Fréttablaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 50
SIRKUS03.11.06
14
1
2
3
1
FM957
2
3
Minnsirkus.is blogg vikunnar Tékkaðu á þessu ...Hlustaðu á þetta ...
um helgina
STEINÞÓR
MÆLIR MEÐ
Hljómsveitin Future Future hefur vakið mikla athygli undanfarið. Á dögunum
gáfu strákarnir út sína fyrstu plötu sem heitir
Insight. Plötuumslagið hefur vakið álíka mikla
athygli og sveitin, en þar eru einhvers konar
slímug innyfli. Future Future þótta standa sig
vel á Airwaves en þeir gefa sjálfir út plötuna
sem er dreift af 12 tónum. Endilega hlustið á
þetta.
Vanished eru magnaðir þættir sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Þetta er
einhver svona 24 fílingur sem grípur mann frá
fyrstu mínútu. Búið er að sýna þrjá fyrstu
þættina en það er auðvelt að komast inn í þetta.
Eiginkonu þingmanns í Bandaríkjunum er rænt
og þá fer boltinn að rúlla. Vel gerðir og alveg
geðveikt spennandi. Tékkaðu á þessu.
Þú ert baralítill tap
pi
BUBBI HRINGDI Í LÖGGUNA
Bubbi Morthens mætti á vinnustofu Tolla bróður síns.
Fljótlega kom bíll frá Vöku og ætlaði að draga jeppa
kóngsins. Bubbi brást illa við en hélt þó kúlinu allan
tímann.
„Djöfull var
ég Tekinn“
„Það munaði
pínulitlu að ég
hefði stútað
honum“„... ahhhhhhh“
„Ég vil fá
lögregluna hingað,
þetta er Bubbi
Morthens“
„Skiptir engu
máli þótt þú sért
Bubbi“
„Ég kom
bara hérna í
eina mínútu“
„Þetta er bara
útkall og ég
verð að draga
hann“
„Þetta er sýning sem var skrifuð árið 1984 af
John Patrick Shanley. Nokkrum árum seinna gerði
hann bíómyndina Moonstruck sem hlaut Óskarinn
en hún er byggð á þessu verki. Hollywood-menn
fegruðu aðeins söguna sem er grófari í okkar
útgáfu,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri
sýningarinnar. Tveir breskir leikarar leika í
sýningunni en Jón Gunnar kynntist þeim úti í
London.
„Ég var að læra í dramacenter í London og
kynntist stúlkunni Nicolette þar. Matthew hinn
leikarinn byrjaði í skólanum en hætti vegna þess
að hann var í mikilli dópneyslu. Hann var í mikilli
neyslu í nokkur ár eða þangað til hann ákvað að
byrja að leika aftur. Þá hitti hann Nicolette og þau
eru gift í dag.“
Jón Gunnar segir leikarana samsama sig vel
persónum verksins. „Þetta fjallar um tvær
manneskju sem hittast á bar og hefja samræður.
Þau eiga ömurlega fortíð og svartan bakgrunn en
ná tengslum í gegnum allt hatrið og byrja að
elska hvort annað.“
Persónurnar eru úr verkamannastéttinni í
London en þar ólust Matthew og Nicolette upp.
„Þar er orðaforðinn öðruvísi og kannski eitthvað
sem við á Íslandi fílum betur. Þetta er líka svona
tónlist sem við hlustum á, eins og Libertines og
Sex Pistols, svona rebel rokk. Við þekkjum breska
menningu og erum svolítið bresk í okkur. Þess
vegna held ég að þetta verk gangi alveg hérna
heima.“
Sýningin var frumsýnd í gærkvöldi en tvær sýn-
ingar fara fram annað kvöld í Austurbæ. „Þetta er
í gamla Silfurtunglinu sem var víst voðalega
subbulegur staður sem við ætlum að endurvekja.“
DANNY AND THE DEEP BLUE SEA PÖNKUÐ ÁSTAR-
SAGA Í GAMLA SILFURTUNGLINU
Íslendingar eru breskir í sér
Leikarar og leikstjóri Matthew, Nicolette og Jón Gunnar Þórðarson í Silfurtunglinu.
„ÞÁ HITTI HANN NICOLETTE
OG ÞAU ERU GIFT Í DAG“
THE SHINS
Phantom Limb
„Nýtt frá
Íslands-
vinunum
af plötu
sem
kemur út á næsta ári. Rífur
upp sólskinið þegar
skammdegið fer að taka
völdin.“
Krípííí draumur
Þannig er mál með vexti að í dag á ég að mæta
til þess að láta taka saumana úr hnénu á mér ...
En það vildi ekki
betur til en svo
að mig dreymdi
að ég væri
liggjandi á
bekknum hjá
lækninum og
segi við hann:
Ég bara skil þetta ekki, allur skurðurinn er
gróinn nema miðjan hún er ennþá opin ? Og
þá segir hann við mig að hann þurfi bara að
skera þetta upp aftur, þannig að hann tekur
umbúðirnar af mér og sprautar mig með
deyfilyfi í hnéð og fer svo fram. En á meðan
hann fer fram þá tek ég hníf sem er á borðinu
og byrja að skera mig sjálfur upp, síðan kemur
hann aftur inn ... Þá er ég kominn með umbúðir
á vinstra hnéð (s.s vitlaust hné) og ég segi við
hann að ég hafi gert mjög mikla vitleysu, þá sér
hann að það blæðir mikið í gegnum umbúðirnar
og segir við mig að þetta hafi verið alltof mikil
vitleysa hjá mér. Þá fer ég í alveg feitt sjokk !
Segi við hann: Og hvað ??? Var hnífurinn
hreinn ? þarftu að sauma mig aftur ? Svo bara
fucking vakna ég .
Heftari.minnsirkus.is
Nóbelsverðlaunin til mín
„Við í vestrænu ríkjunum losum okkur við sífellt
meira rusl en það sem við gerðum okkur ekki
grein fyrir [er að] á ruslahaugunum lifir óragrynni
af atvinnulausum tónlistarmönnum sem sökka.
Ruslahaugarnir hafa haldið lífinu í þessu fólki
sem annars hefði látið lífið vegna hungurs og
innbyrðis átaka. En
um það leyti sem
rappið fór að slá í
gegn og boybönd-
in fór haugafólkið
að færa sig um
set, það uppgötv-
aði að plötuútgefendur spáðu ekkert í tónlistina,
bara lúkkinu þannig að hinir ömurlegu
tónlistarmenn hauganna grömsuðu vel og vand-
lega á haugunum, fundu föt og farða, löbbuðu
inn hjá plötufyrirtækjum og fengu öll samning.“
Kukaluka.minnsirkus.is
PETER, BJORN AND JOHN
Young Folks
„Hvernig er ekki hægt að fá
þetta ofursænska lag á
heilann? Langbesta popplag
ársins.“
TWILIGHT SAD
And She Would Darken the
Memory
„Fyrir mér persónulega er
þetta uppgötvun ársins. Bíð
slefandi eftir frumburði
þessarar Glasgow-sveitar.“
James Morrison
You give me something
„Frábær
ballaða frá
nýjum
listamanni
sem á eftir að
láta mikið að sér kveða á
komandi mánuðum og
árum. Tékkaðu á plötunni
hans, Undiscovered.“
Amy Winehouse
Rehab
„Fyrsta lagið
sem fer í
spilun á fm
með þessari
söngkonu.
Manni líður eins og maður
sé að hlusta á tónlist úr
myndinni Dirty Dancing
þegar maður hlustar á þetta
lag.“
Fergie
Fergalicious
„Annað lagið
sem fer í
spilun á fm
frá Black
eyed peas
söngkonunni
Fergie. Nettur Gwen
Stefani fílingur í þessu lagi.
Er að stimpla sig rækilega
vel inn á stöðina.“
HEIÐAR AUSTMANN
MÆLIR MEÐ