sem oft
taka á móti teikningum úr
tölvu. Blikksmiðir kunna
skil á virkni tölvustýrðs
búnaðar í loftræstikerfum
og koma fyrir skynjara og
nema fyrir hita- og rakastig
á réttum stöðum. Ný tækni
krefst þess að blikksmiðir
búi yfir haldgóðri þekkingu
á tölvum, auk góðrar þekk-
ingar á málmum, vélum og
verkfærum sem þeir vinna
með.
Um námið
Nemandi í blikksmíði byrjar
á því að taka fjórar annir í
skóla, samtals 81 einingu,
sem er sameiginlegur fyrri-
hluti öllum þeim sem ætla í
málmiðnanám. Hafa ber í
huga að sumir skólar kenna
bara fyrrihluta námsins. Að
þessu loknu hefst sérnám í
blikksmíði sem tekur tvær
annir, samtals um 40 eining-
ar. Nám í blikksmíði tekur
því fjögur ár, þar af eru sex
annir í skóla og 15 mánuðir í
starfsþjálfun hjá fyrirtæki í
faginu. Það er alls um 120
einingar og lýkur með
sveinsprófi og fær sá sem
stenst það heimild til þess að
bera starfsheitið blikksmið-
ur.
Helstu námsgreinar
Það sem kennt er í skólanum
eru sérgreinar eins og
grunnteikning, efnisfræði,
handavinna, rennismíði,
plötuvinna, aflvélafræði,
iðnteikning, tölvuteikning,
umhverfisfræði, stýritækni,
tölvustýrðar vélar og loft-
ræstingar. Auk sérgreina
eru almennar bóklegar
greinar eins og íslenska,
enska, danska og stærð-
fræði. Verkleg þjálfun og til-
sögn fer fram hjá fyrirtæki í
faginu.
Framhaldsmenntun
Margir möguleikar eru á
framhaldsnámi að loknu
sveinsprófi t.d. meistara-
námi, sem veitir réttindi til
að reka eigið fyrirtæki og að
taka nema á námssamning.
Einnig er hægt að læra iðn-
fræði eða taka tæknistúd-
entspróf og hefja nám í
tækni- eða verkfræði við
háskóla hérlendis eða erlend-
is að uppfylltum inntökuskil-
yrðum viðkomandi skóla.
Vinna bæði innan
dyra og utan
Meðal þess sem blikksmiðir fást við er að leggja klæðningar á þök og
veggi. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HJÖRTUR
Aflaðu þér upplýsinga um fyrirtækið og starfsemi þess, til dæmis í
fyrirtækjaskrám og ársskýrslu.
Undirbúðu nokkrar spurningar sem þú vilt fá svör við. Hafðu í
huga að viðtalið snýst ekki eingöngu um það hvort viðmælandanum
líst á þig heldur einnig hvernig þér líst á fyrirtækið og yfirmenn þess.
Vertu stundvís. Útlitið er það fyrsta sem spyrjandinn tekur eftir.
Vertu snyrtilega klædd/ur.
Rökstyddu svör þín og svaraðu af einlægni frekar en að reyna að
þóknast viðmælandanum. Vertu þú sjálf/ur og búðu þig undir að lýsa
kostum þínum.
Gott er að rifja upp fyrri reynslu af atvinnuviðtali. Er þar eitthvað
sem þú getur lært af?
Búðu þig undir að svara erfiðum spurningum á jákvæðan hátt.
Vertu jákvæð/ur og áhugasöm/samur um starfið sem þú ert að
sækja um.
(www.am.is)
Atvinnuviðtal undirbúið
Hvernig verður maður... blikksmiður?
Bílaverkstæði
Leitað er að bifvélavirkjum, vélvirkjum og einstaklingum
til viðgerða á flutningatækjum og búnaði þeirra.
Um fjölbreytt starf er að ræða í viðhaldi og viðgerðum
á bifreiðum og flutninga og afgreiðslutækjum ásamt
búnaði.
Rafmagnsverkstæði
Leitað er að rafvirkjum til starfa á þjónustudeild.
Um fjölbreitt starf er að ræða við nýlagnir,
uppsetningu á tækjabúnaði tengdum eldsneytisafgreiðslu,
viðhaldi búnaðar og almenn rafvirkjastörf. Starfsvettvangur
er allt landið, æskilegt er að starfsmaður geti farið út á land
þegar þannig háttar.
Járniðnaðarmenn / suðumenn
Leitað er að járniðnaðarmönnum og suðumönnum
til almennrar járnsmíða- og lagnavinnu á verkstæði
og utan verkstæðis.
Um fjölbreytt starf er að ræða í viðhaldi, nýsmíði og
uppsetningu tækja. Starfsvettvangur er allt landið,
æskilegt er að starfsmaður geti farið út á land þegar
þannig háttar.
Til greina kemur að ráða nema sem búnir eru með
grunnnám í allar greinar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Árni Ingimundarsson 550 9940
Birgir Pétursson í síma 550-9957
Laus störf hjá
Olíudreifingu ehf.
Olíudreifing ehf. sér um dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir
Olíufélagið ehf. og Olíuverzlun Íslands hf.
Félagið hefur starfað frá 1. janúar 1996.
Sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.oliudreifing.is