Fréttablaðið - 10.10.2006, Síða 50
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■22
Vinnuvélar eru flottar. Þær eru
öflugar og töff og maðurinn undir
stýri hefur gjörsamlega heiminn
á valdi sínu þá stund sem hann
stjórnar tækinu upp og niður, til
hægri og vinstri. Vinnuvélar koma
líka vel út í kvikmyndum, sérstak-
lega þegar um hasarmyndir er að
ræða, háa tónlist og bandbrjálað
illmenni. Ef það er töff í Holly-
wood þá er það töff alls staðar.
Frægðarstjarna vinnuvélanna
Einn frægasti valtari í bíómynd er í A Fish
Called Wanda þegar Ken, leikinn af Michael
Palin, valtar yfir Otto, leikinn af Kevin Kline.
Ástæðan er einföld – Kevin gleypti fræga
fiskinn hans Kens og drap þar af leiðandi
fiskinn og þurfti Otto að gjalda fyrir ódæðið.
Ekki beint mikið hasaratriði en fyndið er
það og því geta vinnuvélar alveg verið
fyndnar líka.
Í Die Hard III leikur Jeremy Irons illmennið
og hryðjuverkamanninn Simon Gruber
sem hinn geðþekki John McClane, leikinn
af Bruce Willis, þarf að berjast við. Í aðal-
ráninu í myndinni er notast við ansi marga
og stóra vörubíla sem magna upp illskuna í
Simon og félögum.
Og þegar talað er um vörubíla þá má ekki
gleyma Terminator-myndunum, hvort sem
það er I, II, III. Í hverri einustu mynd er að
finna einhvern rosalegan trukk sem þjónar
alltaf sínum tilgangi, að drepa vélmenni
eða bjarga fólki. Þannig að trukkar eru
ekki alslæmir heldur geta bjargað ýmsu á
ögurstundu.
Í kvikmyndinni Aliens er að finna ansi nútímalega vinnuvél. Ellen Ripley, leikin af Sigourney
Weaver, fer inn í tryllitækið sem býr yfir fjórum örmum eins og mannvera. Ripley nær að
stjórna örmunum af mikilli list og berst hatrammri baráttu við geimveruna sem virðist elta
hana þangað til hún deyr. Já, það er aldeilis gott að hafa vinnuvélapróf.
„Cop Killers“, eða löggumorðingjar, heita
kúlurnar sem vondi karlinn Jack Travis,
leikinn af Stuart Wilson, notar til að drepa
löggur í myndinni Lethal Weapon III. Hann
er sjálfur spillt lögga en þessar löggukúlur
hafa þann eiginleika að komast í gegnum
skotheld vesti. Í einu atriða myndarinnar
mætir Travis löggunum tveimur Riggs og
Murtaugh, Mel Gibson og Danny Glover,
og ætlar að drepa þá með beltagröfu og
stórri skóflu. En það sem Travis veit ekki er
að löggurnar hafa reddað sér „Cop Killers“
kúlunum og ná að sjá við illmenninu. Og
réttlætið sigrar enn á ný.
Það má ekki alveg gleyma fyndnu vinnu-
vélaatriðunum en þau eru ógleymanleg í
Austin Powers: The Spy Who Shagged Me.
Austin sjálfur, leikinn af Mike Myers, byrjar
á því að valta yfir öryggisvörð, mjög hægt,
vægast sagt. Síðan festir hann sig karlinn,
og reynir að bakka út úr þröngum aðstæð-
um sem gengur ekki sem skyldi.
Í kvikmyndinni Convoy er fylgst með eins
konar uppreisn trukkanna. Rubber Duck,
leikinn af Kris Kristofferson, leiðir þessa
uppreisn þar sem vörubílstjórar í Bandaríkj-
unum mynda langa röð af trukkum til að
hefna sín á ansi óliðlegum lögregluforingja.
Myndin er byggð á samnefndu kántrílagi
eftir C.W. McCall. Kannski var hann mikill
trukkamaður?
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10