Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SUNNUDAGUR
10. september 2006 — 242. tölublað — 6. árgangur
��� ���� ����������������� ����� � ����� ������ ������������ ��������
VEÐRIÐ Í DAG
ALLT ATVINNA
Stútfullt blað af
atvinnuauglýsingum
atvinna
Í MIÐJU BLAÐSINS
BORGENGIÐ FAGNAR Áhöfn borsins var að vonum stóránægð með árangurinn. Hér stilla meðlimir hennar sér upp fyrir framan
myndavélina, hver með litla kampavínsflösku. Um hundrað manns voru viðstaddir þegar borinn braut sér leið í gegn um seinasta
berghaftið og brutust mikil fagnaðarlæti út þegar hann stöðvaði. Borinn verður nú sendur úr landi í önnur verkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
KÁRAHNJÚKAR Risabor Impregilo
boraði sig í gegnum síðasta berg-
haftið í aðrennslisgöngum Kára-
hnjúkavirkjunar um ellefuleytið í
gærmorgun. Þar með lauk tveggja
ára og fimmtán kílómetra löngu
ferðalagi borsins undir Fljóts-
dalsheiði og skeikaði aðeins um
fimmtán sentimetra.
„Þetta er mjög stór áfangi
fyrir Impregilo,“ segir Ómar
Valdimarsson, talsmaður Impreg-
ilo á Íslandi. „Nú þegar þessum
áfanga er lokið eru það ekki nema
um tveir kílómetrar sem á eftir
að bora í allri þessari jarðganga-
gerð fyrir aðrennslisgöngin. Þar
af leiðandi er þetta ansi stór
dagur.“
Um hundrað manns voru við-
staddir þegar borinn fór í gegn. Af
öryggisástæðum var honum ekki
ýtt af fullu afli seinustu metrana
og tók það um klukkustund að bora
í gegnum seinasta haftið sem var
tæpir tveir metrar að þykkt. Þar
sem borinn var stöðvaður eru um
hundrað og fimmtíu metrar upp á
yfirborðið.
Ómar segist hafa verið í göng-
unum þegar borinn braut seinasta
haftið. „Það var tekið mjög vel á
móti þeim mönnum sem komu í
gegnum síðasta berghaftið. Við
merktum stóran hring þar sem við
ætluðum bornum að koma í gegn
og honum skeikaði um fimmtán
sentimetra á þessari fimmtán kíló-
metra leið. Við teljum það ansi
gott,“ segir hann.
Borinn, sem kallast TBM1,
verður nú tekinn í sundur og send-
ur úr landi. Hann fer í önnur verk-
efni eftir uppherslu hjá framleið-
andanum. Borarnir tveir sem eru
eftir, TBM2 og TBM3 bora hvor á
móti öðrum og eiga eftir um
tveggja kílómetra leið. - sþs
Skeikaði aðeins um
fimmtán sentimetra
Risabor Impregilo braut sér leið gegnum seinasta haftið í aðrennslisgöngum
Kárahnjúkavirkjunar í gær. Á fimmtán kílómetra leið skeikaði aðeins um
fimmtán sentimetra. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar áfanganum var náð.
Slógu í gegn í
Svíþjóð
Förðunarfræðing-
urinn Margrét Jónas-
dóttir og Nonni Quest
fengu góða umsögn
í Extrabladet.
FÓLK 38
Skáldlegt líf í landa-
mæralausum heimi
Skáldin Jesse Ball og
Þórdís Björnsdóttir
skrifuðu bókina
Vera & Linus í
sameiningu.
BÆKUR 26
Draumaheimar Höllu
Halla Gunnarsdóttir myndlistar-
kona hefur á stuttum tíma vakið
athygli bæði í leikhúsi og gallerí-
um.
VIÐTAL 18
Valur bikarmeistari
Valskonur urðu í gær bikarmeist-
arar í knattspyrnu er þær unnu
Breiðablik í vítaspyrnukeppni.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði
þrennu fyrir Val en eftir venjulegan
leiktíma var staðan 3-3.
ÍÞRÓTTIR 30
48%
67%
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í maí 2006.
Íslendingar 18-49 ára
Meðallestur á
tölublað
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.40
30
50
70
60
BJARTVIÐRI EYSTRA Í dag
verður yfirleitt 5-13 m/s, hvassast
norðvestan til og síðan vestan til
þegar líður á síðdegið. Skúrir um
sunnan og vestanvert landið en
bjartviðri norðaustan og austan til.
Hiti 9-15 stig, hlýjast á Áusturlandi.
VEÐUR 4
BANDARÍKIN Kona á fertugsaldri
hefur verið fundin sek um að slá
aðra konu ítrekað í höfuðið með
dauðum chihuahua-hundi. Konan,
Lisa Hopfer, gæti átt yfir höfði
sér allt að átján mánaða fangelsis-
dóm fyrir árásina. Þetta kemur
fram á vef bandaríska dagblaðs-
ins St. Lois Today.
Í réttarhöldunum hélt fórnar-
lamb árásarinnar því fram að
Hopfer hefði hringt dyrabjöllu
hennar margoft og ruðst inn
þegar hurðin var opnuð, vopnuð
hundinum. Upphófust þá
barsmíðarnar og var hundinum
slegið í höfuð konunnar að
minnsta kosti þrjátíu sinnum. - sþs
Líkamsárás í Bandaríkjunum:
Barði konu með
dauðum hundi
FLÓRÍDA, AP Geimskutlunni
Atlantis var loksins skotið
á loft í gær með sex geim-
fara innanborðs. Leiðang-
urinn heldur til Alþjóðlegu
geimstöðvarinnar en þetta
er fyrsta geimskotið þang-
að frá því að geimskutlan
Columbia fórst á leið þaðan
til jarðar í febrúar árið
2003. Sjö geimfarar fórust
í slysinu sem átti sér stað
sextán mínútum fyrir áætl-
aðan lendingartíma.
Tilgangur leiðangurs-
ins er að halda áfram uppbyggingu geimstöðvarinn-
ar sem hefur legið niðri í þau þrjú og hálft ár sem
liðin eru frá Columbiu-slysinu.
Orsök slyssins var sú að brot af harðnaðri ein-
angrunarfroðu féllu af ytra byrði eldsneytistanks
geimskutlunnar þegar
hún tókst á loft og sködd-
uðu væng skutlunnar.
Síðan þá hafa sérfræðing-
ar NASA, geimvísinda-
stofnunar Bandaríkjanna,
unnið að því að koma í veg
fyrir að slíkt slys geti
hent aftur.
Atlantis flytur einn
þyngsta farm sem hefur
verið skotið út í geim og
vegur 17,5 tonn. Þar á
meðal eru tvær sólarraf-
hlöðuplötur sem munu
framleiða raforku fyrir stöðina.
Áætlað er að senda fjórtán leiðangra í viðbót til
að ljúka smíði geimstöðvarinnar fyrir árið 2010.
Mun NASA þá snúa athygli sinni að tunglinu og
mars. - sdg
Geimskutlunni Atlantis var skotið á loft með sex geimfara innanborðs í gærdag:
Farmurinn vegur 17,5 tonn
KOMIN Á LOFT Tilgangur leiðangursins er að halda áfram
uppbyggingu Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. MYND/AP
LÍBANON „Heilu fjölskyldurnar
höfðu brunnið inni í bílum þar
sem þær voru að reyna að flýja af
staðnum. Sjúklingar sem höfðu
bjargast úr húsarústum lágu
kannski á sjúkrabörum í sjúkrabíl
þegar þeir urðu fyrir spreng-
ingu,“ segir Jón Björgvinsson
kvikmyndagerðarmaður.
Jón hefur verið í Líbanon í sjö
vikur og sent erlendum fréttastof-
um myndir af átökunum við
Ísraelsmenn. Hann segir að
sprengingarnar hafi verið
gríðarlegar og eyðileggingin í
þessu stutta stríði hafi verið
skelfileg. - ghs /sjá síðu 14
Jón Björgvinsson í Líbanon:
Myndaði stríðið
í sjö vikur
JÓN BJÖRGVINSSON Segir eyðilegging-
una í þessu stutta stríði skelfilega.
HRYÐJUVERK Tveir glæpir voru
framdir með hryðjuverkaárárun-
um á Bandaríkin þann 11. sept-
ember árið 2001 að sögn
Mohammads Khatami, fyrrverandi
Íransforseta.
Þúsundir
almennra
borgarar voru
myrtir og
glæpurinn síðan
sagður framinn í
nafni múhameðs-
trúar.
Khatami hélt
ræðu á ráðstefnu
samtaka sem
vinna að bættum samskiptum milli
Bandaríkjanna og íslamskra ríkja
þar sem hann sagði afleiðingu
árásanna vera ofsahræðslu við
íslamska siði, menningu og trú.
Hvatti hann bandaríska múslima
til að sýna löndum sínum fram á
hið sanna um trú sína. - sdg
Afleiðingar hryðjuverkanna:
Hræðsla við
íslamska trú
MOHAMMAD
KHATAMI
ÍSGERÐUR ELFA GUNNARSDÓTTIR
Er á fullu í tökum fyrir
Stundina okkar
Eddie Murphy fyndnastur
FÓLK 38