Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 80
Man ekkert eftir að hafa skorað þessi stig
Þórir Gunnarsson, faðir
níu ára stúlku sem æfði hjá fim-
leikafélaginu Björk, segir rúm-
enska þjálfarann Cezar Crist Stoi-
ca hafa beitt dóttur sína andlegu
ofbeldi sem hafi leitt til þess að
hún hætti að æfa fimleika fyrir
rétt rúmum tveimur vikum. Stúlk-
an var þá búin að æfa í þrjú ár hjá
félaginu og hafði gaman af.
Faðirinn segir að Stoica hafi
ekki beitt dóttur sína líkamlegu
ofbeldi, líkt og kollegi hans hjá
fimleikafélaginu Björk, Dzmitry
Varonin, er sakaður um. Þórir seg-
ist hafa kvartað formlega yfir
þjálfunaðferðum Stoica við yfir-
þjálfara félagsins, Hörpu Óskars-
dóttur, án árangurs.
„Síðastliðið vor var ákveðið að
skipta upp hópi dóttur minnar og
stelpurnar sem voru taldar skara
fram úr voru settar í þjálfun hjá
Cezar. Dóttir mín var í þeim hópi
og hún hafði verið mjög ánægð í
fimleikum fram að þessum tíma.
Við gerðum okkur grein fyrir því
að æfingarnar yrðu erfiðari, en
þeirri hörku sem var beitt var
ekki eitthvað sem við áttum von
á,“ sagði Þórir við Fréttablaðið en
hann er langt frá því að vera hrif-
inn af þjálfunaraðferðum Rúmen-
ans.
„Cezar flokkar stelpurnar
niður. Hampar þessum bestu í
hópnum en hinar sem eru síðri fá
að finna fyrir því hjá honum og
hann hreytir í þær ónotum.
Ef ég tek eitt dæmi þá setur
hann þeim fyrir ákveðna æfingu
og ef þær eru lengi rakkar hann
þær niður. Hann gerir lítið úr þeim
og gefur þeim einkunn alveg niður
í núll fyrir framan hópinn. Svo
grettir hann sig framan í þær og
er ógnandi í framkomu sinni við
stelpurnar.“
Fyrir nokkrum vikum síðan
sendi Þórir bréf til Hörpu Óskars-
dóttur yfirþjálfara þar sem hann
kvartaði yfir þjálfunaraðferðum
Stoica. Ástæðan var sú að dóttir
hans var farin að kvarta ítrekað
yfir því hvernig þjálfarinn kom
fram við hana og þá aðallega
hvernig hann talaði til hennar.
„Það getur verið að þessar
þjálfunaraðferðir virki úti í Rúm-
eníu en samfélagið hérna sam-
þykkir ekki svona hegðun. Þess
vegna sendi ég Hörpu tölvupóst
og spurði af hverju þjálfarinn léti
svona við dóttur mína, hvort það
væri vegna þess að hún væri ekki
nógu góð í hópinn. Ef svo væri, af
hverju hún væri þá ekki færð í
annan hóp.
Næst þegar dóttir mín kemur á
æfingu var búið að fara með kvört-
unina í Cezar og hann sagði henni
hvert innihald bréfsins var en ég
hafði ekki sagt henni frá því. „Þú
kannski bara skipta um hóp, þú
kannski ekki nógu góð“ segir hann
við hana meðal annars.
Þarna átti sér líka stað ákveð-
inn trúnaðarbrestur því ég ætlað-
ist ekki til að Harpa færi með
málið í Cezar og hvað þá að hann
færi með þetta í barnið. Ég er
mjög ósáttur við þennan leka og
að hann hafi látið kvörtun mína
bitna á barninu. Eftir þessa uppá-
komu neitaði hún að fara aftur á
æfingu,“ sagði Þórir alvarlegur en
málið hefur komið illa við dóttur
hans.
„Hún er dauðhrædd við Stoica
og vill ekki fara í annan hóp af ótta
við að rekast á hann.“
Þórir segist hafa rætt við fjóra
þjálfara hjá félaginu um Stoica og
ein þeirra tjáði honum að haldinn
hefði verið sérstakur fundur hjá
meistaraflokknum vegna slæmra
samskipta þeirra við þjálfarann
en stúlkurnar í meistaraflokknum
eru einnig hræddar við Rúmenann
eftir því sem Þórir segir.
Þórir segir einnig að annar
þjálfari hjá félaginu hafi sagt sér
að félagið væri í vandræðum með
Stoica og Varonin. „Þá sérstaklega
Stoica. Það er víst búið að marg-
ræða við hann en hann breytir
samt ekki um viðhorf eða þjálfun-
araðferðir.“
Þórir hefur beðið um fund með
Hörpu Óskarsdóttur yfirþjálfara
en ekki fengið. Hann vill að dóttir
sín verði beðin afsökunar á því
hvernig Stoica hafi komið fram
við hana.
Kollegi Stoica hjá Björk, Dzmit-
ry Varonin, var á dögunum sakað-
ur um líkamlegt ofbeldi gegn átta
ára stúlkum en Þórir segir ekkert
slíkt vera uppi á teningnum í þessu
tilviki.
Faðir níu ára stúlku, sem æfði fimleika hjá Björk, segir dóttur sína hafa hætt að æfa fimleika þar sem hún
var hrædd við þjálfarann. Hann segir þjálfarann hafa beitt dóttur sína andlegu ofbeldi. Þjálfarinn sem um
ræðir heitir Cezar Crist Stoica og er frá Rúmeníu og er ekki sá sami og var sakaður um harðræði í vikunni.
Tveir leikmenn danska
stórliðsins Bröndby lentu í slags-
málum á æfingu liðsins á miðviku-
daginn. Með liðinu leikur íslenski
framherjinn Hannes Þorsteinn
Sigurðsson en gengi liðsins á
þessu tímabili hefur ekki verið
sem skyldi. Liðið er sem stendur í
sjöunda sæti dönsku deildarinnar.
Leikmennirnir sem um ræðir
eru varnarmennirnir Thomas
Rytter og Adam Eckersley en þeir
eru báðir byrjunarliðsmenn hjá
félaginu.
Fréttablaðið náði tali af Hann-
esi og spurði hann um málið. „Það
voru smá átök á milli leikmanna.
Þetta er bara eins og gengur og
gerist, það sýður stundum upp úr.
Það er þó ágætt að það sé eitthvert
skap í mönnum. Það má auðvitað
ekki fara út í svona vitleysu, að
menn séu að slást, en það voru
allir vinir eftir æfinguna.“
Bröndby er einn af stærstu
klúbbum Danmerkur og gengi
liðsins hingað til hefur því valdið
miklum vonbrigðum. „Auðvitað
hlýtur það að sitja í mönnum þegar
gengi liðsins er svona slæmt en
við verðum bara að gera eitthvað í
því en ekki að vera með einhver
læti inni á vellinum. Blöðin hérna
úti leika sér líka svolítið að því að
gera meira úr þessu en efni stóðu
til. Þegar illa gengur finnst blöð-
unum gaman að velta upp öllum
neikvæðu hlutunum í kringum
félagið. Við verðum bara að leyfa
þeim að gera það,“ bætti Hannes
við.
Hannes missti af æfingunni
vegna meiðsla. „Ég tognaði smá-
vegis aftan í læri í síðasta leik.
Ætli ég verði ekki frá í tvær eða
þrjár vikur en ég reikna ekki með
að það verði lengur en það.“
Það er því ljóst að Hannes miss-
ir af stórleik tímabilsins í dönsku
deildinni því á sunnudaginn heim-
sækir Bröndby erkifjendurna í FC
Kaupmannahöfn, en þeir síðar-
nefndu báru sigurorð á Manchest-
er United á miðvikudaginn.
Ágætt að það sé skap í mönnum
Tennisspilarinn Arnar
Sigurðsson keppir þessa dagana á
móti í Mexíkó, bæði í einliða- og
tvíliðaleik. Í 32 manna úrslitum í
einliðaleik mætti Arnar Ítalanum
Marco Pedrini og tapaði í tveimur
settum, 6-4 og 6-2.
Arnar leikur með félaga sínum
Birni Monroe frá Bahamaeyjum í
tvíliðaleik á mótinu. Þeir félagar
unnu Michael Johnson frá
Bandaríkjunum og Sven Swinnen
frá Svíþjóð í 16 liða úrslitum og í
8 liða úrslitum unnu þeir félagar
austurrískt par.
Arnar og Monroe eru því
komnir í 4 liða úrslit og mæta þar
tveimur heimamönnum sem fyrir
mótið voru álitnir vera næstbesta
par mótsins í tvíliðaleik.
Komnir í fjög-
urra liða úrslit
Eggert Magnússon mun
hætta sem formaður KSÍ og í
framkvæmdanefnd UEFA ef
áform hans um að kaupa meiri-
hluta hlutabréfa í West Ham
ganga eftir. Þetta staðfesti
talsmaður hans í enskum
fjölmiðlum í gær.
Sömu miðlar herma þó að
íranski auðjöfurinn Kia Joorab-
chian sé nær því að festa kaup á
klúbbnum.
Hættir ef kaupin
ganga eftir