Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 4
4 10. september 2006 SUNNUDAGUR
GENGIÐ 08.09.2006
Ölvaðir í fangageymslum
Fangageymslur lögreglunnar í Reykja-
vík voru þéttsetnar aðfaranótt laugar-
dags. Flestir sátu þar vegna ölvunar.
Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur í
höfuðborginni sömu nótt.
LÖGREGLUFRÉTT
DANMÖRK Ferðamálaráð Kaup-
mannahafnar hyggst hrinda af
stað átaki til að fjölga einhleypum
ferðamönnum í borginni. Segir
talsmaður ráðsins í viðtali við Pol-
itiken í gær að einhleypt fólk ferð-
ist minna en þeir sem eru lofaðir,
þar sem þeir hafi engan til að upp-
lifa ferðalagið með.
Því sé ætlunin að bjóða
þessum hópi upp á sérsniðna
dagskrá þar sem það fær
tækifæri til að njóta borgarinnar
í félagi við aðra einhleypa. - ks
Átak í Kaupmannahöfn:
Fleiri einhleypa
ferðamenn
Ekkert blað?
550 5000
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja ef blaðið berst ekki.
- mest lesið
SVÍÞJÓÐ Það fer ekki á milli mála
hvað er aðalkosningamálið í huga
sænskra kjósenda fyrir þingkosn-
ingarnar næstkomandi sunnudag,
að minnsta kosti ef marka má þá
kjósendur sem blaðamaður Frétta-
blaðsins hitti á kosningafundi í
miðbæ Malmö í gær, þar sem fer-
eykið sem fer fyrir kosningabanda-
lagi borgaralegu flokkanna talaði.
Þau Fredrik Reinfeldt, formað-
ur Hægriflokksins og forsætisráð-
herraefni „samfylkingar“-flokk-
anna fjögurra sem stefna að því að
fella hina þaulsætnu ríkisstjórn
jafnaðarmanna, Göran Hägglund,
formaður Kristilega demókrata-
flokksins, Maud Olofsson, formað-
ur Miðflokksins og Lars Leijon-
borg, formaður Þjóðarflokksins,
komu því skýrt til skila á fundin-
um, að atvinnumálin gnæfa yfir
önnur málefni kosningabaráttunn-
ar. Og sá boðskapur virðist komast
vel til skila hjá þeim á að giska
fimm hundruð Malmö-búum sem á
hlýddu á miðbæjartorginu Stor-
torget í blíðskaparveðri á þessum
laugardagseftirmiðdegi.
Áheyrendur sem Fréttablaðið
talaði við voru á einu máli um að
þetta væri það málefni sem öðru
fremur gerði það brýnt að af
stjórnarskiptum verði eftir 17.
september.
Atvinnuleysi er mjög mikið í
röðum innflytjenda í Svíþjóð. Sam-
kvæmt opinberum tölum eru um
sex prósent landsmanna atvinnu-
laus, en eins og bent er á í ítarlegri
umfjöllun í nýjasta hefti brezka
vikuritsins The Economist, eru
sænsk stjórnvöld stórtæk í að fegra
atvinnuleysistölurnar, en það er
gert meðal annars með því að telja
ekki þá með sem farið hafa snemma
á eftirlaun, námsmenn sem frekar
vildu vera úti á vinnumarkaðnum
og fólk sem er í atvinnubótavinnu á
kostnað ríkisins. Grunsamlega hátt
hlutfall fólks sem er í langtíma-
veikindaorlofi er einnig talið vera í
vinnu. Fastlega er gert ráð fyrir að
þessi mál verði enn og aftur í
brennidepli er Göran Persson for-
sætisráðherra og Fredrik Reinfeldt
mætast í síðasta sjónvarpskapp-
ræðueinvíginu í sænska ríkissjón-
varpinu í kvöld.
Tölvunjósna-hneykslið svokall-
aða, sem setti hin eiginlegu kosn-
ingamál í skuggann í nýliðinni viku
og hrakti forsvarsmenn Þjóðar-
flokksins í mikla vörn, virðist ekki
ætla að hafa mikil áhrif á fylgi fylk-
inganna tveggja, ef marka má skoð-
anakannanir sem niðurstöður voru
birtar úr í gær. Í könnun sem gerð
var fyrir Dagens Nyheter hafa
borgaraflokkarnir nú um hálfs pró-
sentustigs fylgisforskot á vinstri-
flokkana. Í könnun sem birt var í
Svenska Dagbladet mælist vinstri-
fylkingin með örlítið forskot. Mun-
urinn á fylgi fylkinganna er í báðum
könnunum innan skekkjumarka.
Það er því eflaust ekki ofmælt, sem
Fredrik Reinfeldt lýsti yfir á Stóra
torgi í Malmö í gær: Allt stefnir í að
kosningarnar næsta sunnudag
verði þær mest spennandi sem
fram hafa farið í Svíþjóð í áratugi.
audunn@frettabladid.is
Atvinnumálin gnæfa yfir
önnur kosningamál
Fereykinu sem fer fyrir kosningabandalagi borgaralegu flokkanna fyrir þingkosningarnar í Svíþjóð var
klappað lof í lófa á kosningafundi í miðbæ Malmö í gær. Samkvæmt nýrri könnun hafa borgaraflokkarnir
um hálfs prósentustigs fylgisforskot á vinstriflokkana. Fréttablaðið var á fundinum.
Gösta Jigin,
Malmö-búi sem er
nýlega farinn á
eftirlaun, segir þá
einingu sem
fereykið hefur sýnt
í kosningabarátt-
unni helsta styrk
þess og til þess fallna að gera
horfurnar góðar á stjórnarskiptum.
Azad Amin, sem
mætti á kosninga-
fundinn ásamt tíu
mánaða gömlum
syni sínum, segir
líka að atvinnuleysi
sé erfiðasta
vandamálið sem
Svíar eigi við að stríða um þessar
mundir; jafnaðarmenn loki að
mestu augunum fyrir því og
borgaraflokkarnir hafi trúverðug-
ustu tillögurnar til úrbóta. Amin
segist hafa flutt til Svíþjóðar fyrir
23 árum, frá Kúrdahéruðunum í
Norður-Írak.
Fólkið á götunni
FEREYKIÐ Fredrik Reinfeldt, Göran Hägg-
lund, Maud Olofsson og Lars Leijonborg
töluðu á fundinum í Malmö í gær.
FJÖLMENNI Á ÚTIFUNDI Um fimm hundruð manns hlýddu á frambjóðendur.
Kosningar í Svíþjóð
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
U
Ð
U
N
N
LÖGREGLA Stofnun sérstakrar kyn-
ferðisbrotadeildar er á meðal þess
sem lagt er til í nýju skipuriti um
löggæslu á höfuðborgarsvæðinu
sem er nú í umsagnarferli hjá
dómsmálaráðuneytinu og ríkislög-
reglustjóra.
Að sögn Stefáns Eiríkssonar,
lögreglustjórans í Reykjavík, er
þetta ein af mörgum hugmyndum
sem verða kynntar þegar
umsagnarferli lýkur. „Þetta
tengist inn á þær skipulagsbreyt-
ingar sem verða um næstu
áramót þegar embætti lögreglu-
stjórans í Reykjavík og sýslu-
manna í Kópavogi og Hafnarfirði
verða sameinuð í lögreglustjóra-
embættið á höfuðborgarsvæð-
inu.“ - sdg
Nýtt skipurit í umsagnarferli:
Sérstök deild
kynferðisbrota
VERSLUN Þrír íhuga kaup á rekstri
Lóns á Þórshöfn, en eigendur
verslunarinnar óskuðu eftir að
hún yrði tekin til gjaldþrota-
skipta fyrir helgi. Fyrirtækið
Samkaup er meðal þeirra sem
sýnt hafa áhuga.
Lónið er eina matvöruversl-
unin á Þórshöfn og hefur auk
þess rekið bensínstöð og brauð-
gerð. Olíufélagið mun taka við
rekstri bensínstöðvarinnar og
verður hún opin áfram.
„Það hefur ekkert tilboð bor-
ist enn, en þrír hafa sýnt áhuga
á kaupum,“ segir Hreinn Páls-
son, lögmaður og skiptastjóri
Lóns. Hann segir að Samkaup sé
í þeim hópi og að fulltrúar fyrir-
tækisins hafi verið á Þórshöfn á
föstudag að skoða húsakost og
aðstæður. Þá hafi aðilar í
nágrenni Þórshafnar einnig
sýnt áhuga á að kaupa rekstur-
inn.
Hreinn segir stefnt að því að
halda versluninni opinni næstu
daga. Ef verslunin lokar verður
langt fyrir íbúa Þórshafnar að
sækja matvöru því næsta mat-
vöruverslun er á Vopnafirði, í
um sjötíu kílómetra fjarlægð.
„Það er von okkar að sterkir
aðilar komi að rekstrinum og
það sem fyrst,“ segir Björn Ingi-
marsson sveitarstjóri. - öhö
Eina matvöruverslunin á Þórshöfn gjaldþrota:
Samkaup skoða kaup á Lóni
SVÍÞJÓÐ Sænskur karlmaður á
fertugsaldri hefur viðurkennt að
hafa veist að konu í hjólastól og
haft á brott með sér skó hennar og
sokka. Hann er grunaður um að
hafa ráðist á fleiri fatlaðar konur
og stolið af þeim sokkunum. Þetta
kemur fram á vef sænska
dagblaðsins Dagens Nyheter.
Maðurinn hefur verið kærður
fyrir líkamsárás og situr í
gæsluvarðhaldi á meðan lögregla
rannsakar svipaða glæpi í
nágrenni Örebro. Við húsleit hjá
honum fundust mörg hundruð
nælonsokkar, bæði notaðir og nýir
sem enn voru í umbúðunum.
- sþs
Sænskur sokkaþjófur náðist:
Stal sokkum af
konu í hjólastólGJALDMIÐLAR
KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
125,2255
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
71,34 71,68
133,5 134,14
90,67 91,17
12,15 12,222
11,016 11,08
9,728 9,728
0,6122 0,6122
105,54 106,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SAMKAUP Lónið, eina matvöruverslunin
á Þórshöfn, hefur lýst sig gjaldþrota.
Næsta matvöruverslun er í sjötíu kíló-
metra fjarlægð.