Fréttablaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 53
ÞRIÐJUDAGUR 24. október 2006 29
Í vikulok verður frumsýning í
Þjóðleikhúsinu á verki sem til-
einkað er skrautlegri söngkonu.
Á miðvikudagskvöld verða liðin
62 ár frá tónleikum Florence
Foster Jenkins í Carnegie Hall í
New York, en henni er leiksýn-
ingin helguð.
Florence var kölluð versta
söngkona allra tíma. Hún var
samt afar vinsæll skemmtikraft-
ur í New York á sínum tíma þar
sem hún skemmti á Carlton-Ritz
hótelinu þar í borg.
Á ferli sínum hélt Jenkins
aðeins þessa einu tónleika í Carn-
egie Hall 25. október 1944 fyrir
troðfullu húsi en hún lést mánuði
síðar.
Tónleikar Florence voru mikið
augnayndi því hún hannaði sjálf
ofhlaðna og skrautlega búninga
sína og skipti oft um á hverju
kvöldi.
Blóm voru í uppáhaldi hjá
henni og því hefur Þjóðleikhúsið
ákveðið að hafa forsýningu á
verkinu sem henni er helgað og
bjóða til hennar konum sem heita
blómanöfnum. Frumsýningin er
á föstudag en verkið heitir Stór-
fengleg og er Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir þar í aðalhlutverki. Þeir
sem gefa sig fram við miðasölu
og uppfylla skilyrðin geta fengið
að sitja á æfingu á annað kvöld
sem hefst kl. kl. 20. Til að upp-
fylla jafnréttiskröfur eru Burkn-
ar velkomnir.
-pbb
Lilja, Sóley og Burkni
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR Fer
með hlutverk söngkonunnar stór-
fenglegu og mun verkið ekki síst
valið vegna hæfileika hennar sem
söngkonu og gamanleikkonu.
Jazzklúbburinn Múlinn er að
hefja sitt tíunda starfsár. Klúbb-
urinn hefur farið víða um Reykja-
víkursvæðið á þessum áratug
sem hann hefur verið starfandi
og hafa djassgeggjarar mátt hafa
sig allan við að finna nýja við-
komustaði klúbbsins. Fyrstu tón-
leikar vetrarins verða á fimmtu-
dagskvöldið í glænýjum stað,
DOMO Bar, Þingholtsstræti 5, en
þar verður starfræktur notaleg-
ur tónlistarklúbbur í kjallaran-
um. Þar var áður pappírsgeymsla
Ísafoldarprentsmiðu. Hefjast
tónleikarnir kl. 21.
Átta tónleikar eru á dagskrá
vetrarins, sem er að vanda bæði
metnaðarfull og fjölbreytt og er
gott dæmi um þá miklu grósku
sem einkennir íslenskt djasslíf
og eiga allir straumar og stefnur
heima í Múlanum.
Á fyrstu tónleikunum leikur
hljómsveit Tómasar R. Einars-
sonar en hana skipa auk kontra-
bassaleikarans Tómasar þeir
Óskar Guðjónsson saxófónleik-
ari, Samúel J. Samúelsson
básúnuleikari, Kjartan Hákonar-
son trompetleikar, Ómar Guð-
jónsson gítarleikari og Matthías
M.D. Hemstock trommu- og slag-
verksleikari. Auk þeirra má eiga
von á fleira slagverksfólki.
Efnisskráin er að stærstum
hluta efni af nýjum geisladiski
Tómasar, Romm Tomm Tomm,
sem hann tók upp í Reykjavík og
Havana í vor.
Hljómsveit Tómasar lék í síð-
ustu viku á þrennum tónleikum í
Moskvu og var hinum íslenska
latíndjassi þeirra félaga afbragðs
vel tekið, en þess má geta að tón-
leikar þeirra á Le Club, helsta
djassklúbbi Moskvuborgar, voru
hljóðritaðir og aldrei að vita
nema Íslendingar fái að heyra þá
síðar.
Múlinn er samstarfsverkefni
Félags íslenskra hljómlistar-
manna (FÍH), Jazzvakningar og
Heita pottsins. Klúbburinn er
kenndur við Jón Múla Árnason,
sem var heiðursfélagi og vernd-
ari Múlans.
- pbb
Tómas og hljóm-
sveit í Múlanum
TÓMAS EINARSSON, BASSALEIKARI, TÓNSKÁLD OG HLJÓMSVEITARSTJÓRI Nú eru
íslenskir djassarar enn teknir að sækja í austurveg líkt og Haukur Morthens gerði
með sitt djasskombó á Heimsmót æskunnar 1958.
VILTU VIN
NA
SÁ SEM SVARAR 2 SPURNINGUM
HRAÐAST FÆR 500.000!*
BT ÆTLAR AÐ GEFA 500.000 KR. ÚTTEKT!
SENDU SMS BT BTF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ 500.000KR*.
VIÐ SENDUM ÞÉR SPURNINGAR SEM ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ
AÐ SENDA SMS SKEYTIÐ BT A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900.
10
HVERVINNUR!
*S
á
se
m
v
in
n
u
r 5
00
.0
00
kr
fæ
r e
in
n
d
ag
t
il
að
k
au
p
a
sé
r v
ö
ru
r í
v
er
sl
u
n
u
m
B
T.
L
ei
kn
u
m
lý
ku
r 1
6.
n
ó
ve
m
b
er
2
00
6
kl
2
4:
00
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
u
. M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
. E
f þ
að
t
ek
u
r
þ
ig
le
n
u
r e
n
5
m
ín
a
ð
s
va
ra
s
p
u
rn
in
g
u
þ
ar
ft
u
a
ð
b
yr
ja
le
ik
in
n
a
ft
u
r.