Fréttablaðið - 24.10.2006, Side 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ásta Emilsdóttir kennari í Kvennaskólanum uppgötv-
aði kosti stafgöngu.
„Í stuttu máli sagt er þetta ákveðin tegund af kraftgöngu
með sérhönnuðum göngustöfum,“ segir Ásta um stafgöng-
una, en hún segir áhugann á þessari íþrótt hafa vaknað fyrir
tæpum tveimur árum síðan í prufutíma hjá Guðnýju Ara-
dóttur, stafgönguleiðbeinanda og einkaþjálfara hjá World
Class.
„Ég get nú ekki sagst hafa verið neinn íþróttagarpur
fram að þeim tíma og hafði í raun lítið hreyft mig af viti
síðan á menntaskólaárunum,“ útskýrir Ásta. „Ætli ég hafi
ekki staðið mig einna verst í þessum prufutíma hjá Guð-
nýju, hélt ekki einu sinni takti, hvað þá annað. Ég lét mig nú
samt hafa það og sæki enn tíma hjá henni.“
Ásta segir þessa tegund hreyfingar henta manneskju
eins og sér þar sem hún sé annars með öllu áhugalaus um
íþróttaiðkun. „Stafganga snýst mikið um rétta líkams-
beitingu og samhæfingu, til að þetta beri tilætlaðan
árangur,“ segir hún. „Markmiðið er auðvitað að komast í
gott form og stafganga er góð hreyfing fyrir efri hluta lík-
amans, maður brennir meira en í venjulegri göngu og
maður kemur heim endurnærður á líkama og sál.“
Hópurinn hittist tvisvar sinnum í viku, þriðjudaga og
fimmtudaga, að sögn Ástu, við anddyri Laugardalslaugar-
innar, gengur í klukkutíma og gerir teygjuæfingar. Allar
frekari upplýsingar um tímana má finna á vefsíðunni www.
stafganga.is. roald@frettabladid.is
Hélt í fyrstu
ekki takti
Ásta segist ekki hafa verið neinn íþróttagarpur áður en hún fór í stafgönguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
24. október, 297. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.45 13.12 17.38
Akureyri 8.37 12.57 17.15
Vinnuverndarvikan stendur nú
yfir. Árlega tekur Vinnueftirlitið
þátt í þessu samevrópska átaks-
verkefni en í ár er vikan helguð
ungu fólki og er yfirskrift hennar
Örugg frá upphafi. Hugtakið
„öryggi“ vísar í þessu samhengi
til öryggismála en einnig sjálfs-
öryggis og vellíðunar í vinnu.
Nemendum í hjúkrunarfræði við
Háskóla Íslands mun fjölga um
25 á næsta vormisseri. Þetta varð
ljóst í kjölfar ákvörðunar heil-
brigðisráðherra og menntamála-
ráðherra um að stuðla að fjölgun
nema við hjúkrunardeildina.
Hvað er kæfisvefn? nefnist
fræðslubæklingur sem nýlega
hefur verið gefinn út af Land-
spítalanum. Bæklingurinn er
fyrir þá sem eru með kæfisvefn,
aðstandendur þeirra og aðra
sem hafa áhuga á svefni. Kæfis-
vefn er algengur sjúkdómur og
leitast verður við að útskýra sjúk-
dóminn, orsakir hans, einkenni
og meðferð.
ALLT HITT
[ HEILSA ]
BETRI EN 20/20 SJÓN
Leiseraðgerðir á augum veita
mörgum betra líf
HEILSA 4
TENGSLAMYNDUN
Náttúruleg leið til að
elska og annast barnið
sitt
HEILSA 2
Þar sem hár okkar er í stöðugum
vexti tekur það líka breyting-
um eftir þeirri næringu sem
líkaminn fær. Þess vegna
getur rannsókn á hárinu verið
góð leið til að meta heilsufar.
Ný rannsókn sem gerð var af
bandarískum vísindamönnum
við háskólann Brigham Young í
Utah sýnir að fimm hár af höfði
sjúklings nægja til að gefa átta-
tíu prósenta öruggar upplýsingar
um hvort hann hefur átröskunar-
sjúkdóm. Gildir það bæði um
búlimíu og lystarstol. Hingað
til hefur verið erfitt að greina
átröskunarsjúkdóma enda eru
þeir gjarnan mjög vel duldir af
þeim sem bera þá. Hér getur því
verið fundin ný og árangursrík
aðferð.
Ný aðferð til grein-
ingar á átröskun
Fimm hár nægja til að meta
með nokkuð óyggjandi hætti
hvort eigandi þeirra eigi við
átröskun að stríða.
FIMM HÁR AF HÖFÐI NÆGJA TIL AÐ AFHJÚPA ÁTRÖSKUNAR-
SJÚKDÓMA.