Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 67

Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 67
Nú hefur poppdrottningin ástr- alska, Kylie Minogue, talað í fyrsta sinn um krabbameinið sem hún þjáðist af á síðasta ári. „Þetta er eins og að verða fyrir kjarnorku- sprengingu. Ég held að allir sem hafa orðið fyrir barðinu á þessum sjúkdómi viti hvað ég er að tala um. Það er erfitt að lýsa þessu með öðrum orðum,“ segir Min- ogue en hún greindist með sjúk- dóminn á síðasta ári og lítið hefur heyrst frá henni síðan. Nú er söng- fuglinn hins vegar allur að koma til og er að undirbúa nýja plötu sína. „Það er samt ótrúlegt hvað maður fer að meta meira þessa venjulegu hluti eins og að fara í göngutúr og kaupa kaffi. Ég naut þess í botn þegar ég var lasin.“ Kjarnorku- sprengja Grínistinn Eddie Izzard hefur hætt við að taka þátt í næstu þátta- röð af bandaríska spennuþættin- um 24. Izzard gekk út af tökustað eftir aðeins einn dag en ekki er vitað hvað varð til þess. Í stað hans hefur verið ráðinn breski leikarinn David Hunt. Mun hann taka við hlutverki illmennisins McCarthy. Izzard, sem hefur m.a. verið með uppistand hér á landi, mun næst leika í sjónvarpsþættinum The Riches ásamt Minnie Driver. Hætti við 24 Nýjasta plata Nylon verður seld í verslunum Hagkaupa í 5.000 ein- tökum fyrir jólin. Mun hún vænt- anlega koma í verslanir 16. nóv- ember. „Við getum ekki hugsað okkur plötujól án þess að hafa Nylon í hillunum. Þess vegna sóttum við fast eftir því að fá þessa plötu til landsins,“ sagði Einar Ólafur Speight hjá Hagkaupum. Útgáfu plötunnar í Bretlandi var frestað fram yfir áramót vegna hvalveiða Íslendinga og harðra viðbragða Breta við þeim. Plata Nylon á leið í búðir Hljómsveitin Baggalútur hefur gefið út lagið Brostu til styrktar barnahjálp Sameinuðu þjóðanna en þetta er gert í tilefni af degi Rauða nefsins sem haldinn verður hátíðlegur víða um heim hinn 1. desember. Tilgangurinn er að fá fólk til að hlæja og skemmta sér en um leið að vekja athygli á góðu málefni. Baggalútsmaðurinn Guð- mundur Pálsson segir að þeir félagar hafi ekki getað skor- ast undan þegar Unicef á Íslandi kom að máli við þá. „Við vorum meira en lítið tilbúnir að leggja þessu málefni lið, maður segir ekki nei við svona,“ útskýrir Guðmundur en fjöldi þjóðþekktra einstaklinga leggur þeim lið, þeirra á meðal Unnur Birna Vil- hjálmsdóttir og kóngurinn sjálfur, Bubbi Morthens. „Okkur fannst mjög skemmtilegt að vera í sama herbergi og Unnur og Bubbi á sama tíma,“ segir Guðmundur. „Og þau mega eiga það að allir voru stundvísir og allir til í að vera með,“ bætir Guð- mundur við. „Svo hlupum við um bæinn með upptökutæki en einhverjir létu þó sjá sig í upptökuver- inu,“ bætir Guðmundur við. Í nógu er að snúast hjá Baggalúti því það styttist í jólaplötu sveitarinnar með öllum aðventulögum flokksins auk fjögurra nýrra. Þá hyggja þeir á endurkomu í útvarpið en fyrsta innslag þeirra verður frumflutt á laugardaginn á Rás 2. Baggalútur er þar á kunnugum slóðum en hljómsveitin fór mikinn á öldum ljósvakans fyrir tveimur árum en hvarf síðan af dagskránni ansi snögglega. „Við vorum eiginlega beðnir um að hætta á vinsamlegu nótunum,“ segir Guðmundur. „Þetta gekk svona misvel ofan í fólk þá en nú eru komnir nýir stjórnendur og nýtt blóð, við látum samt ekkert ritskoða okkur,“ bætir Guðmundur við. Látum ekki ritskoða okkur Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus. Spurðu um KÓPAL. Linda Þorvaldsdóttir málari: „Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“ Ýrist lítið Að ýrast = að slettast úr rúllunni. Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík Núpur byggingarvöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík KÓPAL Glitra ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M A L 34 75 3 1 0/ 20 06

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.