Fréttablaðið - 30.09.2006, Page 82
30. september 2006 LAUGARDAGUR46
menning@frettabladid.is
!
Í verkum Þórdísar Aðal-
steinsdóttur má merkja
undarlega kyrrð sem þó er
hlaðin dramatískri spennu.
Háskinn og þurr húmor-
inn eru áleitnir en gestir
Listasafns Reykjavíkur fá
að upplifa óræða veröld
hennar á Kjarvalsstöðum í
vetur.
Sýning Þórdísar, sem ber hinn
uggvekjandi titil „Því heyrist þó
hvíslað að einhverjir muni komast
af“ verður opnuð í Vestursal Kjar-
valsstaða en þetta er stærsta sýn-
ing hennar hérlendis. Þórdís hefur
verið búsett í New York undanfar-
in sjö ár en eftir að hún lauk fram-
haldsnámi frá School of Visual
Arts vorið 2003 hefur vegur henn-
ar bara legið upp á við. Hún hefur
þegar haslað sér völl í listalífi
stórborgarinnar og unnið í sam-
starfi við hið virta Stux Gallery
þar í borg auk þess að halda sýn-
ingar víðar í Norður-Ameríku og í
Evrópu.
Málverk Þórdísar eru frásagnar-
kennd og vekja áleitnar spurning-
ar um mannleg samskipti og til-
finningar sem lita samskipti eða
samskiptaleysi. Í umsögn sýning-
arstjórans, Ólafar K. Sigurðar-
dóttur, er þess getið að í verkum
sínum skoði Þórdís náttúru manns-
ins með aðferðum málverkins og
hinnar kviku myndar. „Hún birtir
myndir af aðstæður sem afhjúpa
sögu en fella ekki dóm um rétt eða
rangt, eðli eða óeðli, sannleika eða
lygi.“ Myndefnið er mennskan
sjálf, samskipti fólks við hvert
annað og við aðrar lifandi skepnur
af öllu tagi.
„Ég er að vinna með málverk,
veggverk, vídeó og myndlýsingar
úr Gamla testamentinu á þessari
sýningu,“ útskýrir Þórdís, „þetta
eru verk frá síðustu þremur árum
en þau eru sett saman í eina heild,“
segir Þórdís en margir muna
eflaust eftir sýningu hennar í 101
galleríi í fyrrasumar sem vakti
töluverða athygli.
„Ég er alltaf að vinna með
mannleg samskipti og nota mikið
af tilvísunum í táknmyndir, bók-
menntir og önnur rit – bæði gömul
og úr samtímanum,“ segir hún og
bendir á að Gamla testamentið sé
auðugur brunnur að sækja í enda
sé ritið merk heimild um mann-
lega hugsun. „Ég blanda þessu öllu
saman við persónulega reynslu,
samtöl eða ástarbréf. Ég vinn með
tilfinningar sem ég tel sammann-
legar, kenndir eins og klaufalega
hamingju, þunglyndislega ill-
kvittni. Þetta snýst um að taka alla
þessa þætti, tyggja þá saman og
spýta þeim síðan út aftur í ein-
hverri mynd og vonast til að vekja
einhverjar spurningar hjá áhorf-
endum.“
Sýningin á Kjarvalsstöðum
verður opnuð í dag en þess má
geta að á morgun mun Þórdís taka
þátt í listamannaspjalli og leið-
sögn um sýninguna sem skipulögð
er kl. 15. kristrun@frettabladid.is
Háskinn og húmorinn
ÞÓRDÍS AÐALSTEINSDÓTTIR, MYNDLISTARMAÐUR Klaufaleg hamingja og þunglyndisleg illkvittni koma við sögu á sýningu Þórdís-
ar á Kjarvalsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Havanabandið, latínsveit
Tómasar R. Einarssonar held-
ur útgáfutónleika á skemmti-
staðnum Nasa í kvöld í tilefni
útkomu latíndjasshljómplöt-
unnar Romm Tomm Tomm.
Sveitin hefur starfað frá
2002, en þá kom út fyrsti
geisladiskur Tómasar með
frumsamdri latíntónlist,
Kúbanska, en ári síðar kom
síðan diskurinn Havana út
en þá léku kúbanskir tón-
listamenn tónsmíðar Tóm-
asar. Á nýjasta diskinum er
spili íslenskra og kúbanskra
tónlistarmanna fléttað
saman en Tómas sækir jöfn-
um höndum í íslenska tón-
listarhefð og kúbanska og
þar sem m.a. er að finna kraft-
mikinn hyllingaróð hans til
eina kunna íslenska karnivals-
ins, Jörfagleðinnar, sem haldin
var lengi á heimaslóðum hans
í Dalasýslu. Tómas mun síðan
halda aðra útgáfutónleika í
Havana á Kúbu í nóvember.
Á tónleikunum í kvöld
sem hefjast kl. 23 leika auk
Tómasar, þeir Óskar og Ómar
Guðjónssynir, Matthías M.D.
Hemstock, Pétur Grétarsson,
Samúel J. Samúelsson og
Kjartan Hákonarson.
Heyrist Romm Tomm Tomm
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Á JAZZHÁTÍÐ
Romm Tomm Tomm á Nasa í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Kl. 16.00
Tvær ljósmyndasýningar verða opn-
aðar í Þjóðminjasafni Íslands í dag.
„Ókunn sjónarhorn“ sýnir myndir af
óþekktum stöðum, húsum og fólki
sem gestir safnsins eru beðnir um að
gefa upplýsingar um. Á sýningunni
„Myndir úr lífi mínu“ eru ljósmynir
Gunnlaugs P. Kristinssonar áhuga-
ljósmyndara en myndirnar voru
teknar um miðja síðustu öld.
> Dustaðu rykið af....
kvikmyndinni Max frá árinu 2002 þar
sem greinir frá athyglisverðum kynnum
Adolfs Hitlers og listaverkasalans
Rothmans. Leikrit um annan vinskap
Adolfs við bóksala af gyðingaættum er
nú á fjölum Borgarleikhússins en fjalir
úr leikhússtúku Hitlers sjálfs liggja á
gólfi Hafnarhússins.
Leikstjórinn Atom Egoyan kemur
færandi hendi á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðina sem nú stendur
yfir í Reykjavík og sýnir nýjustu
mynd sína, Citadel, í hátíðasal
Háskóla Íslands á sérstakri for-
sýningu. Egoyan er meðal annars
þekktur fyrir myndir sínar The
Sweet Hereafter og Ararat en hin
fyrrnefnda verður einnig sýnd á
hátíðinni ásamt myndum hans The
Adjuster og Exotica.
Egoyan heldur erindi og svarar
spurningum gesta á þesari mið-
degisstund sem skipulögð er kl.
15, næstkomandi miðvikudag.
Fjölmörg málþing, fyrirlestrar
og námskeið verða haldin í tengsl-
um við kvikmyndahátíðina, til
dæmis verður rætt um konur í
kvikmyndum og sjónvarpi í dag
þar sem samtökin WIFT, Women
in Film and Television, halda
stofnfund sinn á Íslandi. Félag
þetta var stofnað til þess að auka
fjölbreytni í myndrænum miðlum
með því að virkja konur og stuðla
að þátttöku þeirra á öllum sviðum
innan framleiðslu kvikmynda og
sjónvarpsefnis.
Einnig er boðið upp á námskeið
í handritsgerð með kanadíska leik-
stjóranum og handritshöfundin-
um Amnon Buchbinder í Iðnó kl.
14 en þar ræðir hann einnig við
Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöf-
und, en þeir hafa báðir mikla
reynslu af handritaskrifum.
Áhugafólk um kvikmyndagerð
getur einnig fræðst um brellur og
brúður því aðstandendur Latabæjar
munu sitja fyrir svörum í Kringlu-
bíói í dag kl. 16 að lokinni sýningu á
tveimur nýjustu þáttunum.
Í næstu viku verður síðan hægt
að kynna sér kvikmyndagagnrýni
og kvikmyndalestur auk þess sem
málþing verða haldin um danskar
kvikmyndir og um fangabúðirnar
í Guantanamo.
Nánari upplýsingar um dag-
skrá RIFF, Reykjavik Internation-
al Film Festival er að finna á
heimasíðunni www.filmfest.is.
Einstök forsýning á
óvanalegum stað
LEIKSTJÓRINN ATOM EGOYAN Veitir Íslendingum forskot á sæluna og sýnir nýjustu
mynd sína í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Gluggaþvottur
Fyrirtæki - einstaklingar
Tökum að okkur gluggaþvott
Getum tekið allt að 18 metra háar byggingar
Vel tækjum búnir ...
Hafi ð samband tímalega
-allir gluggar hreinir
-gerum tilboð í stór/smá verk
Skógræktarfélag Reykjavíkur
býður til fræðslugöngu um sögu-
slóðir Einars Ben í dag. Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur leiðir
gönguna en hann skrifaði á sínum
tíma þriggja binda ritverk um
þjóðskáldið Einar Benediktsson.
Elsti hluti Elliðavatnsbæjar-
ins, gamla hlaðan, verður skoð-
aður og mun Guðjón lýsa lífi fjöl-
skyldu Einars á þeim tíma þegar
hann óx þar úr grasi. Gengið
verður umhverfis bæinn og
fræðst um líf og störf þessa
merka skálds.
Gangan tekur um klukkustund
og er þátttaka öllum opin, aðgang-
ur er ókeypis.
Á slóðum Einars Ben
GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Ræðir um æsku
og uppvaxtarslóðir Einars Ben.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sagan af und-
urfögru
prinsessunni
og hugrakka
prinsinum
hennar eftir
Margréti
Tryggvadótt-
ur og Halldór
Baldursson hlaut nýlega Íslensku
barnabókaverðlaunin 2006.
Í bókinni er hefðbundnum sögu-
þræði snúið á hvolf með óviðjafn-
anlegu samspili mynda og texta
svo úr verður alveg nýtt ævin-
týri.
Vaka Helgafell gefur bókina
út.
Allt á hvolf