Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 49

Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 49
ÞRIÐJUDAGUR 24. október 2006 25 Leikkonan unga Lindsay Lohan er með stór plön fyrir framtíðina. Ekki er nóg með að Lohan ætli að vera gift kona og búin að eignast börn áður en hún verður þrítug heldur ætlar hún að að vera búin að gefa út plötu og vinna Óskarinn fyrir þann tíma. „Ég vil gera plön fram í tímann og þetta er mitt plan,“ segir leikkonan unga en hún hefur ennþá tíu ár til að uppfylla þennan óskalista. Einnig þarf Lohan að finna sér mann til að giftast því nýverið sagði hún skil- ið við kærasta sinn, Hard Rock Café-erfingjann Harry Morton. Stór plön STÓRAR HUGMYNDIR Leikkonan Lohan vill gera mikið áður en hún fyllir þrítugt, meðal annars vinna Óskarsverðlaun og eignast börn. Breska rokksveitin Oasis verður heiðruð á Brit-verðlaununum á næsta ári fyrir framlag sitt í þágu tónlistarinnar. Hljómsveitin hefur selt um fjörutíu milljónir platna síðan hún var stofnuð árið 1993. Henni skaut upp á stjörnuhimininn ári síðar þegar hún gaf út plötuna Definite- ly Maybe. Hafði hún að geyma slagara á borð við Live Forever og Supersonic. Átti sveitin í harðri baráttu við Blur um hvor var sval- ari og betri sveit. Voru forsprakk- ar þeirra ófeimnir við að skjóta hver á annan við sem flest tæki- færi. Brit-verðlaunin verða afhent hinn 14. febrúar í London á næsta ári. Munu bræðurnir Liam og Noel Gallagher væntanlega mæta á svæðið til að taka við verðlaunun- um. Oasis-bræð- ur heiðraðir OASIS Hljómsveitin Oasis verður heiðr- uð á næstu Brit-verðlaunum. [TÓNLIST] UMFJÖLLUN Hljómsveitin The Stranglers hefur átt sérstakan stað í huga margra Íslendinga allt frá því að hún hélt stórtónleika í Laugardalshöllinni í maí 1978, en það voru fyrstu kynni flestra tónleikagesta af pönki. Hún kom svo aftur til Íslands til tónleika- halds fyrir tæpum tveimur árum. Þessi nýja plata Stranglers heitir Suite XVI og er eins og nafnið gefur til kynna sextánda hljóðversplata sveitarinnar. Nú er Paul Roberts, söngvarinn sem kom í stað Hugh Cornwell, hættur og Stranglers eru komnir aftur til EMI sem gaf út öll þeirra bestu verk. Í stað Pauls syngja þeir Jean-Jacques Burnel bassaleikari, Dave Greenfield hljómborðsleikari og Baz Warne gítarleikari. Suite XVI hefur að geyma ellefu ný lög. Margt hljómar kunnuglega hér, m.a. rifna bassasándið hans Jean-Jacques og orgelslaufurnar hans Dave, en vandamálið er að þessi lög hljóma mörg eins og léleg tilraun til að endurtaka snilld fortíð- arinnar. Það er eins og sveitin sé að endurvinna No More Heroes og Something Better Change. Þau lög sem eru ekki með þessum endur- vinnslublæ eru ekkert betri, Stranglers eru greinilega fullir af heift eins og í gamla daga („I hate you now, I always will and when you’re dead I’ll hate you still” úr laginu I Hate You – kannski verið að syngja um Hugh Cornwell?), en hatrið hljómar jafn ósannfærandi og annað á þessari plötu. Heildar- niðurstaðan er óspennandi plata sem á ekkert erindi nema við alhörð- ustu Stranglers-aðdáendur. Trausti Júlíusson Bara fyrir alhörðustu aðdáendurna THE STRANGLERS SUITE XVI Niðurstaða: Íslandsvinirnir í Stranglers eru ekki líklegir til að afla sér margra nýrra aðdá- enda með Suite XVI. Óspennandi plata sem á ekki erindi nema við tryggustu aðdáendurna. Eins og hefur verið venjan á fyrri Airwaves-hátíðum var partí haldið í Bláa lóninu á laugardaginn var. Partíið er ætlað gestum hátíðarinn- ar, erlendum sem innlendum, ásamt því að allri útlenskri pressu var boðið. Gestum lónsins brá þó heldur í brún þegar lítill fjögurra ára gutti mætti til leiks á bak við plötusnúða- borðið, með heyrnartól á eyrunum. Þetta reyndist vera Tristan Ari Margeirsson en hann er sonur plötusnúðarins Margeirs Ingólfs- sonar sem var að spila í partíinu. Tristan fékk mikla athygli hjá erlendum blaðamönnum og ljós- myndurum, sem mynduðu dreng- inn í bak og fyrir. Vel gæti farið svo að drengurinn birtist í frægum tón- listartímaritum innan skamms. Að sögn föður Tristans var þetta hans fyrsta obinberlega gigg en ekki hið síðasta. Greininlega hæfileikaríkur ungur drengur á ferð. - áp Yngsti plötusnúður landsins TRISTAN ARI MARGEIRSSON Yngsti plötusnúður Íslands sem vakti mikla athygli þegar hann var á bak við plötusnúðarborðið í Bláa lóninu og sá um að rúmum 1.000 gestum lónins leiddist ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/LEÓ STEFÁNSSON FLOTTIR FEÐGAR Margeir segir að sonur sinn hafi þarna komið í fyrsta sinn fram opinberlega en þetta verði ekki síðasta skiptið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.