Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 13
Óánægju gætir meðal
foreldra í Vesturbænum vegna
nýrra reglna varðandi skólaakstur
eða strætómiða í skólann. Ungling-
ar í sjötta til tíunda bekk verða nú
að búa í meira en tveggja kílómetra
fjarlægð frá Hagaskóla til að fá
strætómiða og hafa ekki í annan
skóla að venda þar sem Hagaskóli
er eini grunnskólinn í Vesturbæn-
um fyrir áttunda til tíunda bekk.
Reglurnar tóku gildi í marsbyrj-
un 2005 og hafa þau áhrif að ungl-
ingar, sem búa vestast í Vestur-
bænum og fengu áður strætómiða,
verða nú að ganga í skólann um 25
mínútna leið, taka strætó á Nes-
vegi eða vera ekið. Elín Sigurðar-
dóttir prentsmiður er móðir ungl-
ings í Hagaskóla og hún segir að
þetta þýði um 10 þúsund króna
útgjöld fyrir sig aukalega á mánuði
ef barnið tekur strætó.
Elín hefur hringt í skólann og
sent menntaráði tölvupóst. Hún
segist hafa fengið þær upplýsing-
ar að hún geti sótt um undanþágu
en veit ekki hvað þarf til. Hún
hyggst senda borginni formlegt
erindi innan skamms.
Júlíus Vífill Ingvarsson er for-
maður menntaráðs. Hann segir að
sú regla hafi verið sett í mars
2005 að nemendur í 8.-10. bekk
sem búi í meira en tveggja kíló-
metra fjarlægð frá skóla eigi rétt
á skólaakstri eða strætómiðum.
Kvartanir hafi borist sem tekið
verði fullt tillit til. Hann hefur
beðið um að farið verði yfir málið
og svo tekin ákvörðun um fram-
haldið.
Lagafrumvarp um afnám
fyrningarfrests vegna kynferð-
isbrots gegn börnum hefur
verið lagt fram á Alþingi í
fjórða sinn og er Ágúst Ólafur
Ágústsson, varaformaður
Samfylkingarinnar, fyrsti
flutningsmaður.
Fyrir liggur frumvarp
dómsmálaráðherra sem gerir
ráð fyrir fjögurra ára lengingu
á fyrningarfresti en ekki er þar
nógu langt gengið að mati
Ágústs og fleiri að því er kemur
fram í tilkynningu frá Ágústi.
Um 22.000 manns hafa
skrifað undir áskorun þess efnis
að samþykkja beri frumvarpið.
Kynferðisbrot
fyrnist ekki
Kári Páll Óskarsson
gjaldkeri Ungra vinstri grænna,
hefur ákveðið
að gefa kost á
sér í 3.-4. sæti í
forvali VG í
Reykjavík og
Suðvesturkjör-
dæmi.
Kári hefur
verið félagi í
VG frá árinu
1999 og gegnt
margvíslegum
störfum fyrir flokkinn. Hann
hefur setið í stjórn Ungra vinstri
grænna frá árinu 2004, þar sem
hann er nú gjaldkeri.
Kári hefur lokið BA námi í
ensku og frönsku frá HÍ þar sem
hann leggur nú stund á MA nám í
þýðingafræði.
Kári gefur kost
á sér í 3.-4. sæti
Kvörtunum rignir nú
inn á áskriftarblöð í Danmörku
vegna fríblaðanna. Kvarta
áskrifendur Politiken,
Berlingske Tidende og Jyllands-
Posten yfir því að blöðin berist
annað hvort seint eða alls ekki.
Ástandið er sérlega slæmt í
höfuðborginni og í Árósum, og
segir talsmaður Berlingske
Tidende að blaðið fái nú 50
prósent fleiri kvartanir en fyrir
tilkomu fríblaðanna.
„Skömminni má skella á skort
á blaðberum. Eftir að fríblöðin
komu til, keppa fleiri um allt of
fáa blaðbera,“ sagði Carsten
Juste, ritstjóri Jyllands-Posten.
Í vandræðum
vegna fríblaða
Lene Espersen, dóms-
málaráðherra Danmerkur, hefur
verið sökuð um að tímasetja frétt
af ökuskírtein-
ismissi sínum
þannig að lítið
bæri á henni í
fjölmiðlum,
segir í frétt
Nyhedsavisen.
Hinn 23.
október missti
Espersen
bílprófið og var
dæmd til að
greiða 1.500
danskar krónur í sekt fyrir að aka
á skellinöðruknapa í september.
Ráðuneytið beið hins vegar
með að segja frá dómi ráðherrans
þar til þremur dögum síðar, og
kom fréttatilkynningin klukku-
tíma eftir að hirðin tilkynnti að
María krónprinsessa ætti von á
barni.
Því fór minna fyrir fregninni
en annars hefði verið, að sögn
danskra fréttaskýrenda.
Sakaður um að
tímasetja fréttir