Fréttablaðið - 24.10.2006, Qupperneq 8
8 24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1 Til hvaða lands hyggst
Hvalur hf. selja kjötið af þeim
langreyðum sem veiðast?
2 Hvaða breski knattspyrnu-
leikmaður sem nú spilar í
Svíþjóð ætlar að klára ferilinn
á Íslandi?
3 Ari Alexander er með nýja
kvikmynd í burðarliðnum. Á
hvaða fræga íslenska glæpa-
máli er hún byggð?
SVÖRIN ERU Á BLS. 38
DÝRAHALD Frá og með áramótum
verður kattaeign íbúa Akraness
takmörkuð við tvo ketti á heimili. Á
sama tíma mun dýraeftirlitsmaður
hefja störf í bæjarfélaginu en
hlutverk hans verður að hafa eftirlit
með dýrahaldi á svæðinu.
Lausaganga katta hefur verið
nokkurt vandamál á Akranesi og
segir Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
að fylgst sé reglulega með heimilis-
lausum köttum og þeim lógað.
„Frá áramótum verða allir
kettir í bæjarfélaginu að vera
skráðir og þurfa kattaeigendur þá
að sækja um leyfi fyrir dýrum
sínum.“ - hs
Dýrahald á Akranesi:
Kattaeign verð-
ur takmörkuð
KETTIR Um áramót verða allir kettir á
Akranesi að vera skráðir.
PANTAÐU Í SÍMA
WWW.JUMBO.IS
554 6999
SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI
ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA
ERFÐAGREINING Í nýjasta hefti vís-
indatímaritsins Nature Genetics
er birt bréf til ritstjóra blaðsins
frá Jonathan Rosand, aðstoðar-
prófessor í taugalækningum við
læknadeild Harvard-háskólans,
sem hann skrifar í samstarfi við
þrjá aðra fræðimenn. Í bréfinu er
því haldið fram að ekki hafi tekist
að staðfesta uppgötvun Íslenskr-
ar erfðagreiningar um þátt erfða-
vísisins PDE4D í heilablóðföll-
um.
Niðurstöður rannsóknar ÍE á
tengslum þessa erfðavísis og
heilablóðfalls birtust í sama tíma-
riti fyrir þremur árum og vöktu
samstundis mikla athygli. Rann-
sóknin var mjög umfangsmikil
enda voru rúmlega 1.700
Íslendingar rannsakaðir; þar af
hafði um helmingurinn orðið
fyrir heilablóðfalli. Í niður-
stöðunum kom fram að þeim sem
hefðu þennan erfðavísi væri
þrisvar til fimm sinnum hættara
við heilablóðfalli en öðrum.
Síðan hafa verið gerðar fjöl-
margar rannsóknir til þess að
reyna að staðfesta niðurstöðu ÍE
en það hefur þó enn ekki tekist.
Því segir í bréfinu að gildi upp-
runalegu rannsóknarinnar og
þeirra tengsla sem hún sýni fram
á séu enn óákveðin.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
segir enga gagnrýni á uppruna-
lega rannsókn ÍE fólgna í þessu
bréfi til ritstjórans heldur sé ein-
vörðungu verið að gagnrýna þær
rannsóknir sem hafi fylgt í kjöl-
farið í því skyni að staðfesta nið-
urstöðu ÍE. „Það kemur fram í
svari okkar við þessum skrifum
að svona lagað gerist stundum
þegar aðrir eru að reyna að sann-
reyna niðurstöður okkar rann-
sóknar. Við söfnuðum saman
stórum og vel skilgreindum hópi
sjúklinga til þess að fá tölfræði-
legan mátt í niðurstöðurnar. Svo
þegar við birtum okkar niður-
stöður þá reyna aðrir að stað-
festa það sem við höfum gert.“
Kári segir að þegar niðurstöð-
ur líkt og þær sem upprunaleg
rannsókn ÍE sýndi liggi fyrir
skapist tilhneiging hjá öðrum
rannsakendum til að notast við
miklu minni sjúklingahópa til að
reyna að staðfesta niðurstöðurn-
ar. „Það er bara ekki hægt að gera
þetta þannig. Við erum því sam-
mála þessari gagnrýni sem þarna
kemur fram.“
thordur@frettabladid.is
Niðurstöður rannsóknar ÍE
hafa ekki verið staðfestar
Í nýjasta hefti Nature Genetics segir að ekki hafi tekist að staðfesta niðurstöður ÍE um tengsl ákveðins
erfðavísis og heilablóðfalls. Kári Stefánsson segir þetta ekki gagnrýni á rannsókn ÍE.
ÍSLENSK ERFÐAGREINING Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið til að staðfesta
niðurstöðu ÍE hefur skort tölfræðilegan mátt segir Kári Stefánsson.
HEILBRIGÐISMÁL Eva Laufey Stefánsdóttir ljósmóðir og
Erna Óladóttir hjúkrunarfræðingur eru nú staddar í
Afganistan þar sem þær fræða þarlendar yfirsetu-
konur um meðgöngu, fæðingu og umönnun ungbarna.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir, lektor í ljósmóðurfræðum
við HÍ, segir að aðstoð á þessu svæði sé mikilvæg,
sérstaklega í ljósi þess að mæðra- og ungbarnadauði
sé hár í Afganistan. „Þegar aðstoðin er veitt er þó
mikilvægt að hún endurspegli þær aðstæður sem eru
á svæðinu í stað þess að leggja áherslu á okkar
menningu í fræðslunni.“
Friðfinnur Hermannsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, segir verkefnið
vera að frumkvæði Ernu Óladóttur, sem nú er stödd í
Afganistan, en henni var kunnugt um þörfina á þessu
svæði.
„Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hafði síðan
milligöngu um málið og var í samskiptum við utanrík-
isráðuneytið. Í tengslum við verkefnið voru 32
ljósmæðratöskur sendar til Afganistan og er verðmæti
þeirra áætlað um 700 þúsund krónur, en í þeim er
ýmislegt sem gagnast getur við fæðingarhjálp.“
Friðfinnur útilokar ekki að Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga komi að svipuðum verkefnum í framtíð-
inni. - hs
Íslenskir heilbrigðisstarfsmenn fræða um meðgöngu og fæðingu:
Fæðingarfræðsla í Afganistan
MÓÐIR OG BARN Í AFGANISTAN Þegar fræðsla er veitt í Afgani-
stan er mikilvægt að hún endurspegli aðstæður á svæðinu en
ekki vestræn gildi.
DÓMSTÓLAR Maður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa haft fíkniefni í fórum sínum.
Lögreglan fann hass og
amfetamín á heimili mannsins í
Kópavogi við húsleit í byrjun árs.
Hann hafði áður gengist undir
sektargreiðslu fyrir brot gegn
lögum um ávana- og fíkniefni. Þá
hafði hann hlotið einn dóm fyrir
brot af því tagi og var þá
sektaður. Loks hafði hann verið
dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára, fyrir lagabrot.
Manninum var gert að greiða
sakarkostnað. - jss
Héraðsdómur Reykjaness:
Fangelsisdómur
vegna fíkniefna
ÍSRAEL, AP „Við erum að ganga til
liðs við ríkisstjórnina,“ sagði
Avigdor Lieberman, leiðtogi
stjórnmálaflokksins Yisrael Bei-
teinu, eða „Ísrael er heimili
okkar“, þegar hann gekk í gær
brosandi af fundi með Ehud
Olmert, forsætisráðherra Ísra-
els.
Olmert ákvað í gær að styrkja
stjórnarmeirihluta sinn með því
að fá Yisrael Beiteinu til liðs við
stjórnina, en þar með fjölgar
þingmönnum stjórnarinnar úr 67
í 78 á samtals 120 manna þingi.
Lieberman er þekktur fyrir
harða afstöðu gegn Palestínu-
mönnum og einnig gegn arabíska
minnihlutanum í Ísrael. Nú þegar
flokkur hans gengur til liðs við
Ísraelsstjórn má því búast við að
Palestínumönnum reynist enn
erfiðara að semja við stjórnina.
Í gær sagðist Lieberman hafa
efasemdir um friðarsamninga, þar
sem gert er ráð fyrir því að Ísraels-
menn afhendi Palestínumönnum
aftur landsvæði, sem þeir hafa
tekið af þeim.
„Kannski ættum við að spyrja
hvort við ættum að fara aðrar leið-
ir,“ sagði hann.
Lieberman hefur haft þá afstöðu
að skipta ætti við Palestínumenn
um land, þannig að í staðinn fyrir
landtökubyggðir Ísraelsmanna á
Vesturbakkanum fái Palestínu-
menn þær byggðir araba sem nú
eru innan landamæra Ísraels, og
svipta þannig í reynd ísraelsku
arabana ríkisborgararétti sínum í
Ísrael. - gb
AVIGDOR LIEBERMAN Leiðtogi Yisrael Beiteinu var ánægður þegar hann kom af fundi
með Ehud Olmert í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ísraelsku stjórninni bætist liðsauki:
Samningaviðræður við
Palestínumenn enn erfiðari