Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 46
Abercrombie & Fitch hefur löngum verðið vinsælasta merki Ameríku innan hinnar
svokölluðu háskólatísku. Margir ungir Íslendingar gefa mikið fyrir að komast í
Abercrombie að versla. Abercrombie hefur aðeins fengist í Ameríku þar til á þessu
ári þegar búðin var opnuð í Kanada. Næsta skref er Evrópa og mun fyrsta búðin
verða opnuð á næsta ári í London. Semsagt aðeins styttra að nálgast fenginn fyrir
Abercrombie-þyrsta Íslendinga og fögnum við því.
Féttir úr heimi
tískunnar!
Hið vinsæla sænska H&M er með á plönunum
að opna tíu búðir með kvenna- og karlalínu.
Ekki þykir það saga til næsta bæjar að þeir
opni búðir um allan heim, en í þetta sinn verða
þeir með algerlega nýja stefnu, vörur sem eru í
dýrari kantinum. H&M hefur verið þekkt fyrir að
vera með ódýrar vörur þannig að þetta er
einhvers konar U-beygja hjá þeim. Það verður
gaman að fylgjast með því hvort að fólk vilji
kaupa dýr H&M föt!!!
H&M fyrir fína
og ríka fólkið
Í þessum mánuði
opnaði Levis
Flagship búð í
París. Ameríska
denim fyrirtækið
sem allir þekkja er
vel staðsett á
tveimur hæðum í
hjarta Parísar. Þar
er öll línan þeirra
seld, kvenna-,
karla-, barna- og
aukahlutalína.
Levis fyrir alla
fjölskylduna
Nike og Apple hafa nú kynnt til sögunnar Nike + iPod
Sport Kit sem er fyrsta skrefið í samvinnu þessara
fyrirtækja. Þessi fyrirtæki eru að vinna saman að stórri
línu sem inniheldur föt og aukahluti þar sem gert er
ráð fyrir að þú sért að nota vörur frá Apple á meðan
þú ert í fötunum ... hljómar kannski frekar ruglingslegt
en sniðugt. Þessar vörur eru allavega voða fínar og
tæknilegar og það er mjög fróðlegt að skoða þetta allt
á heimsíðu Nike. Þar er meðal annars hægt að fá
sérstaka sport-tónlist frá Nike. Ef þú ert mjög aktíf
manneskja og elskar tónlist er þetta pottþétt eitthvað
fyrir þig.
Nike + iPodDiesel og Victoria Secret
Hinir ítölsku Diesel hafa
sagt frá því að þeir séu
búnir að hanna nýja línu
af undirfötum og
strandfötum fyrir bæði
kynin. Þeir hafa þróað
þessar línur í samvinnu
við ömmuna í þessum
bransa, enga aðra en
Victoriu Secret. Þessar
nýju línur frá Diesel
verða sem sagt kynntar
með pompi og prakt í
febrúar á næsta ári. Ég
get ekki beðið eftir að
klæðast Diesel
(Victoria Secret)
nærfötum ... uuuhhhh
SIRKUS03.11.06
10 tíska
tískumolar
Helgu Ólafsdóttur