Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 78
Kvikmyndin Börn hlaut alls átta
tilnefningar til Eddu-verðlaun-
anna, sem verða afhent við hátíð-
lega athöfn þann 19. nóvember á
hótel Nordica.
Var hún m.a. tilnefnd sem besta
myndin og fyrir frammistöðu
þeirra Gísla Arnar Garðarssonar,
Nínu Daggar Filippusdóttur og
Ólafs Darra Ólafssonar í aðalhlut-
verkum. Einnig var Ragnar Braga-
son tilnefndur sem besti leikstjór-
inn.
Aðrar myndir sem voru til-
nefndar í flokknum kvikmynd árs-
ins voru Mýrin og Blóðbönd. Fékk
Mýrin alls fimm tilnefningar en
Blóðbönd fjórar.
Í flokknum sjónvarpsþáttur
ársins voru fimm þættir tilnefnd-
ir: Fyrstu skrefin, Græna her-
bergið, Innlit/Útlit, Kompás og
Sjálfstætt fólk og í flokknum leik-
ið sjónvarpsefni: Allir litir hafsins
eru kaldir, Sigtið og Stelpurnar og
í flokknum skemmtiþáttur ársins
voru tilnefndir þáttur Jóns Ólaf-
sonar, KF Nörd og Strákarnir.
Börn hlutskörpust
Fyrsta Íslandsmótið í skyrglímu fer
fram á skemmtistaðnum Pravda á
laugardag. Sigurvegarinn í kvenna-
flokki fær í sinn hlut tvær nætur
með morgunverði á Hótel Venus,
tíu tíma ljósakort, út að borða fyrir
tvo, tíu þúsund króna inneign fyrir
skóm og klippingu. Íslandsmeistar-
inn í karlaflokki fær nýjustu plötu
Hildar Völu, Lalala. Með þessum
mismun segjast aðstandendur vilja
jafna áralangan ójöfnuð kynjanna
er snýr að launum og verðlaunafé.
Bjóða þeir Geir Þorsteinssyni,
framkvæmdastjóra KSÍ, og Eggerti
Magnússyni, formanni KSÍ, að taka
þátt í karlaflokknum.
Hljómsveitin Brain Police mun
troða upp auk þess sem boðið verð-
ur upp á tískusýningu. Hægt er að
skrá sig í Íslandsmótið í skyrglímu
á skyrglima@xid977.is.
Keppt í skyrglímu
vaxtaauki!
10%
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10.20
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6
BORAT kl. 4, 6, 8, 10 og 12 B.I. 12 ÁRA
FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 12 og 1.40
BORAT kl. 6, 8,10 og 12 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
L.I.B. Topp5.is
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í
GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT
ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
"...groddalegur og beinskeyttur húmor...
þannig að maður ælir nánast af hlátri"
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON - FRÉTTABLAÐIÐ
Ég set Borat í raðir fyndnustu mynda sem ég hef séð.
Borat er tvímælalaust fyndnasta mynd ársins,
ef ekki sú frumlegasta.
VIGNIR JÓN VIGNISSON - TOPP5.IS
ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA
FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA?
45 þúsund gestir
Sjónvarpsmaðurinn Borat Sagdiyev
frá Kasakstan er hugarfóstur
breska leikarans Sacha Baron
Cohen sem er einna þekktastur sem
fyrirbærið Ali G. Borat átti góða
spretti í sjónvarpsþáttum Ali G þar
sem hann kom að grandvaralausum
viðmælendum sínum úr óvæntum
áttum og sló þá út af laginu með
kjánalegum spurningum sem hann
bar fram af barnslegri einlægni
útlendings í framandi landi.
Þessi viðtalstækni sem er einnig
eitt höfuðeinkenni Ali G skilar sér
oft í því að viðmælendurnir missa
andlitið, afhjúpa sig og segja miklu
meira um sjálfa sig en þeir ætla sér
þegar þeir reyna að bregðast við
spurningum sem eru gersamlega
út úr kú samanborið við staðlaða
nálgun sjónvarpsspyrla á viðmæl-
endur sína.
Borat sló í gegn í þáttum Ali G
og fær nú að njóta sín í heilli bíó-
mynd sem hann stendur fullkom-
lega undir. Fígúran var iðulega
drepfyndin í sjónvarpinu en hér
nær Baron Cohen nýjum hæðum og
Borat hefur aldrei verið betri en nú
þegar hann ferðast um Bandaríkin
með tökuvélina til þess að gera
fræðsluþátt um heimsveldið.
Borat er rétt kominn til Banda-
ríkjanna þegar hann sér Pamelu
Anderson í sjónvarpinu og fellir
strax hug til hennar. Vinnuferðin
verður því að leit Borats að ástinni
en hann leggur allt undir til þess að
ná fundum sílíkongyðjunnar þar
sem hann hefur ákveðið að biðja
hennar, eða öllu heldur slá eign
sinni á hana, eins og þeir gera í
Kasakstan.
Á ferð sinni tekur Borat Banda-
ríkjamenn tali og reynir að komast
nær kjarna þjóðarsálarinnar og þó
allt lendi í handaskolum hjá honum
og viðmælendur hafi takmarka þol-
inmæði gagnvart honum þá tekst
honum ætlunarverkið með ansi vel.
Borat er gersneiddur alltri pólit-
ískri rétthugsun í nálgun sinni á
viðfangsefnum og viðmælendum
og myndin er sniðin til þess að
hneyksla og stuða. Það er að segja
þá sem eru blindaðir af heilagri
vandlætingu hvað allt það varðar
sem er skoplegt í lífinu.
Kasakstan, konur og gyðingar
eru í röðum þeirra sem Borat fer
niðrandi orðum um en það er þó
varla hægt að tala um allt þetta fólk
sem fórnarlömb. Tilgangurinn
helgar meðalið og það eru fyrst og
fremst Bandaríkjamenn sem fá að
kenna á beittu háðinu en sumir við-
mælenda Borats hljóta að hafa
íhugað það alvarlega að láta sig
hverfa af yfirborði jarðar eftir að
hafa afhjúpað fordóma sína og
heimsku í samtölum við hann.
Viðbrögð viðmælenda Borats,
fíflagangurinn í honum og persón-
an í sjálfu sér gera Borat að einni
fyndnustu gamanmynd síðari ára.
Hvert geggjaða atriðið rekur annað
í gegnum alla myndina sem er svo
fyndin að maður nánast ælir af
hlátri þegar mest gengur á. Þá er
þessi mynd gædd þeirri náttúru að
mann langar til þess að sjá hana
umsvifalaust aftur þar sem maður
man innan við helminginn af því
sem fyrir augu bar þar sem heila-
starfsemin hreinlega lamast í
verstu hláturrokunum.
Brjálæðislega fyndinn Borat
Breska leikkonan Kate Winslet
hefur hótað bresku slúðurblöðum
því, ef þeir segja hana vera lélega
móður aftur, að taka fram hnífinn
eins og hún orðar það.
Skömmu eftir skilnað Winslet
og Jims Threapleton árið 2000,
héldu fjölmiðlar því fram að hún
væri léleg móðir þar sem hún
skildi stelpuna sína eftir hjá
Threapleton eftir skilnaðinn. „Þið
megið segja hvað sem er vont um
mig en þegar þið ásakið mig um að
vera léleg móðir þá verð ég meira
reið en sár,“ segir Winslet við
breska fjölmiðla þegar hún sendi
þeim tóninn.
Hótar blaða-
mönnum