Fréttablaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. október 2006 3
Meira vinnst með blíðu en stríðu
Mæður sem sigla á móti straumnum.
Mannfræðingurinn Meredith F.
Small hefur rannsakað hvers vegna
við ölum börnin okkar upp eins og
við gerum og leggur til að við endur-
skoðum menningarbundin viðhorf
okkar til barna og uppeldis. Hér
eru nokkrar tilvitnanir í bók hennar
„Our Babies, Ourselves“.
Lengst af í sögu mannkyns hafa
börn verið borin í sjali af móður.
Þannig fá börn líkamlega nánd, gott
útsýni og taktfasta hreyfingu sem
er notaleg og sefandi.
Í öllum menningarsamfélögum,
nema iðnaðarsamfélögum Vestur-
landa, sofa börn í sömu herbergj-
um og fullorðnir og yfirleitt í sama
rúmi.
Aðeins á Vesturlöndum eru unga-
börn langtímum saman án líkam-
legrar nálægðar við umönnunar-
aðila – t.d. í kerrum og rúmum.
Vestræn
menning
á villigötum
Í öllum menningarsamfélögum, nema
iðnaðarsamfélögum Vesturlanda, sofa
börn í sömu herbergjum og fullorðnir.
Náttúrubörn er mjög athyglis-
verður umræðuvettvangur
á veraldarvefnum þar sem
íslenskar mæður bera saman
bækur sínar um uppeldi og
umönnun barna sinna. Þetta
eru vel menntaðar og meðvit-
aðar konur sem sætta sig ekki
við ríkjandi viðhorf til barna og
hafna þeim hörkulegu uppeldis-
aðferðum sem haldið er að
þeim. Þær treysta á móðureðlið
og innsæið og leyfa sér að
fylgja hjartanu. Við skulum
grípa niður í skrif þeirra á
spjallþræði Yahoo – Náttúru-
börn.
Brynhildur skrifar um fjöl-
skyldurúmið:
„Jiiih hvað ég er spennt að
spjalla meira við ykkur
stelpur! Hér virðist vera
samansafn vel gefinna
kvenna sem eru að auki
afskaplega skynsamir upp-
alendur. Ég er að lesa smátt
og smátt póstana hér inni og
hef mjög gaman af. Finnst
alveg stórmerkilegt að „mín
uppeldisaðferð“ eigi sér
svona fínt nafn „Attatchment
Parenting“, hafði ekki hug-
mynd um það fyrr en fyrir
örfáum dögum. Eins og ég
sagði hér í fyrr þá er ég
algjör brjóstakelling, börnin
mín eru mikið uppí hjá mér
og við sofum öll í sama
herbergi ...“
Sædís skrifar um vond ráð frá góðu fólki:
„ ... Ég var lengi að átta mig á „mjúkum“ aðferðum í uppeldismál-
um, því miður... Þegar ég átti son minn fylgdi ég bara þeim ráðum
sem mér voru gefin. Ég svaf aldrei með hann uppí, enda var það
víst stórhættulegt barninu og auk þess var það „leiðindaávani“.
Þessu var ég sammála strax án þess að kynna mér það betur. Ég
þorði ekki að hafa hann á brjósti nema í 6 mánuði – annars myndi
hann aldrei geta hætt á brjósti án rosalegrar fyrirhafnar og mjög
mikillar hörku. Svo var talað um ofdekur, mjólkin næringarlaus
eftir 6 mánuði og fleira í þeim dúr. Ég notaði hvorki sling né önnur
tæki til að bera hann, varaðist að halda of mikið á honum svo hann
vendist því ekki.“
Rúna skrifað m.a. um afstöðuna til heimavinnandi húsmæðra:
„Ég fékk góðan málshátt í páskaegginu hennar Sonju „Meira
vinnst með blíðu en stríðu“ – það er einmitt þessi hugsun sem
ræður ríkjum í hennar uppeldi. Mínar aðferðir samræmast samt
engan veginn „nútíma-uppeldisháttum“ eins og þið vitið... maður
er svo innilega að synda á móti straumnum...
Frænka mín spurði mig hvort ég væri orðin alveg rugluð þegar ég
sagðist ætla að gefa Sonju lengri tíma heima, hvort ég ætlaði að
enda heima með rúllur í hárinu og hundfúl alla daga...!
Takk fyrir að vera til :) Bestu kveðjur Rúna.“
Efni af spjallþræðinum: http://groups.yahoo.com/group/natturuborn/
Sædís heldur áfram og nú lýsir nú endurnýjuðum kynnum sínum
við soninn:
Þegar ég fór að kynna mér AP (tengslauppeldi) sá ég hversu illa ég
hafði farið að ráði mínu og smátt og smátt fór ég að endurnýja
kynni okkar sonar míns ef svo má kalla. Ég ákvað að leyfa mér að
gefa af mér ótakmarkaðan kærleika. Næturnar voru yndislegar!
Við kysstumst og knúsuðumst, föðmuðumst, horfðum í augun á
hvoru öðru – vorum bæði hálfsvefnlaus alltaf eftir nóttina, alveg
funheitt ástarsamband í gangi:) Fyrir um viku síðan kom svo
algert gegnumbrot, einn daginn var hann bara breyttur! Og á þess-
ari rúmu viku hefur honum farið rosalega mikið fram í tali og
öðrum þroska! Ég er rosa stolt af litlu fjölskyldunni minni :)
Hlakka til í að heyra frá ykkur görlís (kannski eru einhverjir feður
á meðal okkar líka?).“
UPPSKRIFT EINGÖNGU
UNNIN ÚR JURTUM
Með GREEN PEEL herbal
peeling, upprunalegu aðferðinni
sem Dr. Christine Schrammek
þróaði. Green peel er vísindalega
þróuð aðferð til að aðstoða við
endurnýjun húðarinnar, algerlega
unnin úr jurtum, notuð af snyrti-
fræðingum og læknum víðsvegar
í heiminum.
ÁRANGUR Í 35 ÁR
VEGNA MEðFERðAR Á:
Óhreinni húð
Stækkun svitahola
Ótímabærrar öldrunar á húð
Hrukkum
Örum
Húðslits
Appelsínuhúð
Minnkandi sveigjanleika
húðar á maga, upphand-
leggjum og lærum
Ný húð
Á aðeins
5 dögum!
Kosmetik
S t ó r h ö f ð i 1 7
R
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt
stykki í einu, hægt og rólega til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fl eiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfi ð lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk,
ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf. Lyfi ð ekki ætlað á meðgöngu / brjóstagjöf án samráðs við lækni. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjál-
parefnanna eiga ekki að nota lyfi ð.Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
lægra verð
Apótekið
Hagkaupum, Skeifunni 15 108 Reykjavík
Hólagarði, Lóuhólum 2-6, 111 Reykjavík
Grafarvogi, Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Hagkaup, Furuvöllum 17, 600 Akureyri
APÓTEKIÐ OG
NICOTINELL 10 ÁRA
20%
afsláttur
af öllum vörum frá
Nicotinell í Apótekinu
Í tilefni af því að
10 ár eru liðin síðan
Nicotinell kom á
markaðinn á Íslandi
og 10 ár eru liðin
síðan fyrsta Apótekið
tók til starfa eru allar
Nicotinell vörur á
20% afmælisafslætti í
verslunum Apóteksins.
S
tö
kk
t að utan
M
júkt að inn
an
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI