Fréttablaðið - 03.11.2006, Side 2
Angist og gleði
bernskunnar
edda.is
Jón Gnarr: Indjáninn
- skálduð ævisaga
Franska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að aflétta leynd af
skjölum um þjóðarmorðin í
Rúanda árið 1994, eftir að franski
herinn var kærður fyrir að taka
þátt í þeim. Þetta kom fram á
fréttavef BBC í gær.
Verða 105 skjöl send til
dómara, sem ætlað er að rann-
saka þessar ásakanir fjögurra
manna sem lifðu ofbeldið af.
Um 800.000 manns voru myrtir
á 100 dögum í ofbeldisöldunni
sem öfgasinnaðir hútú-menn
beindu gegn tútsum og hófsömum
hútúum. Segja hinir eftirlifandi
að franskir hermenn hafi nauðgað
og myrt fólk, sem og hleypt
morðingjum inn í flóttamanna-
búðir.
Leynd aflétt af
Rúandaskjölum
Ríkir karlaveldi innan nem-
endafélaga framhaldsskól-
anna?
„Það hefur náðst pólit-
ísk sátt um meginlínurnar,“ segir
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, um fjölmiðla-
frumvarpið sem menntamálaráð-
herra mælti fyrir á Alþingi í gær.
Kolbrún segir pólitísk átök að
baki, þau hafi farið fram innan
nefndarinnar sem vann skýrslu
um fjölmiðla en frumvarpið er
byggt á henni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir að náðst hafi þokkaleg niður-
staða í málinu og að mikilvæg
ákvæði um dreifiveitur og gagn-
sæi í eignarhaldi séu í frumvarp-
inu.
Hún segir skorður við eignar-
haldi sanngjarnar og telur ekki að
brjóta þurfi fjölmiðlafyrirtækin
upp. „Auðvitað má deila um hvert
hlutfallið eigi að vera en ég tel að
meðalhófs sé gætt og að fjölmiðla-
fyrirtækin geti lifað við þetta.“
Þótt Magnús Þór Hafsteinsson,
þingmaður Frjálslynda flokksins,
sé sammála meginlínunum útilok-
ar hann ekki, frekar en Kolbrún
og Ingibjörg Sólrún, að frumvarp-
ið kunni ekki að breytast í meðför-
um menntamálanefndar. Hann
segir að tiltölulega einfalt hafi
verið að ná sátt í fjölmiðlanefnd-
inni og að ríkisstjórnin hefði betur
stýrt málinu í slíkan farveg haust-
ið 2003. „Þá hefði samfélagið
sloppið við þessa tilgangslausustu
umræðu sem farið hefur fram á
Íslandi,“ segir Magnús Þór og á
þar við átökin um fjölmiðlalögin
hin fyrstu 2004.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra segir
sáttina í raun meiri en hún hafi
búist við og sjáist það ekki síst á
því að meirihluti umræðunnar á
þingi í gær snerist um gamla
frumvarpið og Ríkisútvarpið.
„Þetta er mjög viðkvæmt mál sem
leiddi til stjórnskipulegrar krísu á
sínum tíma en nú er það komið í
nýjan farveg,“ segir Þorgerður
Katrín. Um áhrif eignarhluta-
ákvæðisins á fjölmiðlafyrirtækin
segir Þorgerður að þau verði að
laga sig að því. „Stór eigandi að
fjölmiðlum lagði til að eignarhald-
ið miðaðist við 25 prósent og það
er það sem við erum að ræða
um.“
Í ræðu sinni staldraði Ingibjörg
Sólrún við frumvarpið frá 2004 og
sagði himin og haf skilja það og
nýja frumvarpið. „Það er ekki
hægt að líta öðru vísi á en að menn
hafi verið að reyna að brjóta niður
365 fjölmiðla. Þetta var aðför.“
Sátt um meginefni
fjölmiðlafrumvarps
Stjórnarandstaðan er hlynnt nýju frumvarpi um fjölmiðla. Í því er kveðið á
um að enginn megi eiga meira en fjórðungshlut í fjölmiðli með ráðandi stöðu.
Menntamálaráðherra segir fjölmiðlafyrirtækin þurfa að laga sig að því.
Ráðamenn ríkisrek-
ins gasfyrirtækis í Rússlandi,
Gazprom, tilkynntu í gær að þeir
myndu meira en tvöfalda verð á
gasi sem þeir selja til nágrannarík-
isins, Georgíu.
Utanríkisráðherra Georgíu,
Bela Bezhuashvili, tilkynnti á
blaðamannafundi að hann hefði þó
fengið loforð um að Rússar myndu
ekki loka á gasflutning til landsins,
líkt og þeir gerðu við Úkraínu fyrr
á þessu ári. Samskiptin milli
Georgíu og Rússlands hafa verið
afar stirð undanfarið, og bætir
þessi ákvörðun líklega ekki ástand-
ið.
Georgíumenn
borgi tvöfalt
„Umfjöllun blaðsins er
í raun ekki svaraverð“, segir
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
KB banka, um
skrif Ekstra
blaðsins um
íslenskt
viðskiptalíf að
undanförnu.
Hreiðar segir
að umsvif
Íslendinga í
Danmörku séu
orðin veruleg
og hafi aukist
mjög á stuttum
tíma. „Það er líklega þessi snögga
framganga sem veldur þessu“,
ályktar Hreiðar.
Hreiðar telur að skrif Ekstra
blaðsins muni ekki hafa neikvæð
áhrif á rekstur fyrirtækisins í
Danmörku eða annars staðar.
„Það var fyrirsögn hjá TV2 þar
sem þessu var líkt við storm í
vatnsglasi. Það er kannski besta
lýsingin.“
Umfjöllunin
ekki svaraverð
Tveimur mönnum sem
eiga á annan tug hrossa á jörð í
Dalabyggð hefur verið gert að
bæta fóðrun hrossa sinna þar sem
búfjáreftirlitsmaður og héraðs-
dýralæknir telja hana með öllu
óviðunandi. Í bréfi til sveitar-
stjóra segja þeir hrossin hafa
verið orðin ansi aflögð og „sér-
staklega voru trippi í hópnum
orðin horuð“. Sveitarstjóri hefur
gefið eigendum frest fram á mánu-
dag til úrbóta.
Eigendur hrossanna, sem
búsettir eru á höfuðborgarsvæð-
inu, hafa ekki farið að lögum um
búfjárhald, að sögn Gunnólfs Lár-
ussonar sveitarstjóra. Samkvæmt
þeim þarf að vera með skipaðan
tilsjónarmann með eyðijörðum,
sem sveitarstjórn hefur sam-
þykkt, til að halda búfé á þeim.
Sveitarstjórn hefur farið þess á
leit við jarðeigendurna en þeir
hafa ekki orðið við þeim tilmæl-
um.
Auk holdafars hrossanna bentu
búfjáreftirlitsmaður og héraðs-
dýralæknir á að þau þyrftu að
hafa sómasamlegt fóður og húsa-
skjól í vetur, en hvorugt mun fyrir
hendi nú. Ella verði hrossin annað-
hvort seld hæstbjóðanda eða
komið í sláturhús. Jafnframt
benda þeir á að girðingar umhverf-
is jörðina séu mjög lélegar og þess
dæmi að hrossin hafi sloppið upp á
Vesturlandsveg.
Horuð hross án skjóls og fóðurs
Efling stéttarfé-
lag stendur fyrir kynningar-
fundum fyrir Pólverja í bygg-
ingariðnaði og er meiningin að
kynna þeim réttindi þeirra og
skyldur á íslenskum vinnumark-
aði.
Tryggvi Marteinsson,
þjónustufulltrúi hjá Eflingu,
segir að stefnt sé að því að fá
alla Pólverjana tólf hundruð,
sem starfa í byggingariðnaði hér
á landi, á slíkan kynningarfund.
Búið er að senda út boðsbréf
til fyrstu Pólverjanna og var
óformlegur fundur haldinn með
þeim nýlega. Pólskur túlkur
verður á hverjum fundi.
Heldur fundi
fyrir Pólverja
Ari Edwald, forstjóri
365 miðla, segir að engar formleg-
ar viðræður hafi farið fram á milli
fyrirtækisins og Skjásins um sam-
einingu fyrirtækjanna.
Ari neitar því hins vegar ekki
að aðstandendur fyrirtækjanna
hafi ,,kastað þeirri hugmynd á
milli sín“ að sameining þeirra
gæti verið skynsamleg.
,,Ég held að allir sem þekkja til
þessara tveggja fyrirtækja geti
verið sammála um að sameining
þeirra sé mjög skynsamleg, þó að
ýmis ljón séu í veginum. Enda má
segja að hugmyndin sem slík hafi
oft skotið upp kollinum frá stofn-
un Skjásins,“ segir Ari.
Að sögn Ara er helstu fyrir-
stöður sameiningarinnar að eig-
endur fyrirtækjanna þurfi að
máta saman hagsmuni sína áður
en formlegar viðræður um hana
fara fram, auk þess sem sam-
keppnisftirlitið kynni að hafa
skoðanir á henni. Ari telur jafn-
framt að þessar fyrirstöður ættu
ekki að þurfa að koma í veg fyrir
sameiningu fyrirtækjanna ef for-
svarsmenn þeirra komast að sam-
komulagi um hana. Hann bætir
því við að sameiningin sé hins
vegar aðeins hugmynd um þessar
mundir.
Magnús Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Skjásins, vildi ekki tjá
sig um málið þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann.
Ari Edwald segir sameiningu
geta verið mjög skynsamlega
Á hverju ári eru 10.000
Danir lagðir inn á sjúkrahús og
300 deyja eftir að hafa stundað
óvarið kynlíf, kemur fram í frétt
Politiken. Lýðheilsustöð Danmerk-
ur tók saman tölurnar sem sýna að
hálft prósent allra dauðsfalla í
landinu má rekja til sjúkdóma sem
smitast í gegnum óvarið kynlíf.
Athygli vekur að slíkt kynlíf
virðist mun hættulegra konum en
körlum, því þrisvar sinnum fleiri
konur deyja vegna þess en karlar.
Flestir karlar deyja úr eyðni, en
konur úr legkrabbameini og þær
konur sem fá eyðni deyja fyrr en
karlar með sama sjúkdóm.
Óvarið kynlíf
er banvænt