Fréttablaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 82
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
Hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Atli Viðar Björnsson,
leikmaður FH, verður að óbreyttu
samningslaus um áramótin er
samningur hans við FH rennur út.
Ólafur Jóhannsson, þjálfari FH,
hefur látið hafa eftir sér að FH
hafi gert Atla nýtt tilboð en hann
segir það rangt.
„Það er ekki rétt, ég hef ekki
fengið tilboð og veit ekki hvenær
það er á leiðinni. Ég hitti FH-inga
fyrir þremur vikum og þá sögðust
þeir ætla að svara mér daginn
eftir en ég hef ekkert heyrt. Ég
hef heyrt af áhuga annarra liða
en það er ekkert fast í hendi enn
sem komið er,“ sagði Atli.
Hann varð fyrir því óláni að
slíta krossbönd í hné í sumar en
er á góðum batavegi og vonast til
að byrja að spila á ný um
páskana.
Ekki með til-
boð frá FH
UEFA-bikarkeppnin
Meistaradeild Evrópu
Fram tapaði í gær
sínum fimmta leik í röð í meist-
aradeild Evrópu er liðið mætti
Gummersbach í Þýskalandi. Eins
og við var að búast unnu Þjóðverj-
arnir fremur öruggan sigur, 38-29,
en það er ekki tekið af liðsmönn-
um Fram að þeir börðust eins og
ljón og spiluðu á köflum frábæran
handbolta.
Framarar byrjuðu á því á fyrstu
fimm mínútum leiksins að missa
tvo menn út af í tvær mínútur en
þrátt fyrir það gáfust þeir ekki
upp og héldu í við Þjóðverjana.
Þeir bættu heldur í og í stöðunni 6-
6 skoruðu Íslandsmeistararnir
næstu fjögur mörk leiksins. Þessu
hefðu fáir búist við og sér í lagi
Alfreð Gíslason, þjálfari Gumm-
ersbach, sem hafði til þessa hvílt
Róbert Gunnarsson og Guðjón Val
Sigurðsson. Þeir komu þó fljótt
inn á og eftir það vænkaðist hagur
heimamanna.
Daniel Narcisse fékk greini-
lega smá hnjask í upphafi leiks því
Guðjón Valur var settur í stöðu
leikstjórnanda. Það gekk brösu-
lega hjá honum til að byrja með en
undir lok hálfleiksins var hann
búinn að finna taktinn. Hann leiddi
sóknarleik Gummersbach áfram
og í hálfleik leiddu þeir með fimm
mörkum.
Það var vitað að Fram myndi
eiga í erfiðleikum með sóknarleik
heimamanna en þeir gengu á lagið
í eigin sóknarleik, sér í lagi á þess-
um góða leikkafla. Hornamenn-
irnir Stefán Stefánsson og Þorri
Gunnarsson áttu frábæran leik og
skoruðu átta mörk úr níu tilraun-
um. En eftir því sem á leið fór óða-
got að einkenna sóknarleik Fram
með fyrrgreindum afleiðingum.
Markvarsla Gummersbach var
bókstaflega engin til að byrja með
og var Alfreð fljótur að skipta
Ungverjanum Fazekas út af. En
eftir að Christian Ramota fékk að
verja nokkur skot frá Fram var
hann kominn í gang og reyndist
íslensku leikmönnunum erfiður.
Eftir því sem á leið leikinn
reyndust skytturnar Narcisse og
Vucicevic Björgvini erfiðir. En
Björgvin, sem hefur átt frábært
tímabil, átti afar góðan leik í gær
og varði oft stórglæsilega. Það er
deginum ljósara að þátttaka Fram
í þessari keppni hefur reynst
honum afar vel.
Framarar héldu haus lengst af í
fyrri hálfleik og náðu að minnka
muninn í þrjú mörk. Þeir fengu
tækifæri til að minnka muninn í
tvö mörk en töpuðu boltanum
klaufalega. Guðjón Valur skoraði
strax úr hraðaupphlaupi og bætti
svo við tveimur eins á næstu sek-
úndum að því er virtist. Fjórða
hraðaupphlaupsmarkið kom svo í
kjölfarið og munurinn orðinn sjö
mörk, 29-22. Eftir þetta var bara
spurning um að láta tímann líða og
voru lokatölur 38-29.
Hverju sem líður var frammi-
staða Fram á þessum gríðarlega
sterka útivelli afar góð og þó svo
að liðið sé enn stigalaust í riðlin-
um skal engum dyljast að liðinu
hefur tekist að vinna þrekvirki
gegn þeim sterku liðum sem það
hefur mætt.
Fram tapaði í gær fyrir Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í Gummersbach
í meistaradeild Evrópu. Fram lék á köflum glæsilegan handbolta og geta liðs-
menn gengið með höfuðið hátt eftir frammistöðuna.
Hrakfarir ÍR-inga í
Iceland Express-deildinni halda
áfram en í gær biðu þeir lægri
hlut á heimavelli sínum í Selja-
skóla fyrir Snæfelli, 61-74. Þetta
var merkilegur leikur fyrir
margra hluta sakir en athyglin
beindist helst að Bárði Eyþórs-
syni, þjálfara ÍR, sem var þarna
að mæta sínum gömlu lærisvein-
um. Á endanum þurfti hann að játa
sig sigraðan en lið ÍR hefur farið
illa af stað í deildinni og aðeins
náð einum sigri í fimm leikjum en
Snæfellingar hafa hins vegar
unnið alla sína leiki nema einn.
Snæfellingar voru vel studdir
af dyggum stuðningsmönnum
sínum sem fjölmenntu og yfir-
gnæfðu heimamenn. Lið Snæfells
fór betur af stað en náði ekki að
hrista ÍR-inga frá sér í fyrsta leik-
hluta og fór með fjögurra stiga
forskot inn í þann annan. Þar voru
Snæfellingar mun sterkari og
náðu mest tíu stiga forskoti en
staðan var 30-38 í hálfleiknum.
Í þriðja leikhluta náðu ÍR-ingar
upp fínum takti, náðu að minnka
muninn niður í fimm stig fyrir
þann síðasta og voru raunar
óheppnir að munurinn var ekki
minni. Þegar á hólminn var komið
reyndust Snæfellingar hins vegar
sterkari og hrósuðu þrettán stiga
sigri.
„Þeir voru einfaldlega sterkari
og eiga sigurinn skilinn. Við erum
aðeins á eftir öðrum liðum en við
verðum að halda áfram að laga
það. Í þessum leik voru margir
ljósir punktar sem hafa ekki sést
hjá okkur í öðrum leikjum. Meðan
við bætum okkur leik frá leik er
ég mjög sáttur,“ sagði Bárður
Eyþórsson eftir leikinn en hann er
ekkert hræddur þrátt fyrir slæma
byrjun ÍR-liðsins. „Það eru bara
fimm leikir búnir svo við erum
alveg rólegir.“
Bárður lagður af
gömlu lærisveinunum