Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 12
10. september 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Hjartans þakkir fyrir sýndan hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Bergs Ó. Haraldssonar
Sérstakar þakkir færum við Karitaskonum fyrir þeirra
hjálp, hlýhug og virðingu sem þær sýndu okkur á
erfiðum tímum. Guð blessi ykkur öll.
Kristín L. Valdemarsdóttir
Frosti Bergsson Halldóra M. Mathiesen
Valdimar Bergsson Helga M. Geirsdóttir
Anna Rós Bergsdóttir Haraldur Guðfinnsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hlýhug og samúð vegna fráfalls
Magdalenu Albertsdóttur
hjúkrunarfræðings, Hringbraut 23,
Hafnarfirði,
og virðingu sýnda minningu hennar.
Fyrir hönd systkina og annara vandamanna.
María Albertsdóttir
Árni Gunnlaugsson.
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Hallfríðar Jónsdóttur
frá Bæjum, Snæfjallaströnd.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki G-II Hrafnistu
Reykjavík fyrir umhyggju og vinarhug.
Margrét Dóra Elíasdóttir Sigurður Garðarsson
Elías Halldór Elíasson Elísa Hjördís Ásgeirsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislegur elskaður eiginmaður minn,
faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, tengdasonur,
afi og bróðir okkar,
Ingi Rúnar Ellertsson
skipstjóri, frá Eystri-Reyni, Innri-Akraneshreppi,
sem lést 1. september 2006, verður jarðsunginn
12. september næstkomandi í Háteigskirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Líknardeild LSH í
Kópavogi.
Fjóla Sigurðardóttir
Marteinn Jón Ingason
Kristín Erla Einarsdóttir
Aðalsteinn Einarsson Emi Uda
Guðjón Vilhelm Silvía Færseth
Angela G. Eggertsdóttir
Agnes Baldvinsdóttir
Angela G. Guðjónsdóttir, Einar Grétar Björnsson
Elva Katrín, Heiðar Logi, Sædís Ósk, Kamilla Birta, Bjartur
Logi, Selma Björg, Alexander Kótaro, Benoní Einar, Halla
Líf, Fjóla Dís og systkini hins látna.
IAN FLEMMING FÆDDIST Á
ÞESSUM DEGI 1888
Eldri konur eru bestar
því þegar þær eru að
gera það, halda þær að
það gæti verið síðasta
skiptið.
Skapari James Bond verður seint
sagður hafa vegsamað konur í
bókum sínum.
MERKISATBURÐIR
1846 Elias Howe er veitt einkaleyfi
á handknúinni saumavél
sinni.
1908 Fyrstu almennu leynilegu
kosningarnar til alþingis
fara fram. Kosningaþátttaka
er meiri en nokkru sinni
eða 75,5 prósent.
1908 Samþykkt er í
þjóðaratkvæðagreiðslu
að lögleiða bann við
innflutningi áfengra
drykkja. Áfengisbannið var
afnumið í febrúar 1935.
1813 Bandarísk herlið sigra
Breta í bardaganum við
Erie-vatn.
1950 Minnisvarði um Bjarna
Sívertsen riddara er
afhjúpaður í Hellisgerði.
1977 Fallöxi er notuð í síðasta
sinn í Frakklandi til að taka
fanga af lífi.
Á þessum degi árið
1981 var hinni risastóru
mynd Guernica eftir
listamanninn Pablo
Picasso skilað til Spánar.
Hún hafði verið í láni í
Bandaríkjunum í fjóra
áratugi. Picasso málaði
myndina árið 1937
og var undir sterk-
um áhrifum frá árás
Þjóðverja á baskneska
þorpið Guernica, sem talið er að hafi verið gerð
til stuðnings verðandi einræðisherrans Francos í
borgarastyrjöldinni á Spáni.
Picasso var hneykslaður á grimmdarlegri árásinni
og gerði hana því að meginefni myndar sinnar sem
hann lauk á aðeins þremur vikum. Myndin er 3,5
sinnum 7,7 metrar að
stærð og lýsir mikilli
skelfingu þorpsbúa.
Hún er máluð í svörtu,
hvítu og gráu og sýnir
martraðarkenndar
ímyndir sem vekja fólk
til umhugsunar um
óhugnað stríðsins.
Árið 1939 var myndin
send til New York á
sýningu. Síðar sama
ár braust síðari heimsstyrjöldin út og Picasso bað
um að Guernica og önnur verk hans yrðu geymd í
Bandaríkjunum uns stríðinu lyki. Eftir stríð var flest-
um verkanna skilað til Evrópu, en þó ekki Guernicu,
sem að ósk listamannsins átti að geyma í Banda-
ríkjunum þar til lýðræði yrði endurreist á Spáni.
ÞETTA GERÐIST: 10. SEPTEMBER 1981
Guernicu Picassos skilað
GUERNICA VEGGMYND PABLO PICASSO
AFMÆLI
Gerður G.
Bjarklind
útvarpskona
er 64 ára.
Séra Þorvaldur Víðisson tók
við starfi æskulýðsfulltrúa í
Dómkirkjunni þann 1. sept-
ember en hann var vígður
prestur í Vestmannaeyjum
árið 2002. Þorvaldur er ekki
ókunnugur starfinu í Dóm-
kirkjunni því þar starfaði
hann í eitt ár eftir að hann
lauk embættisnámi frá
Háskóla Íslands. „Það er
mjög notaleg tilfinning að
vera kominn til baka og
pínulítið eins og að hafa
verið skiptinemi annars
staðar,“ segir Þorvaldur og
kímir. „Hér er enn sama
starfsfólkið og gott að vera.
Nú er ég líka kominn með
meiri reynslu sem á vonandi
eftir að nýtast mér vel.“ Þor-
valdur segir það þó vera
mikil forréttindi að hafa
fengið að vera í Vestmanna-
eyjum. „Þar eru stuttar
vegalengdir og kirkjan í lyk-
ilhlutverki í samfélaginu,
auk þess sem söfnuðurinn
er ofsalega skemmtilegur
og presturinn alls staðar
velkominn.“ Að sögn Þor-
valdar er mikið starf fram-
undan í Dómkirkjunni en
ætlunin er að útvíkka hlut-
verk æskulýðsfulltrúans við
kirkjuna.
„Dómkirkjan ætlar að
skilgreina betur hlutverk
sitt og ábyrgð í miðborg-
inni. Ég er nú einn af mið-
borgarprestunum þar sem
prestar Dómkirkjunnar eru
einmitt miðborgarprestar.
Við ætlum ekki að stefna í
nein gömul hjólför heldur
skilgreina starfið út frá
þeirri þörf sem er í dag. Til
dæmis er ekki eins mikið af
unglingum ráfandi um mið-
borgina um helgar eins og
áður var og má þar meðal
annars þakka góðu starfi
miðborgarprests, félags-
þjónustu, lögreglu, for-
eldrafélögum í skólum og
ýmsum félagasamtökum og
hreyfingum.“ Þorvaldur
segir að meiningin sé að
gera Dómkirkjuna svolítið
mynduga og taka þátt í því
að gera gott starf enn betra
og taka þá ábyrgð sem
kirkjan eigi að axla sem
miðborgarkirkja.
Dómkirkjan á samstarf
við öll skólastigin í miðborg-
inni allt frá leikskólunum og
upp í Menntaskólann í
Reykjavík en það fellur í
hlut Þorvaldar að rækta það
starf. „Þetta samstarf hefur
gengið mjög vel undanfarin
ár en við erum með því að
fylgja eftir skírnarfræðslu
safnaðarins og komum inn í
lífsleikniverkefni á þeim
forsendum. Við viljum ýta
undir það að borin sé virð-
ing fyrir trúarbrögðum
okkar sem annarra og koma
þannig í veg fyrir fordóma
en þar er fræðsla lykil-
atriði.“
Þorvaldur segir að þrátt
fyrir að það starfi nú þrír
prestar við Dómkirkjuna þá
sé hann fyrst og fremst
æskulýðsfulltrúi með
prestsvígslu og sér því um
ýmsar athafnir innan kirkj-
unnar eins og skírnir, gift-
ingar og messur. „Mér
finnst það ekkert lykilatrið-
ið hvað staðan heitir heldur
skiptir það öllu máli hvað
maður gerir,“ segir hinn nýi
prestur í Dómkirkjunni og
bætir því við að lokum að
allir séu velkomnir til þátt-
töku í öflugu starfi Dóm-
kirkjunnar.
ÞORVALDUR VÍÐISSON: TEKUR VIÐ STARFI ÆSKULÝÐSFULLTRÚA Í DÓMKIRKJUNNI
Snýr aftur reynslunni ríkari
KOMINN HEIM Þorvaldur Víðisson er ánægður með að vera kominn aftur til starfa við Dómkirkjuna en þar
vann hann í eitt ár eftir að hann lauk námi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Barði
Jóhannsson
tónlistarmað-
ur er 31 árs.