Fréttablaðið - 30.09.2006, Page 88
ÞAÐ ERU TIL ÞÚSUND
LEIÐIR TIL AÐ AUKA
ADRENALÍNFLÆÐIÐ
Í DAG ÞARF CHEV CHELIOS
Á ÖLLUM AÐ HALDA
!óíbí.rk005
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
TALLADEGA NIGHTS kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 3, 6, 8 og 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 10.15
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 B.I. 7 ÁRA
VOLVER kl. 3, 5.50, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
LEONARD C: Í M YOUR MAN kl. 6
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3
TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10
CRANK kl. 10
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8
CLERKS 2 kl. 6
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR kl. 4
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6
GRETTIR 2 kl. 4 !óíbí.rk005
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
TALLDEGA NIGHTS kl. 3, 5.30, 8 og 10.25
SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.25
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 1.50, 3.50, 6, 8 og 10
CLERKS 2 kl. 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45 og 8
MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 5.50 og 10.15
LITTLE MAN kl. 1.50 og 3.50
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 2 og 4
"BIÐIN VAR VEL ÞESS VIRÐI, OG SMITH KLIKKAR
EKKI Í EINA MÍNÚTU. FYNDNASTA
GAMANMYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU!"
KVIKMYNDIR.IS
EMPIRE
EMPIRE
V.J.V. Topp5.is
Will Ferrell, John C.Reilly og Sascha Baron Cohen
(Ali G.) fara á kostum í vinsælustu
gamanmynd ársins í USA.
DV
L.I.B. Topp5.is
2 vikur á toppnum í USA!
Stöllurnar Eva Dögg Sigurgeirs-
dóttir, ritstjóri og markaðsfulltrúi
Smáralindar, Helga Braga Jóns-
dóttir leikkona og Sigríður Kling-
enberg spámiðill eru að skipuleggja
kvennaferð til Boston fyrir jólin í
samvinnu við Icelandair undir yfir-
skriftinni „Burt með jólastressið“.
„Við hugsum þetta sem eins konar
desemberuppbót fyrir konur. Heil
helgi sem verður helguð konum.
Þetta er ekki beint verslunarferð
heldur svona afstressunarferð,“
segir Eva Dögg, en margt
spennandi er á dag-
skránni í Boston. Það er
meðal annars farið í
spa og Sigríður Kling-
enberg ætlar að spá
fyrir konunum og
hreinsa áruna fyrir jólastressið.
Konunum verður kennt að klæða
sig eftir líkamsstærð og læra að
vera dömur með stóru D-i að sögn
kvennatríósins.
„Boston er ein af skemmtileg-
ustu borgum Bandarríkjanna, þess
vegna varð hún fyrir valinu. Við
erum líka búnar að skipuleggja
ferð á Staupastein og ætlum okkur
að skoða borgina frá a-ö,“ segir
Eva Dögg og segir að aðalmálið sé
að láta konurnar slaka vel á í jóla-
stressinu og vera búnar að klára
jólaundirbúninginn í nóv-
ember til þess að geta
notið ferðarinnar
almennilega.
Ferðin verður 14.
til 18. desember og
skora stöllurnar
á eiginmenn, feður, syni og bræður
að senda konurnar í lífi sínu í ferð-
ina og lofa því að konurnar komi
endurnærðar og fullfrískar heim.
Ferðin mun verða kynnt á sýn-
ingunni Konan 2006 og einnig á
hinu árlegu konukvöldi Helgu, Sig-
ríðar og Evu sem fer fram í nóvem-
ber. Skráning í ferðina fer fram hjá
Icelandair. „Það eru allar konur
velkomnar í ferðina og eitt er víst
að ævintýrin gerast í kvennaferð-
um,“ segir Eva að lokum. - áp
Jólabónus fyrir konur í Boston
EVA DÖGG SIGUR-
GEIRSDÓTTIR Einn
af skipuleggjend-
um kvennaferðar-
innar.
HELGA BRAGA JÓNS-
DÓTTIR Ætlar að sjá til
þess að mikið verði
hlegið í kvennaferð-
inni til Boston fyrir
jólin.
SIGRÍÐUR KLINGENBERG Mun spá fyrir
ferðalöngunum í Boston og hreinsa áru
kvenna fyrir jólin.
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Margir muna eflaust eftir því hvar
þeir voru þegar Díana prinsessa
lést í bílslysi í París sumarið 1997.
Dauði hennar sameinaði bresku
þjóðina í sorg en Elísabet Breta-
drottning virtist ekki geta sam-
svarað sig þessari hegðun þjóðar
sinnar.
Kvikmyndin The Queen beinir
sjónum sínum að því hvað fór fram
innan veggja konungsfjölskyld-
unnar á þessum tíma. Elísabet
drottning hafði löngum horn í síðu
„Prinsessu fólksins“ og þráaðist
lengi vel við að sýna andláti Díönu
þá virðingu sem þjóðin fannst hún
eiga skilið en lét loks undan þegar
fjölmiðlar höfðu tekið hana af lífi
á hverjum degi og fólkið í landinu
krafðist þess að Díönu yrði sýndur
sá sómi sem henni bar. Þá er dreg-
ið fram sérstakt samband Tony
Blair og drottningarinnar því þótt
forsætisráðherran væri ósáttur
við aðgerðarleysi drottningarinn-
ar stóð hann engu að síður þétt við
bakið á henni og studdi með ráðum
og dáð.
Myndin er borin uppi af Helen
Mirren sem sýnir stórleik í hlut-
verki drottningarinnar, það er
helst James Cromwell sem stenst
henni snúningin en hann er
kostulegur í hlutverki Filipp-
usar, þessa íhaldssama og þröng-
sýna fausks sem var sannfærður
um að það yrðu bara sápuóperu-
stjörnur og hommar í jarðarför-
inni.
Leikstjóranum Stephen Frears
tekst á skemmtilegan hátt að
svipta hulunni af hinni ómennsku
ímynd konungsfjölskyldunnar og
gefa hinum velþekktu sögulegu
persónum líf á hvíta tjaldinu. Von-
andi verður þess ekki langt að
bíða að myndin fari í almennar
sýningar því hún á vissulega
erindi við alla þá sem muna eftir
því hvar þeir voru 31. ágúst árið
1997 þegar Díana dó.
Freyr Gígja Gunnarsson
Þegar Díana dó...
THE QUEEN
LEIKSTJÓRI: STEPHEN FREARS
Aðalhlutverk: Helen Mirren, James Cromwell
og Michael Sheen.
Niðurstaða: The Queen er skemmtileg innsýn
í þann heim Buckingham-hallarinnar sem
flestum hefur verið hulin.
Spænski leikstjórinn Pedro Almod-
ovar er glaður um þessar mundir
en kvikmynd hans, Volver var val-
inn sem framlag Spánverja til Ósk-
arsverðlauna. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem kvikmynd eftir Almodov-
ar er tilnefnd en hann vann Óskar-
verðlaun fyrir myndirnar Allt um
móður mína árið 2000 og fékk verð-
laun fyrir handrit myndarinnar
„Hable con ella“ 2004. „Við eigum
góða möguleika á að vinna þetta
aftur í ár,“ sagði Pedro þegar til-
kynnt var um tilnefninguna.
Leikkonan Penelope Cruz leikur
aðalhlutverkið í myndinnni en hún
var sýnd hér á landi í tengslum við
kvikmyndahátíð IFF sem fór fram
fyrir stuttu. Myndin fékk mjög
góða dóma hér á landi og þótti Cruz
bera af í leik sínum.
Volver á
Óskarinn
PEDRO ALMODOVAR Er glaður í bragði
þessa dagana því kvikmynd hans Volver er
framlag Spánar til Óskarsverðlauna.
Queenklúbburinn, íslenskur aðdá-
endaklúbbur hinnar rómuðu
hljómsveitar, fagnar tíu ára
afmæli um þessar mundir. Það er
þó ekki eina afmælið sem klúbb-
urinn hefur ástæðu til að fagna.
„Þetta ár er stórt fyrir fólkið sem
lifir og hrærist í Queenheiminum.
Freddie Mercury hefði orðið sex-
tugur 5. september síðastliðinn og
í nóvember eru liðin fimmtán ár
síðan að hann lést,“ sagði Sigurður
Sigurgeirsson, einn stofnenda
klúbbsins. Meðlimir eru í dag um
sjötíu talsins og fjölgar þeim ár
frá ári. Í tilefni afmælisársins
fékk Queenklúbburinn hljómsveit-
ina Miracle til landsins, en hún
spilar eingöngu Queenlög og skar-
ar fram úr á því sviði. Þetta er í
þriðja skipti sem
Miracle, sem
einnig fagnar
tíu ára starfs-
afmæli í ár,
kemur til lands-
ins. Hljóm-
sveitin spilaði á Players í gærkvöldi og
endurtekur leikinn í kvöld, en
gestasöngvari verður Eiríkur
Hauksson. Gestir Players geta
búist við því að mæta kúbbmeð-
limum í sparifötunum, því hefð
hefur myndast fyrir því að klæða
sig upp í Queen-búninga fyrir
Miracle-tónleika og láta sumir
meðlimir jafnvel sauma á sig
galla. - sun
Queen-fólk fagnar
EIRÍKUR
HAUKS-
SON Fetar
í fótspor
Freddie
Mercury
og syngur
Queen-lög í
kvöld.
FREDDIE MERCURY Söngvarinn dáði
hefði orðið sextugur í byrjun september.