Fréttablaðið - 03.11.2006, Qupperneq 68
!
Kl. 17.00
Í tilefni af hundrað ára ártíð leik-
skáldsins Henriks Ibsen er efnt til
málþings um Henrik Ibsen. Þátt-
takendur eru Brynhild Mathisen
stundakennari, Gro Tove Sands-
mark, sendikennari HÍ í norsku,
Kári Halldór Þórsson leikstjóri,
Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklist-
arráðunautur, Róbert Haraldsson,
dósent í heimspeki og Trausti Ólafs-
son leiklistarfræðingur. Fundarstjóri
er Per Landrø.
Gættu mín eða Watch My Back er
nýr dansleikhúshópur sem sam-
anstendur af þremur karlmönnum
og listamönnum LR og Íd. Tríóið
skipa þeir Peter Anderson dansari
og danshöfundur, Guðmundur
Elías Knudsen dansari og Björn
Ingi Hilmarsson leikari. Þeir kalla
iðju sína dansleikhússport og segja
það nýja tegund afþreyingarlistar.
Hópurinn spinnur gamansamar
senur með hjálp áhorfenda. Áhorf-
endur gefa leikurum/dönsurum
stikkorð sem þeir spinna út frá.
Segir í fréttatilkynningu frá Borg-
arleikhúsi: „Þetta er viðkvæmt en
skemmtilegt „listform“ þar sem
allt getur gerst – það er aðeins
spurning um hugmyndaflug áhorf-
enda.“
Leikið verður í kaffileikhúss-
temningu í forsal Borgarleikhúss-
ins þar sem barinn verður opinn,
en allur leikur fer fram á ensku.
Fjórar sýningar verða hjá hópn-
um, hin fyrsta í kvöld kl. 20.10.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Borgarleikhússins.
Danstrúðar spinna
Gnægtarborð Unglistar
Sýningu listahópsins Invasion-
istas í Kling og Bang-galleríi á
Laugavegi lýkur um helgina.
Invasionistas er fjölþjóðlegur
hópur listamanna sem starfar í
New York. Þetta er í fyrsta sinn
sem hópurinn heldur sýningu
saman. Undanfarin tíu ár hafa þau
starfað saman í pörum og smærri
hópum að gjörningum, innsetning-
um og myndbandagerð.
Ætlun þeirra er að kanna merk-
ingu innrásar almennt og hvernig
hún endurspeglast í veröldinni, í
íslensku sögunni og í blindgötu-
stjórnmálum heimalands síns. Á
mjög djúp-yfirborðskenndan hátt
mun hópurinn kynna viðhorf sín á
ástinni og lífinu.
Sýningin var opnuð í tengslum
við grasrótarhátíðina Sequences
en hópurinn kom sér fyrir í gall-
eríinu og hefur starfað þar eins og
nokkurskonar sértrúarsamtök þar
sem hver og einn kynnir sín ein-
stöku máttaröfl í gegnum gjörn-
inga, tónlist, herkvaðningu, mála-
miðlanir, sérleiðangra og trúboð,
og óhætt að innrásin hafi hrist upp
í íslensku samfélagi.
Sýningin er opin milli kl. 14-18
og stendur fram á sunnudag.
Innrásinni að ljúka
Komin er út þriðja sóló-
plata Óskars Péturs-
sonar, Ástarsól, en fyrri
plötur Óskars hafa
báðar náð metsölu. Á
plötunni flytur Óskar
lög Gunnars Þórðarson-
ar sem ávallt hefur
verið í miklum metum
hjá Óskari og hann hefur borið
mikla virðingu fyrir sem lagahöf-
undi. Óskar syngur fjórtán lög
Gunnars og þar af níu ný lög. Meðal
eldri laga á plötunni eru: Ástar-
sæla, Vetrarsól, Bláu augun þín,
Hafið og Reykjavík.
Meðal textahöfunda á
nýju plötunni eru: Davíð
Oddsson, Friðrik Erlings-
son, Karl Mann, Halldór
Gunnarsson, Kristján
Hreinsson, Einar Már
Guðmundsson og Gísli
Rúnar Jónsson. Óskar
syngur dúett í tveimur lögum með
Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni og
Regínu Ósk.
Gunnar Þórðarson stjórnaði
upptökum á plötunni auk þess að
útsetja lögin.
Ástarsól Óskars
Nú er annatími hjá útgef-
endum sem þeysast milli
bæjarhluta með handrit og
útprent. Orðin og sögurnar
dælast úr prentvélum yfir
í plastvélar og rata loks
í hillur verslana þar sem
lesendur bíða spenntir eftir
jólabókunum.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið að
koma bókunum út því að sögn
Guðrúnar Vilmundardóttur, útgef-
anda hjá forlaginu Bjarti, eru
óþolinmóðir lesendur farnir að
hringja og reka á eftir sumum
þeirra. Í síðustu viku komu út
þrjár ljóðabækur hjá forlaginu
sem og dágott úrval af spennandi
barnabókum og þýðingum en á
morgun bætast við fjórar íslensk-
ar skáldsögur. Guðrún útskýrir
að sögur þær séu allar eftir kunn-
uglega höfunda sem hafi gefið út
hjá forlaginu áður en nú rói þeir á
ný mið.
Fyrst ber þar að nefna höfundinn
Jökul Valsson sem stimplaði sig
inn í bókmenntalandslagið með
hrollvekjunni Börnin í Húmdölum
fyrir tveimur árum. „Jökull gefur
út söguna Skuldadagar sem er
spennusaga en þó ekki reyfari,“
segir Guðrún. Þar segir af óláns-
dreng sem sífellt ætlar sér að
redda málunum fyrir helgina en
týnir eiturlyfjum sem hann hyggst
selja. „Úr verður mikill eltingar-
leikur því raunverulegir eigendur
góssins eru alls ekki lukkulegt lið.
Þetta er bæði fyndin og þrusu-
spennandi bók,“ segir Guðrún.
Lánið eltir heldur ekki aðalpers-
ónu bókar Eiríks Guðmundssonar
sem einnig gefur út sína aðra bók
hjá Bjarti. „Þetta er fyrsta skáld-
sagan hans en hann gaf út bók í
svörtu línunni okkar fyrir tveimur
árum,“ útskýrir Guðrún og áréttar
að sagan sé nokkuð „Eiríks-leg“ og
rödd söguhöfundarins kunnugleg í
völdum köflum hennar. „Sagan sú
fjallar um mann sem á í vanda
með að greina milli skáldskapar
og veruleika. Hann verður fyrir
þeirri stórkostlegu tragedíu að
missa póstkort út um gluggann. Þá
lendir allt í handaskolum eins og
þeir vita sem lent hafa í sambæri-
legum hremmingum.“
Rithöfundurinn Steinar Bragi er
iðinn við kolann, nú kemur út hans
sjötta bók hjá Bjarti en á árinu gaf
hann einnig út bók í seríu Nýhil
forlagsins, Norrænar bókmenntir.
„Þetta er fjórða skáldsagan hans
en í henni eru bæði gamalkunnug
efnistök sem aðdáendur hans
þekkja og alveg nýr tónn því
bókin, Hið stórfenglega leyndar-
mál heimsins, er spæjarasaga.
Aðalpersónur bókarinnar eru hinn
mikli leynispæjari Steinn Steinarr
og aðstoðarmaður hans Muggur
Maístjarna en sögusviðið er stór-
fenglegt skemmtiferðaskip sem
heitir Heimurinn,“ útskýrir Guð-
rún og tekur undir að sagan gæti
flokkast sem táknsaga og að höf-
undurinn sé lítt að linast með árun-
um.
Fjórða bókin er saga Sigurjóns
Magnússonar, Gaddavír, en höf-
undur hennar hefur meðal annars
sent frá sér bækurnar Góða nótt,
Silja og Hér hlustar aldrei neinn.
„Þetta er knöpp saga og meitluð,“
segir útgefandinn og bætir því við
að Sigurjón sé mjög áleitinn höf-
undur. Í bókinni segir frá óhuggu-
legum atburðum á bóndabæ sem
fortíðin hvílir á eins og skuggi en
misgerðir hennar eru afhjúpaðar
smám saman. „Sagan er fallega
sögð og rakin aftur í tímann.
Maður situr alveg stjarfur yfir
þessari bók – þar er ólga undir
hverju orði.“
Bjartur fer ekki aðeins mikinn á
bókmenntavellinum heldur hefur
forlagið líka fært sig upp á skaftið
því á dögunum kom út fyrsti
hljómdiskurinn á vegum þess.
Diskurinn Magga Stína syngur
Megas ber nafn sitt með rentu en
útgáfutónleikar Möggu Stínu verða
í Salnum annað kvöld eins og til að
kóróna þennan margfalda útgáfu-
dag. „Dótturfyrirtækið Bjartur
Records Limited gefur diskinn út
en til þess var stofnað sérstaklega
vegna þess að þarna er gæðaefni á
ferð,“ segir Guðrún sposk en bætir
við að óvíst sé um frekari tónlistar-
útgáfu. „Það verður þó tekið til
vandlegrar skoðunar.“