Fréttablaðið - 03.11.2006, Side 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Það sveif svona líka rosalega á
mig í beinni og ég varð að bregða
mér frá til að kasta upp,“ segir
Guðni Bergsson. Áhorfendur Sýnar
hrukku margir hverjir í kút á mið-
vikudagskvöldið þegar knatt-
spyrnukappinn fyrrverandi hvarf
skyndilega úr myndveri sjónvarps-
stöðvarinnar. Eftir
sátu þeir Heimir
Karlsson, Arnar
Gunnlaugsson og
knattspyrnudóm-
arinn geðþekki
Gylfi Orrason sem
síðar í þættinum
settist í sæti Guðna.
Undir myndbrotum úr leik AC
Milan og Anderlecht í meistardeild
Evrópu mátti heyra mikla skruðn-
inga og svo rak einn þáttastjórn-
andanna upp undrunaróp og þegar
myndavélunum var beint aftur inn
í myndverið var miðvörðurinn
gamli horfinn á braut. Margir
héldu að þarna hefði eitthvað alvar-
legt komið fyrir en þegar Frétta-
blaðið hafði samband við Guðna
var hann allur að braggast, sagði
að ælupest hefði verið að ganga
heima fyrir og hún hefði reyndar
lagst á hann þarna. „Ljósin og hit-
inn voru nú ekki beint til bæta úr
skák,“ sagði Guðni. „Ég náði þó
sem betur fer fram á klósett,“
bætir hann við og viðurkenndi að
þarna hefði gamli sprengikraftur-
inn úr boltanum komið að góðum
notum. „Ég er að ná mér, er ekkert
slæmur í dag,“ útskýrir Guðni en
augljóst var að félögum hans í
þættinum stóð ekki á sama. „Það
var mjög óþægilegt að finna fyrir
þessu í miðjum þætti en mér fannst
það aðdáunarvert að sjá hvernig
allir brugðust við, náðu að
leysa hlutina eins og þetta
væri hluti af handritinu,“
útskýrir Guðni.
Heimir Karlsson viður-
kennir að honum hafi
ekki staðið á sama
þegar Guðni rauk
svona skyndilega út
undir myndbrotunum
en ákvað að halda still-
ingu sinni enda vissi hann að fjöl-
skylda og ættingjar Guðna gátu
verið að horfa á. „Við vildum ekki
vera að búa til einhverja hræðslu
hjá fólkinu hans heima,“ segir
Heimir sem gat ekkert hugað að
félaga sínum en Arnar brá sér frá
og sá að þetta var ekki eins alvar-
legt og þetta leit út fyrir að vera.
„Ég hafði hugann við Guðna á
meðan við fórum yfir leikina
en til allra hamingju fór
þetta allt vel að lokum.“
Þurfti að kasta upp í beinni útsendingu
„Blaðið er uppselt þrátt fyrir
skæruliðasveitir Fróða,“ segir
Reynir Traustason, ritstjóri nýja
tímaritsins Ísafold, og hlær við.
„Þær keyra milli verslana og
henda blaðinu okkar til hliðar en
við tökum þessu sem hverju öðru
hundsbiti og lögum jafnóðum til
eftir þá.“
Reynir ber samkeppnisaðilan-
um sem gefur út aragrúa af tíma-
ritum, þar á meðal Séð & heyrt,
Mannlíf, Hús og híbýli og Bleikt
og blátt, þungum sökum en segist
þó halda ró sinni. „Ég hef gaman
af því að þeir skuli ætla að mæta
samkeppninni svona, með því að
fara um allt eins og stormsveipur
og snúa við rekkum svo Ísafold
sjáist ekki. Þetta er lágkúruleg
aðferð til að ota fram eigin vöru.“
Reynir segir skemmtilegasta
dæmið um aðgerðir samkeppnis-
aðilans hafa átt sér stað í verslun
þar sem Ísafold var mokað úr
blaðarekka ofan í innkaupakerru
og ýtt til hliðar. „Síðan var brauð
og ýmislegt annað sett ofan á blöð-
in í kerrunni til að tryggja að blað-
ið yrði örugglega ekki keypt en
það er svo skemmtilegt að mark-
aðurinn svaraði þannig að blaðið
seldist upp úr
innkaupakerr-
unum,“ segir
Reynir.
Mikael
Torfason,
aðalritstjóri
Birtings,
sem keypti
leifarnar af
tímaritaútgáfu
Fróða
ekki
alls
fyrir löngu vísar ásökunum síns
gamla félaga á bug þó þessir fyrr-
verandi samherjar á DV séu vissu-
lega komnir í hár saman á tíma-
ritamarkaðnum. „Ég kannast ekki
við neinar skæurliðasveitir á
okkar vegum og finnst þetta
súrrealísk spurning enda er fólk
ekki vitleysingar og kaupir þau
tímarit sem það vill óháð því hvar
þau eru staðsett í verslunum,“
segir Mikael sem telur Reyni vera
að vakna upp við þá staðreynd að
lausasala tímarita á Íslandi sé
„erfiðasti bissniss í heimi“.
„Ég myndi í hans sporum ein-
beita mér að því að gera góð blöð.
Það geri ég,“ segir Mikael og bætir
því við að hann geti ekki staðið í
því að skipta sér af uppstillingu
tímarita í öllum verslunum. „Ég
held að 365 miðlar séu ekkert of
hressir með þessa útgáfu Reynis,“
segir Mikael og telur meinta
skæruliða frekar á vegum fjöl-
miðlasamsteypunnar. „Þeir hafa
meira bolmagn til þess að standa í
þessu en ég enda er ég ekki að
þessu. Á Baugur hvort eð er ekki
flestar þessar verslanir? Reynir
verður að eiga þetta við Jón Ásgeir
en ekki mig.“
Reynir ber sig, sem fyrr segir
vel, og óttast ekki hörkuna á mark-
aðnum. „Það er mikil stemning í
þessu þó við stöndum í einhverju
smáböggi. Nóatún vill til dæmis
ekki selja blaðið en selur Bleikt og
blátt. Það er þeirra vandamál vilji
þeir frekar selja klámblöð en
virðuleg tímarit. Ég hef rætt þetta
við menn þar og það liggja annar-
legar ástæður að baki. Ég hef lengi
verslað í Nóatúni í Grafarholti en
er hættur því og það er ekki síst
barnanna vegna en ég sniðgeng þá
eins og þeir sniðganga mig.”
...fær Arnar Eggert Thorodd-
sen fyrir að beita sér fyrir
bættri réttarstöðu samkyn-
hneigðra í Færeyjum.
„Auðvitað er leiðinlegt ef fólk mis-
skilur það sem maður segir og jafn-
vel sárnar,“ segir Ásgeir Kolbeins-
son fjölmiðlamaður en viðtal við
hann í þættinum Innlit/útlit, sem
sýndur var á Skjá einum á þriðju-
dag, hefur valdið fjaðrafoki.
Skjá einum bárust margar kvart-
anir eftir þáttinn, þar sem Arnar
Gauti ræddi við Ásgeir um endur-
bætur sem hann réðst í á heimili
sínu. Fór fyrir brjóstið á mörgum
að tvímenningarnir notuðu orð á
borð við „viðbjóður“ og „ógeð“ til
að lýsa því sem virtust venjulegar
innréttingar.
Ásgeir er leiður yfir málinu og
segir það á misskilningi byggt. „Ég
keypti þessa íbúð gagngert til að
gera hana upp og fékk hana á lægra
verði því hún var í svo slæmu ásig-
komulagi.“
Hann segir hluti oft líta betur út
í sjónvarpi en í raun og veru og
myndavélin hafi ekki fangað alls
kyns ófögnuð sem þeir Arnar voru
að vísa til. „Ég ætlaði hvort eð er að
rífa allt út en íbúðin hafði ekki
verið þrifin lengi; komin væg ólykt
inni á klósetti, parketið flagnað,
veggir útbarðir og hurðirnar
rispaðar en það sást ekki á mynd-
unum. Við vorum bara að tala um
slíka hluti.“
Ásgeir segir að líklega hefði
verið skynsamlegt að vanda
orðavalið betur. „Við Arnar erum
vinir og töluðum á kumpánlegum
nótum. Það átti ef til vill ekki við
þarna.“ Mest sárnar honum að
sumir túlka orð þeirra Arnars sem
snobb og flottræfilshátt. „Okkur
þykir það báðum leiðinlegt því
þetta snerist engan veginn um það.
Sjálfur skít ég ekki peningum en
það hefur lengi verið draumur
minn að kaupa íbúð og gera hana
upp. Loksins rættist hann.“
Ásgeir ætlaði ekki að særa neinn
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Sérferð Einstök gönguferð á Alicante
69.900 kr.1.–4. nóv.
Fótbolti Chelsea–Watford
56.900 kr.10.–12. nóv.
Fótbolti Arsenal–Hamburg SV
49.900 kr.21.–22. nóv.
Fótbolti Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
Golf Bonalba, Alicante
Verð frá 69.900 kr.Valfrjálst
Sérferð Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Fótbolti Fulham–Arsenal
49.900 kr.29.–30. nóv.
Fótbolti Man. Utd.–Man. City
64.900 kr.8.–10. des.
Sérferð Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Sérferð Aðventuferð til Berlínar
49.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Sólarferð Alicante, Hotel Sidi San Juan
Verð frá 47.121 kr.Valfrjálst
Golf Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Tónleikar George Michael
69.900 kr.27.–29. nóv.
Aðventuferð til Berlínar, helgarferð. Tilvalið að
skoða borgina, fara tónleika, borða góðan mat,
kíkja á jólamarkaðina og klára jólagjafirnar!
Innifalið: Flug með sköttum, gisting á 4 stjörnu
hóteli og akstur til og frá flugvelli.
Sunnlendingarnir frá Portsmouth hafa staðið
sig vonum framar í deildinni í haust. En nú
reynir á þá þegar þeir mæta Arsenal á
Emirates Stadium enda hafa heimamenn verið
að spila fantavel. Flug með sköttum, hótel í 2
nætur með morgunverði og miði á leikinn.