Fréttablaðið - 24.10.2006, Síða 46
24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1939 Nælonsokkar eru seldir
almenningi í fyrsta skipti í
Washington.
1945 Frakkinn Pierre Laval og
Norðmaðurinn Vidkun
Abraham Quisling eru
teknir af lífi fyrir landráð.
1948 Hugtakið „kalt stríð“ er
notað í fyrsta skipti en
það kom fyrir í ræðu
sem Bernard Baruch
hélt fyrir þingnefnd í
Bandaríkjunum.
2001 Bandaríkjaþing
samþykkir löggjöf sem
heimilar lögreglu að
gera heimildarlausar
húsleitir, hlera símtöl
almennings og fylgjast
með netnotkun.
2001 Marskönnunarfar frá
NASA kemst á sporbaug
Rauðu plánetunnar.
Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu
árið 1975 konum og á alþjóð-
legum frídegi kvenna hinn 24.
október voru konur hvattar til
að taka sér frí frá vinnu og sýna
þannig fram á hversu mikilvægt
og umfangsmikið framlag þeirra
væri til samfélagsins.
Íslenskar konur svöruðu kallinu
í stórum stíl og fjölmenntu á
útifund á Lækjartogi þar sem
saman komu um 25 þúsund
manns.
Samstaða og baráttuvilji
íslenskra kvenna náði athygli
heimspressunnar sem fjallaði um fundinn.
Á meðan konurnar mótmæltu launamisrétti
hægðist á hjólum athafnalífsins og karlmenn
reyndu eftir fremsta megni að fylla skörð
kvenna en margir hverjir mættu með börn sín í
vinnuna þar sem dagvistar-
stofnanir voru meira eða
minna óstarfhæfar. Þá voru
veitingahús í Reykjavík flest
troðfull að kvöldi kvenna-
frídagsins þar sem öll elda-
mennska lá almennt niðri á
heimilum.
Þótt rúm þrjátíu ár séu liðin
frá fundinum stóra og margt
hafi áunnist er jafnréttis-
baráttan enn í fullum gangi
enda á enn eftir að leiðrétta
ýmsar skekkjur og kynbund-
inn launamunur er enn
staðreynd.
Árið 2005 endurtóku íslenskar konur leikinn frá
því fyrir þrjátíu árum og lögðu niður störf og
minntu þannig á að margt af því sem var mót-
mælt árið 1975 stendur enn óhaggað.
ÞETTA GERÐIST: 24. OKTÓBER 1975
Konur geta, þora og vilja
F. MURRAY ABRAHAM ER 67 ÁRA.
„Ég horfði á sjálfan mig í spegli
og fannst ég vera fullkomlega
sannfærandi. Ég var Salieri.“
Leikarinn fór á kostum í kvikmyndinni
Amadeus og er greinilega meðvitaður um
eigið ágæti.
Ungur dósent við lagadeild Háskóla
Íslands, Róbert R. Spanó, fékk viður-
kenningu fyrir lofsvert framlag sitt til
kennslu á brautskráningarhátíð HÍ um
síðustu helgi.
Þessi viðurkenning byggir meðal
annars á ummælum nemenda laga-
deildar í kennslukönnunum og þá aðal-
lega á fyrsta ári. Þar hefur Róbert
borið með sér ferska strauma í kennslu-
háttum og framsetningu námsefnis.
Róbert segist að sjálfsögðu ekki
hafa átt von á því að fá þessa viður-
kenningu. „Ég er afskaplega glaður. Ég
held að það hljóti að vera eitt af því
sem vó þungt að ég hef kannski náð að
gera þetta efni sem oft hefur verið
talið þurrt, skemmtilegt,“ segir Róbert.
„Það skemmtilegasta sem ég geri er að
opna þennan undurfagra heim lög-
fræðinnar fyrir ungu fólki.“
Róbert er aðeins 34 ára en hefur
þrátt fyrir ungan aldur öðlast umtals-
verða kennslureynslu. Hann útskrifað-
ist með meistarapróf á sviði ríkisrétt-
ar frá lagadeild Oxford-háskóla árið
2000. Hlaut hann ágætiseinkunn og
vann til Clifford Chance-verðlauna
fyrir heildarnámsárangur. Róbert var
ráðinn lektor við lagadeild Háskóla
Íslands árið 2002 og ráðinn dósent
2004. Áður hafði hann verið stunda-
kennari við HÍ í hlutastarfi frá 1997 til
2000.
„Nú til dags finnst mér mikilvægt
að háskólastigin fái ungt fólk til að
kenna og miðla upplifun sinni úr
atvinnulífinu. Það skiptir miklu máli
fyrir háskólakennslu að ungt fólk sjái
það sem raunhæfan möguleika að
sinna störfum af þessu tagi, sérstak-
lega þeir sem hafa áhuga á að sinna
fræðistörfum,“ segir Róbert. „Þessi
viðurkenning er mikil hvatning fyrir
mig og lagadeildina.“
Róbert stundar um þessar mundir
rannsóknir á sviði lögskýringarfræði
og hyggst gera bók um það efni, sem
mun bera heitið Túlkun lagaákvæða.
Þegar hann er ekki að vinna í lögfræð-
inni leggur Róbert alla áherslu á fjöl-
skylduna. Er hann kvæntur Örnu
Gunnarsdóttur myndlistarkonu og eiga
þau börnin Egil, Karitas Diljá og Rán.
Á meðal annara áhugamála eru hlaup
og golf.
Aðrir sem fengu viðurkenningar á
brautskráningarhátíðinni eru Guðrún
Helga Agnarsdóttir, verkefnisstjóri á
skrifstofum verkfræði- og raunvís-
indadeilda og Helgi Valdimarsson,
prófessor við læknadeild.
freyr@frettabladid.is
RÓBERT R. SPANÓ: FÉKK VIÐURKENNINGU FYRIR KENNSLU
Opnar háskólanemum undur-
fagran heim lögfræðinnar
VIÐURKENNINGARHAFAR Róbert (lengst til vinstri) við brautskráningarhátíðina ásamt Kristínu Ingólfsdóttur rektor og þeim Guðrúnu Helgu
Agnarsdóttur og Helga Valdimarssyni sem einnig fengu viðurkenningar. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir og mágkona,
Bára Rut Sigurðardóttir
Fífubarði 7, Eskifirði
lést föstudaginn 13. október síðastliðinn. Útför hennar fer
fram frá Áskirkju miðvikudaginn 25. október kl. 13.00.
Emil Thorarensen
Aron Thorarensen
Regína Thorarensen Arnór Friðrik Sigurðsson
Emil Thorarensen
Rósa Geirþrúður Halldórsdóttir
Rósa Sigríður Sigurðardóttir
Þorleifur Már Sigurðsson
Dóra Guðný Sigurðardóttir Jón Harry Óskarsson
Elmar Örn Sigurðsson Tinna Sigurðsson
Kristján Guðni Sigurðsson
AFMÆLI
Magnús Jóns-
son leikari er
41 árs.
Vésteinn Lúð-
víksson skáld er
62 ára.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Anna Guðrún
Steingrímsdóttir
Hávallagötu 30,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 13.
október. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í
dag kl. 13.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristján Árnason Inga Huld Hákonardóttir
Kristín Árnadóttir Fernando Ferrer-Viana
Jón Björnsson
Svínadal, Skaftártungu,
lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum föstudaginn
20. október. Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björn Eiríksson.
Okkar innilegustu þakkir fyrir vináttu,
hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
dóttur, systur, mágkonu og ömmu,
Sigrúnar Magnúsdóttur
Meistaravöllum 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við veita Margréti J.
Pálmadóttur og Gospelsystrum fyrir fallegan söng.
Harpa Jónsdóttir
Andrea Jónsdóttir Marinó Njálsson
Magnús Gunnlaugsson Ólöf Steinunn Einarsdóttir
Gunnlaugur Magnússon Valdís Sveinbjörnsdóttir
Helgi Grétar Magnússon Nadezda Klimenko
Svanhvít Magnúsdóttir
Ægir Magnússon Anna Bragadóttir
Katrín, Freyja og Nói Jón
����
�� �����
���������
�����
����������
�����������������������������������������
����������������������� �������������