Fréttablaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 1
Stígur fram
í sviðsljósið
ÁI
N
í hæstu hæðum
tíska tíðarandinn heilsa hönnun pistlar matur stjörnuspá
REGÍNA ÓSK
» Stígur fram í sviðsljósið
GIFTU SIG EFTIR FYRSTA KOSSINN» Nicolette Morrison og Matthew Hugget
LEGGJA SNÖRUR FYRIR 007» Vondu Bondstúlkurnar
EINKAVIÐTAL!BORAT SPURÐUR SPJÖRUNUM ÚR
[6]Baltasar KormákurSNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ Í NÝJUM SMYGLARAÞRILLER ÓSKARS JÓNASSONAROG ARNALDAR INDRIÐA-SONAR.
BRÍET SUNNA
Leitar að
hinum rétta
TOBY OG DILANA Í HÖLLINNIHúsbandið mætirmeð Magna
SIRKUS3. NÓVEMBER 2006
BREYTINGAR HJÁ JEFF WHO • Hljómborðsleikarinn hættur [2]
Baltasar Kormákur
í nýrri mynd
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
www.meistarinn.is
og dekur
hollustu
Veldu
í dagsins önn
Lögreglan á Akureyri rannsakar nú
mál meints barnaníðings gegn tíu ára telpu. Hann
var tekinn til yfirheyrslu fyrr í vikunni og mun
hafa játað sök, samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins.
Aðdragandi þess að athæfið komst upp var sá að
telpan sem um ræðir brotnaði saman á heimili sínu
síðastliðinn föstudag. Hún tjáði móður sinni að hún
byggi yfir leyndarmáli, sem hún mætti ekki tala
um. Fyrir fortölur leysti hún frá skjóðunni og sagði
frá því að tilgreindur maður hefði gert tiltekna
hluti við sig. Talið er að brotin hafi staðið yfir svo
vikum, jafnvel mánuðum skipti. Fulltrúar Barna-
húss fóru norður til Akureyrar í fyrradag og
ræddu við stúlkuna.
Lögreglunni á Akureyri var þegar gert viðvart
og hóf hún þegar að rannsaka málið. Maðurinn var
handtekinn á vinnustað sínum og færður til
yfirheyrslu síðastliðinn þriðjudag, þar sem hann
játaði það sem litla stúlkan hafði greint frá.
Honum var sleppt við svo búið. Lögreglan gerði
húsleit, bæði heima hjá manninum og á vinnustað
hans. Tölvubúnaður hans er til rannsóknar hjá
lögreglunni. Daníel Snorrason rannsóknarlögreglu-
maður á Akureyri kvaðst ekki vilja tjá sig um
málið á þessu stigi.
Fyrsti desember næst-
komandi verður Dagur rauða
nefsins. Rauð nef verða seld er
nær dregur deginum og þriggja
tíma söfnunarútsending verður
síðan 1. desember á Stöð tvö þar
sem landslið grínara mun kitla
hláturtaugar landsmanna.
Markmið söfnunarinnar er að
safna heimsforeldrum sem greiða
mánaðarlegt framlag til hjálpar-
starfs Unicef að sögn Stefáns
Inga Stefánssonar, framkvæmda-
stjóra Unicef á Íslandi.
„Hugmyndin að Degi rauða
nefsins var að nota rautt nef til
þess að hvetja fólk til að styðja
málefni barna.“
Dagur rauða nefsins er eftir
breskri fyrirmynd þar sem breskir
grínarar troða upp og safna fyrir
gott málefni annað hvert ár.
Rauð nef fyrir
gott málefni
Landsbanki Íslands er
skráður eigandi afla af ólöglega
veiddum karfa sem landað var úr
skipinu Thorgull í Hong Kong
þann 17. október síðastliðinn sam-
kvæmt skýrslu sem Fréttablaðið
hefur undir höndum. Svipað tilvik
kom upp í september þar sem
Landsbankinn var skráður eigandi
ólöglegs afla flutningaskipsins
Polestar sem einnig var landað í
Hong Kong.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir fréttir
af þessu hafa komið þeim á óvart.
„Við erum með þá þjónustu hjá
Landsbankanum að við veitum
afurðalán út á birgðir til þeirra
sem kaupa og selja fiskinn, ekki til
þeirra sem eru að veiða. Aflinn er
á okkar nafni til að tryggja að við
höfum hald í vörunni.“
Afli Thorgull var veiddur á
Reykjaneshrygg af skipinu
Pavlovsk, sem er undir eftirliti
Norður-Atlantshafs fiskveiði-
nefndarinnar, NEAFC. Þegar
Pavlovsk lagði að bryggju í Eist-
landi 23. október síðastliðinn leiddi
eftirlit í ljós að um 230 tonnum var
umskipað yfir í Thorgull 27.
ágúst.
Að sögn Kjartans Höydal, fram-
kvæmdastjóra NEAFC hefur
fánaríkið, sem er Bahamaeyjar í
tilviki Thorgull, og norskir eig-
endur skipsins brugðist skjótt við
athugasemdum nefndarinnar.
Höydal segir nefndina aðallega
eiga samskipti við fánaríki og það
sé stjórnvalda í hverju ríki að eiga
við þá sem fjármagna ólöglegar
veiðar. „En það er í sjálfu sér ekk-
ert ólöglegt við það. Vandamálið
er að þeir sem fjármagna veiðar
vita yfirleitt ekki hvað þeir eru að
fjármagna.“
Eftir að þetta kom upp í fyrra
skiptið breytti Landsbankinn lána-
samningum á þann hátt að yrðu
menn uppvísir að kaupum á ólög-
legum afla yrði samningnum rift,
til þess að menn væru ekki að
lenda í þessu grandalausir að sögn
Sigurjóns.
„Auðvitað viljum við ekki að
það sé verið að stunda viðskipti
með þessum hætti. Það eru hags-
munir þessa banka að allt sé heið-
arlegt. Og það eru hagsmunir
okkar sem Íslendinga að það sé
rétt að þessum málum staðið.“
Stefán Ásmundsson, skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
segir afar sjaldgæft að íslensk fyr-
irtæki tengist sjóræningjaveiðum.
Stefán segir allsherjarúttekt á
þessum málum vera í gangi í sjáv-
arútvegsráðuneytinu. Stefán úti-
lokar ekki að frumvarp um þessi
mál verði lagt fram á yfirstand-
andi þingi.
Sjóræningjaafli af Reykjanes-
hrygg í eigu Landsbankans
Tvisvar hefur Landsbanki Íslands veitt afurðalán út á afla sem er ólöglega veiddur. Erfitt að vita hvað verið
er að fjármagna segir framkvæmdastjóri Norður-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar.