Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 40
Ég var að heyra ...
Þetta heyrðist
í vikunni ...
„Ég er bara manneskja
eins og þú og ég.“
Bubbi Morthens í
þættinum Tekinn hjá
Auðuni Blöndal.
„Hann er að vinna í sínum
málum.“
Addi Fannar í Skítamóral
um Einar Ágúst félaga sinn
við Fréttablaðið.
„Úr því að nemendum
Listaháskólans er svona
mikið mál, þá mega þeir
mín vegna reyna það
verklega á eigin skinni
hvernig tilfinning það er
að vera hlandskál eða
bekken.“
Sigmar Guðmundsson á
bloggsíðu sinni sigmarg.
blogspot.com.
Að Sigurbjörg nokkur sem
gjarnan er kenndi við Pípóla sé
komin með kærasta. Er það
sjálfur Agnar Burgess
blaðamaður á Blaðinu og
bróðir Kristjáns Guy. Voru
þau hönd í hönd á kosningaskrif-
stofu Guðmundar Steingríms í
vikunni / Að X-ið 977 standi fyrir
rosalegri skyrglímu á Pravda um
helgina. Um alvöru karlakvöld er
að ræða þar sem undirfatasýning
og skyrkámugir rassar koma við
sögu ásamt Geir Ólafssyni / Að knattspyrnumað-
urinn Davíð Þór Viðarsson sé á leiðinni frá FH.
Mörg lið vilja fá Davíð en sparkspekingar telja
líklegt að hann sé á leiðinni í Þrótt
Reykjavík / Að hið árlega
Senupartí fari fram í
Listasafninu seint í þessum
mánuði. Verður svokallað
Bondþema og rauður dregill.
Hafa jafnvel heyrst raddir um
að sjálfur Bond muni mæta og fá
sér Martini / Að Theódór Júlíusson sem lék
ómennið Elliða í Mýrinni sé harður stuðningsmað-
ur Guðmundar Steingrímssonar í prófkjöri
Samfylkingarinnar / Að brjálað diskókvöld sé á
Klúbbnum við Gullinbrú annað kvöld. Mun sjálfur
Love Guru þeyta skífum á staðnum þar sem verður
þessi ,,Old Hollywood Style“ stemning. Diskóbún-
ingur fleytir fólki frítt inn. / Að Lýður Árnason læknir
á Flateyri hafi gert hina stórkostlegu auglýsingu
með Reyni Traustasyni á hestinum á Laugavegin-
um / Að séra Vigfús væri með sína árlegu
styrktartónleika í Grafarvogs-
kirkju. Allir stærstu
söngvarar landsins koma
og syngja til styrktar
Barna- og unglingageð-
deild LSH / Að Siffi
útvarpsmaður á Kiss fm
sé hættur með fyrrum
Idolbombunni Tinnu Marínu /
Að Brynjar Már sé á leiðinni til Flórída í tvær vikur.
Fm 957 verður bara sett á Snooze á meðan.
,,Ég hef fengið mikið af handritum í hendurnar
undanfarið og það hefur ekkert freistað mín
fyrr en ég las þetta. Ég ákvað því bara að
skella mér á hvíta tjaldið aftur,“ segir Baltasar
Kormákur um tildrög þess að hann tók að sér
hlutverkið.
,,Óskar bað mig að lesa þetta og ég hélt það
væri bara til þess að gefa góð ráð. Það var
ótrúlega gaman að lesa þetta og ég sagði
honum það. Þá bað hann mig um að leika
aðalhlutverkið og ég greip það fegins hendi.“
Eins og áður segir skrifar Arnaldur Indriðason
handritið með Óskari en hann skrifaði Mýrina
eins og flestir vita. Karakterinn sem Baltasar
leikur heitir Kristófer og er vel meinandi maður
að sögn Balta. ,,Hann hefur reyndar svolítið
,,dúbíus“ fortíð og er að reyna að ná sér út úr
því lífi. Hann er góður drengur en svolítið
öfugu megin við lögin,“ segir Baltasar en það
var einmitt þessi góði drengur sem vakti
áhugann á hlutverkinu. ,,Þetta er næs gæji
enda er ég orðinn leiður á að leika þessa
dökku vondu stráka. Ég fæ aldrei að leika
smaladrenginn,“ segir Baltasar og hlær.
Hann segir það ekki hafa verið á dagskránni
að fara aftur að leika enda nóg að gera í öðru.
,,Ég hef margoft verið beðinn að koma á svið
en hef bara ekki getað það út af þessum
ferðalögum sem eru í kringum þessar
bíómyndir sem ég hef verið að gera.“
Stefnt er á að tökur hefjist næsta vor og býst
Baltasar við því að myndin komi í kringum jólin
á næsta ári. ,,Þetta er flott cast sem hann er
reyndar ennþá að vinna í. Svona blanda af
fersku fólki og þeim sem reyndari eru, svolítið
eins og ég gerði í Mýrinni.“
Og talandi um Mýrina sem strax eftir tíu daga
var orðin ein af stærstu íslensku bíómynd
sögunnar. ,,Það hlýtur að vera eitthvað við
Mýrina. Hún hefur fengið frábærar viðtökur og
dóma. Ég er alltaf að hitta fólk í bænum sem
er að þakka mér fyrir sem er alveg frábært. Ég
held að það sé þessi íslenski tónn sem er í
myndinni sem nær til fólks. Svo er líka húmor í
henni sem fólk bjóst kannski ekki við.“
Kvikmyndin Hafið sem Baltasar gerði einnig
er ein af þessum stærstu íslensku myndum. Í
henni er líka þessi íslenski tónn sem hann
talar um.
Vill fólk sjá svoleiðis myndir?
,,Já ég held að fólk vilji tengja sig við efnið og
það er allavega mjög vænleg leið. Fólk vill líka
sjá eitthvað krassandi, ekki bara eitthvað fólk í
blokkaríbúð að tala saman. Við erum svo ólík
og búum ekki í þessu borgarasamfélagi sem
Danir búa til dæmis í og viljum hafa Íslend-
ingasögurnar aðeins í þessu.“
Myndin hefur ekki einungis fengið góðar
viðtökur hér á landi því það litla sem hefur
verið sýnt af henni erlendis lofar góðu. ,,Maður
veit ekki hvar þetta endar, en hingað til hefur
þetta verið mjög jákvætt.“
Ætlarðu að gera aðra mynd eftir bók Arnaldar?
,,Hann á réttinn og við erum ekkert farnir að
ræða það ennþá.“
Þú vilt það?
,,Já,já ég hef áhuga á að gera meira þegar rétti
tíminn kemur. Þetta eru fallegar sögur og flottir
karakterar sem ganga upp fyrir fólki.“
Baltasar og Lilja kona hans eru flutt í
Skagafjörðinn eins og flestir vita. Þar keyptu
þau fyrrum Óðalssetur fjölskyldu Lilju og þeim
líður vel í sveitinni. Börnin þeirra ganga til
dæmis í skóla þar og þau eru með einhverja
hesta. ,,Þar er fínt að vera en svo fer maður
bara út um allan heim. Ég er til dæmis að fara
til Litháen í næstu viku á kvikmyndahátíð.
Síðan fer ég bara í Skagafjörðinn og slappa
af. Það er til dæmis mjög gott að skrifa þar og
ég skrifaði handritið að Mýrinni og klippti hana
til dæmis þar.“
Baltasar er greinilega nett ofvirkur því hann
virðist aldrei stoppa. Hann segir nóg á
teikniborðinu þangað til tökur á kvikmynd
Óskars fara í gang. ,,Ég er að fara með Pétur
Gaut til Bretlands núna í byrjun árs. Okkur var
boðið í Barbican Center og ætlum að leika
þetta á ensku þar. Svo er ég með fullt af
hugmyndum sem ég er að bræða með mér,
það er erfitt að velja og ég á við nett lúxus
problem að stríða.“
Og svo ertu bara edrú og sáttur?
,,Jájá. Ég er bara drukkinn af lífinu,“ segir
Baltasar rétt áður en hann dettur inn á
einhvern mikilvægan fund í miðbæ Reykjavíkur.
Orðinn leiður á að leika
vondu strákana
„FÓLK VILL LÍKA SJÁ EITTHVAÐ KRASSANDI, EKKI BARA
EITTHVAÐ FÓLK Í BLOKKARÍBÚÐ AÐ TALA SAMAN.“
Baltasar Kormákur er orðinn einn aðal leikstjóri og handritshöfundur þjóðarinnar. Hann hefur
ekki leikið aðalhlutverk í bíómynd í mörg ár en ætlar að skella sér aftur á hvíta tjaldið. Vinnuheiti
myndarinnar er SAS og er hún í leikstjórn Óskars Jónassonar. Arnaldur Indriðason skrifar hand-
ritið með Óskari en Baltasar lýsir myndinni sem ,,smyglarathriller“. Baltasar sagði okkur á Sirkus
frá myndinni, Mýrinni og hinu áfengislausa lífi.
BALTASAR KORMÁKUR FER MEÐ AÐALHLUTVERKIÐ Í NÝRRI MYND ÓSKARS JÓNASSONAR
OG ARNALDAR INDRIÐASONAR
S
irk
us
m
yn
d:
H
ör
ðu
r
4