Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.11.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 03.11.2006, Qupperneq 4
 Vandræðaleg uppákoma hjá Demókrataflokkn- um setti svip sinn á kosningabar- áttuna í Bandaríkjunum nú í vik- unni, en kosningar verða á þriðjudaginn í næstu viku. John F. Kerry, sem bauð sig fram á móti Bush í forsetakosningunum fyrir tveimur árum, baðst í gær afsök- unar á ummælum sínum um bandaríska hermenn, sem repúblikönum og sumum demó- krötum þóttu vera niðrandi. Kerry sagði ummælin reyndar hafa verið „mistúlkuð“ og vonað- ist til þess að þau drægju ekki athyglina frá öðru sem máli skipt- ir í aðdraganda kosninganna. Þau hafi einungis verið misheppnaður brandari. Hins vegar sagðist hann innilega iðrast ummælanna og bað alla bandaríska hermenn, fjöl- skyldur þeirra og þjóðina alla afsökunar. Ummælin umdeildu féllu á fundi með háskólanemum í Kali- forníu á mánudaginn. Hann hvatti stúdentana til þess að sinna nám- inu vel, að öðrum kosti gætu þeir á endanum orðið „fastir í Írak“, og þótti með þessu gefa í skyn að þeir sem legðu fyrir sig hermennsku væru verri námsmenn. Stríðið í Írak hefur verið mest áberandi kosningamálið undan- farnar vikur og virðist ætla að kosta Repúblikanaflokkinn tölu- vert fylgi. Skoðanakannanir hafa undan- farið bent til þess að Repúblikana- flokkurinn muni missa meirihluta sinn, annaðhvort í báðum þing- deildum eða annarri þeirra. Fari svo, þá verður George W. Bush forseti illa staddur síðustu tvö árin í þessu valdamikla embætti, þar sem hann þyrfti jafnan á stuðningi andstæðinga sinna að halda til þess að koma málum í gegnum þingið. Bush sagðist hins vegar í gær vera sannfærður um að Repúblik- anaflokkurinn héldi meirihluta sínum í báðum þingdeildum. Hann hélt síðan frá Washington vestur á bóginn þar sem hann ætlaði að koma fram á kosningafundum, en bæði Bush forseti og Laura eigin- kona hans hafa mætt á fjölmarga kosningafundi vítt og breitt um landið síðustu dagana. „Ég trúi því ekki að þetta sé búið fyrr en allir eru búnir að kjósa,“ sagði Bush og virtist von- góður. „Og ég trúi því að fólk hafi áhyggjur af því hvað það borgar mikið í skatta, og ég veit að marg- ir hafa áhyggjur af því hvort land- ið sé varið gegn árásum eða ekki.“ Kerry baðst forláts Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er að ná hámarki. Stríðið í Írak er sem fyrr mest áberandi af kosningamálunum, en umdeild ummæli Johns Kerrys um bandaríska hermenn hafa dregið að sér athyglina í þessari viku. Norski þingmað- urinn Dagfinn Høybraten var í gær kjörinn forseti Norðurlanda- ráðs. Hann segist meðal annars vilja beina sjónum norræns samstarfs að málefnum norðurslóða, bæði gagnvart Evrópusamband- inu, Bandaríkj- unum og Rússlandi. Noregur tekur á næsta ári einnig við formennsku í Norðurskauts- ráðinu – reyndar munu Norður- lönd gegna þeirri formennsku hvert á eftir öðru næstu sex ár – og það vill Høybraten nýta til að hámarka árangur í þessum málaflokki. Høybraten er formaður Kristilega þjóðarflokksins í Noregi og var félagsmálaráð- herra í síðustu stjórn Kjell- Magne Bondevik. Hann er mikill áhugamaður um hestamennsku og á þrjá íslenska hesta. Áhersla á norðurslóðir Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS SUBARU FORESTER CS Nýskr. 10.06 - Beinskiptur - Ekinn 1 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.540 .00.- Ríkisstjórn Írlands hefur ákveðið að taka fyrir allar reknetaveiðar á laxi við strendur landsins. Lagt er til algjört bann við reknetaveiðum á laxi frá næstu áramótum og að 30 milljónum evra verði varið til að bæta 877 sjómönnum upp þann tekjumissi sem þeir hljóta af banninu. Þetta er mikill sigur fyrir Orra Vigfús- son, formann Norður-Atlantshafs- laxasjóðsins (NASF), sem hefur lengi barist fyrir upptöku net- anna. „Ég hef verið þarna með annan fótinn í fjórtán ár og hef hitt alla sjávarútvegsráðherrana frá 1991. Það má segja að verkefni sjóðsins sé nú að mestu lokið því nú hefur verið tekið fyrir nær alla neta- veiði í sjó. Hlutur Íra var mjög stór svo þetta er stórsigur.“ Orri segir að NASF þurfi að beita sér fyrir því að hafa gott eftirlit með framkvæmd bannsins á næstu árum. Bann við reknetaveiðum Íra kemur mörgum laxastofnum til góða. „Þetta er lax sem gengur frá Frakklandi, Spáni og Þýskalandi. Hér er verið að opna fyrir þann möguleika að endurreisa marga laxastofna í Evrópu sem ekki hefur verið hægt að gera til þessa vegna þessara veiða,“ segir Orri. Næstu verkefni NASF er að fylgjast með að banninu við Írland verði framfylgt og uppræta lax- veiðar í sjó við Noreg, sem eru þær síðustu í Evrópu. Netaveiðum við Írland hætt Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Kópavogi í fyrrinótt. Við húsleit á höfuðborgarsvæðinu fannst nokkuð magn af hassi, e-töflum og maríjúana og var tvítugur karlmaður handtekinn á staðnum. Fíkniefnin voru vafin í söluum- búðir og viðurkenndi karlmaður- inn að þau væru ætluð til sölu. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum en málið er í rannsókn. Þá komu upp þrjú minni háttar fíkniefnamál við götutékk og voru þrír aðilar handteknir en látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Þau mál teljast upplýst. Fíkniefnin voru ætluð til sölu Tillaga um að gangbrautarljós sýni konu en ekki karl á fimm stöðum í borginni var lögð fram í mann- réttindanefnd Reykjavíkurborgar á miðvikudaginn af Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni. Í greinargerð sem fylgdi tillögunni var bent á að skilaboð táknmynda geti haft áhrif á viðhorf fólks og upplifun af samfélagi sínu. Tillögunni var vísað til borgarráðs til frekari umræðu að sögn Bryndísar sem sagði henni hafa verið vel tekið í nefndinni. Kona í karls stað á ljósum Leigubílar í akstri með farþega fá framvegis forgang á aðra bílaumferð á götum borgarinnar. Fram- kvæmdaráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leigubílum sé heimilt að aka á sérakreinum strætisvagna þar sem þær eru, til dæmis á Miklubraut í Reykjavík. Það skilyrði er sett að leigubílar nýti eingöngu akrein- arnar þegar um farþegaflutninga gegn gjaldi er að ræða. Ákvörð- un þessi var tekin að fenginni umsögn lögreglustjórans í Reykjavík. Leigubílar á strætóbrautir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.