Fréttablaðið - 03.11.2006, Síða 12
Skipting, umfelgun og
jafnvægisstilling fyrir fólksbíl á
sextán tommu dekkjum með stál-
felgum er dýrust hjá Betra gripi í
Lágmúla en þar kostar þjónustan
7.760 krónur. Ódýrust er þjónust-
an hjá Bílkó í Kópavogi þar sem
hún kostar 4.690 og er munurinn
því 3.070 krónur eða 65,5 prósent.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri verðkönnun sem
verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 28
þjónustuaðilum á höfuðborgar-
svæðinu nú í vikunni.
Þjónustan fyrir fólksbíl á þrett-
án til fimmtán tommu dekkjum
var dýrust hjá Hjólvest, Hjól-
barðahöllinni, Gúmmívinnustof-
unni og Dekkinu þar sem hún kost-
aði 5.800 krónur. Ódýrust var
þjónustan hins vegar hjá Dekkja-
lagernum á Smiðjuvegi þar sem
hún kostaði 4.600 krónur og er
munurinn því 26 prósent.
Þjónusta hjólbarðaverkstæða
við fólksbíla hefur hækkað um
átta til níu prósent að meðaltali
frá síðustu könnun verðlagseftir-
litsins fyrir rúmu ári. Meiri hækk-
un hefur þó orðið á þjónustu við
stærri fólksbíla á stálfelgum og
nemur hún rúmum ellefu prósent-
um frá fyrra ári.
Þjónusta fyrir jeppa hefur
hækkað minna eða um fjögur til
sjö prósent á milli ára.
Ríflega 3.000 króna verðmunur
Anna Sigríður Guðna-
dóttir býður sig fram í 4. til 5.
sæti á lista í
prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Suðvesturkjör-
dæmi.
Anna Sigríður
er varabæjarfull-
trúi í Mosfellsbæ,
varaformaður
Samfylkingarinn-
ar í Mosfellsbæ og hefur setið í
blaðstjórn félagsins.
Hún er fulltrúi flokksins í
fræðslunefnd og heilbrigðisnefnd
Kjósarsvæðis. Auk þess á Anna
Sigríður sæti í flokksstjórn og í
varastjórn Kvennahreyfingar
Samfylkingarinnar.
Býður sig fram
í 4. til 5. sæti
Með breytingum á
umferðarlögum hækka sektir
vegna umferðarlagabrota eins og
hraðaksturs og ölvunaraksturs.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur þegar skrifað undir
nýjar reglugerðir en brýnt þótti
að endurskoða upphæðir sekta þó
ekki væri nema til að halda í við
verðlagsþróun. Í reglugerðinni,
sem taka mun gildi 1. desember,
verður hægt að sekta fyrir
hraðakstursbrot sem nema 5 km
umfram hámarkshraða en nú er
miðað við 10 km.
Í apríl á næsta ári taka síðan í
gildi lög sem gera ráð fyrir upp-
töku ökutækja vegna grófra og
ítrekaðra brota. Í frumvarpinu er
einnig lagt til að sérstaklega hart
verði tekið á hraðakstursbrotum
þegar ekið er á og yfir tvöföldum
hámarkshraða.
Pétur Pétursson, framkvæmda-
stjóri vátrygginga- og fjármála-
þjónustu hjá TM, segir fyrirhug-
aðar breytingar á umferðarlögum
ágætis lið í því að bæta umferðar-
menningu og fækka slysum. „Það
er ánægjulegt að stjórnvöld skuli
taka þetta skref þó það sé að sjálf-
sögðu hugarfarsbreyting öku-
manna sem skilar mestu. Trygg-
ingafélög hafa þurft að hækka
iðngjöld bifreiða til að standa
straum af þeim gríðarlega tjóna-
fjölda í umferðinni sem fer sífellt
vaxandi.“ Pétur segir að til skoð-
unar sé að hækka iðgjöld enn
meira ef tjónum heldur áfram að
fjölga.
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu,
segist fagna öllum skrefum sem
miða að því að taka á alvarlegri
áhættuhegðun í umferðinni. Einar
Magnús segir ástæðu til að gera
nýtt áhættumat á vegum og stofn-
brautum með það í huga að hækka
hugsanlega hámarkshraða.
Í lagabreytingum sem taka
gildi í apríl 2007 verður ökuleyfis-
svipting ökumanna með bráða-
birgðaskírteini miðuð við fjóra
punkta en í núverandi kerfi eru
þeir sjö. Þetta þýðir að ökuleyfis-
svipting yrði í kjölfar þess að aka
yfir á rauðu ljósi en slíkt athæfi
mun kosta fjóra punkta. Einar
segir þessa breytingu í samræmi
við það sem þekkist í nágranna-
löndum okkar. Í kjölfar ökuleyfis-
sviptingar geta ökumenn með
bráðabirgðaskírteini átt von á því
að þurfa að þreyta ökupróf að nýju
með tilheyrandi kostnaði.
Ökuníðingar hljóta
mun þyngri refsingar
Sektir vegna umferðarlagabrota munu hækka og gert er ráð fyrir upptöku
ökutækja vegna grófra og ítrekaðra brota. Þetta er eitt af því sem fram kemur í
nýjum lögum sem taka munu gildi 1. desember og í apríl á næsta ári.
Það er ánægjulegt að
stjórnvöld skuli taka
þetta skref þótt það sé að sjálf-
sögðu hugarfarsbreyting öku-
manna sem skilar mestu.
Guðjón Guðmundsson
varaþingmaður tók sæti Einars K.
Guðfinnssonar sjávarútvegsráð-
herra á Alþingi á þriðjudag.
Guðjón sat um árabil á þingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og vakti
ekki síst athygli fyrir baráttu sína
fyrir að Íslendingar tækju upp
hvalveiðar á ný. „Þegar ég flutti
málið í fjórða sinn 1999 var það
loksins samþykkt. Þá var
hvalveiðibanninu aflétt og
ríkisstjórninni falið að fylgja því
eftir,“ segir Guðjón.
Hann telur sig ekki verða
verkefnislausan í stjórnmálunum
eftir að veiðar hófust á ný, alltaf
séu verkefni að fást við.
Helsta baráttu-
málið í höfn
Fjöldi fólks kom
saman við Óshólavita í Óshlíð á
miðvikudag til að biðja fyrir
vegfarendum og þeim sem taka
ákvarðanir um endurbætur
vegasamgangna. Tilefnið var sú
hætta sem stafar af grjóthruni úr
fjallinu en sr. Skírnir Garðarsson
annaðist bænastundina.
Valrún Valgeirsdóttir, einn
skipuleggjenda bænastundarinn-
ar, sagði bænastundina lið í að
halda fólki vakandi gagnvart
hættum í Óshlíðinni og ýta á eftir
fregnum af því hversu langt sé í
vegaframkvæmdir á svæðinu.
Beðið fyrir
vegfarendum
Samúel Örn Erlings-
son, deildarstjóri íþróttadeildar
Ríkisútvarpsins,
gefur kost á sér í
2. sæti á fram-
boðslista Fram-
sóknarflokksins í
Suðvesturkjör-
dæmi fyrir
alþingiskosning-
arnar í vor.
Samúel Örn er
varabæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Kópavogi, formaður
leikskólanefndar bæjarins og
varaformaður hafnarstjórnar.
Hann starfaði sem íþróttafrétta-
maður og fréttamaður á Ríkisút-
varpinu og Tímanum um árabil og
hefur tekið þátt í félagsmálum og
starfað í íþróttahreyfingunni.
Gefur kost á sér
í 2. sætið