Fréttablaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 54
24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
Fjölmiðlafarsinn í kringum skiln-
að aldarinnar heldur áfram en nú
hefur breska helgarblaðið News
of the World birt frétt þess efnis
að Paul McCartney ætli sér ekki
að taka á Heather Mills með nein-
um silkihönskum. Blaðið hefur
eftir Geoff Baker, fyrrum fjöl-
miðlafulltrúa McCartneys, að
Heather Mills hafi beitt bítilinn
fyrrverandi bæði líkamlegu og
andlegt ofbeldi en Baker var ein-
mitt rekinn úr starfsliði McCartn-
eys fyrir að vara hann við Mills og
tala illa um fyrirsætuna fyrrver-
andi.
Samkvæmt Baker á Mills að
hafa stundað það að henda öllu
lauslegu í eiginmann sinn, kallað
McCartney „gamla karlinn“ í votta
viðurvist, uppnefnt hann á opin-
berum stöðum, krafist þess að
McCartney beitti sínum áhrifum
svo að hún gæti fengið sinn eigin
spjallþátt því allir væru með einn
slíkan, viljað lifa eins og Beck-
ham-fjölskyldan og farið fram á
að McCartney eyddi öllum sínum
peningum í húseignir handa henni.
Heimildarmaður News of the
World, sem vill ekki láta nafns
síns getið, sagði við blaðið að
McCartney ætlaði sér að ganga
frá Mills í réttarsalnum og að hann
hefði sannanir fyrir brjálæðis-
legri hegðun hennar. „Paul eyddi
milljónum í Mills en hún kunni
aldrei að meta það. Hún var eins
og Andy í Little Britain sem vill
alltaf meira og meira. Ef hann
sagði nei þá brjálaðist hún.“
Starfsfólk McCartneys ber
Mills ekki vel söguna og
segir meðal annars frá
tómatsósu-bardaga sem fyr-
irsætan hóf og lauk með
glæsibrag. „Hún var kölluð
Ísdrottningin þegar enginn
heyrði til. Mills leit á okkur
sem þræla,“ segir heim-
ildarmaður blaðsins.
McCartney fer í hart við Heather Mills
MCCARTNEY OG MILLS Fjölmiðl-
ar í Bretlandi hafa tekið málstað
McCartneys í rimmu hans við
Mills og keppast nú um að birta
vondar fréttir af fyrirsætunni.
Ástralski söngfuglinn Kylie Min-
ogue hreifst svo af söngvaranum
Boy George á nýlegum endur-
komutónleikum kappans að hún
hefur ákveðið að syngja með
honum dúett. Nýjasta lag Boy
George nefnist Time Machine og
hefur það vakið mikla athygli.
Ástæðan fyrir þessari ákvörð-
un Minogue er einnig sú að Boy
George var fyrsti söngvarinn sem
hún sá syngja á tónleikum og því
má segja að hann sé eins konar
áhrifavaldur söngfuglsins.
Í samstarf með
Boy George
KYLIE MINOGUE Vill syngja dúett með
Boy George.
Nylon-flokkurinn gaf út sína aðra smáskífu í Bret-
landi í gær þegar lögin Closer og Sweet Dreams komu
út á svokallaðri tvöfaldri a-smáskífu. Nýhafnar hval-
veiðar Íslendinga gætu hins vegar sett smá strik í
reikninginn enda segir Einar Bárðarson, umboðs-
maður hljómsveitarinnar, að Bretar séu brjálaðir yfir
þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar. „Ég held að fólk
geri sér ekki grein fyrir því hversu mikið er fjallað
um þetta hérna, öll blöð eru með þetta á forsíðunni
sinni og nú þykir ekki lengur „cool“ að vera frá
Íslandi heldur „cruel“.“
Einar segir jafnframt að starfsfólkið hjá plötu-
fyrirtækinu sem gefur Nylon út hafi velt því fyrir
sér hvort ekki ætti að taka út allt sem tengdi sveitina
við Ísland. „Þessar hvalveiðar
hjálpa ekki til og plötu-
fyrirtækið vill reyna að
minnka áhrif landsins,
jafnvel að taka út orð
eins og Icelandic af
plötuumslaginu,“
útskýrir Einar og
bætir því við að Nylon-stelpurnar séu þekktir dýra-
vinir en segir þau ekki hafa tekið neinar ákvarðanir
um hvort sveitin eigi að lýsa opinberlega yfir andúð
sinni á hvalveiðum landa sinna. „Ef stelpurnar eru
spurðar hvort þær séu á móti hvalveiðum svara þær
því en ég veit að þær eru allar á móti þeim þannig að
þetta er ekkert vandamál.“ - fgg
Hvalveiðar skemma fyrir Nylon
NYLON Hvalveiðar Íslendinga gætu sett strik í reikninginn hjá þeim en í gær kom smá-
skífan Closer út í Bretlandi.
HVALVEIÐAR Hafa vakið mikla athygli í Bretlandi og eru þar-
lendir fjölmiðlar harðorðir í garð Íslendinga.
Tískuvöruverslunin Kronkron er
orðin tveggja ára gömul og í til-
efni af því var á laugardag haldið
allsherjar partí í húsakynnum
búðarinnar, sem er á horni Lauga-
vegs og Vitastígs. Margmenni var
mætt til að fagna þessum viðburði
enda búðin búin að njóta mikilla
vinsælda síðan hún byrjaði og var
meðal annars valin en af sjö flott-
ustu búðum í heimi af tískuritinu
Eurowoman á dögunum.
Listakonan Hulda Rós var með
sýningu á innsetningu sinni og
gjörningarhópurinn Deja-Deja-
Deja Vu framdi gjörninga fyrir
gesti og gangandi. - áp
Tveggja ára afmæli
Kron Kron fagnað
STOLTIR EIGENDUR Skötuhjúin Hugrún og Magni voru ánægð með búðina sína og
eru hér með verslunarstjóranum Stefáni Svan.
GJÖRNINGUR Hópurinn Deja-Deja-Deja
Vu lék listir sínar fyrir gesti. Hann saman-
stendur af krökkunum Angelica Biddle,
Ásgrími Má Friðriksyni, Bac Stupac,
Malcom Stupak og Ýr Þrastardóttur.
ÞÆGILEGT Eik og Hildigunnur komu sér
vel fyrir meðal fallegs fatnaðar í búðinni.
HRESS Tónlistarmaðurinn Valgeir Sigurðs-
son og Elsa María Blöndal voru glöð í
bragði í afmælinu.
MEÐ BROS Á VÖR Egill Snæbjörnsson og
Ólöf Arnalds heiðruðu Kronkron með
nærveru sinni.
LISTAKONAN Hulda Spiderspoon og
Zachary Fabri stilltu sér upp fyrir ljós-
myndarann en Hulda var einmitt með
listasýningu í Kronkron.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR
T.R. Knight, sem leikur í lækna-
þættinum Gray´s Anatomy, er kom-
inn út úr skápn-
um. Orðómur
um að hinn 33
ára Knight væri
hommi hafði
lengi verið á
sveimi. Ákvað
Knight að leysa
frá skjóðunni í
tímaritinu
People. „Ég vil
helst halda mínu
einkalífi fjarri
sviðsljósinu. Ég
vona að sú stað-
reynd að ég er
samkynhneigður sé ekki það áhuga-
verðasta við mig,“ sagði hann.
Knight fer með hlutverk dr.
George O´Malley í þættinum. Hann
hefur einnig leikið í sjónvarpsþátt-
unum CSI og Law & Order.
Knight út úr
skápnum
T.R. KNIGHT Knight
fer með hlutverk dr.
George O´Malley í
Grey´s Anatomy.
MYND/AP
Leikarinn Wesley Snipes, sem er
eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir
skattsvik, er staddur í Namibíu við
tökur á nýrri kvikmynd, Gallow-
walker. Hefur hann dvalið þar síðan
í ágúst.
Ekki er hægt að framselja
Snipes frá Namibíu til Bandaríkj-
anna og því gæti kappinn haft sig
hægan enn um sinn. Er hann sakað-
ur um að hafa svikist undan því að
borga um 800 milljónir króna í
skatt.
Verði hann fund-
inn sekur á hann
yfir höfði sér
allt að fimmtán
ára fangelsi.
Snipes í
Namibíu
WESLEY SNIPES
Hasarmyndaleik-
arinn er eftirlýstur
af bandarískum
stjórnvöldum.
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �