Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 88

Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 88
H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA - 7 4 8 0 KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag. Það er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði. 3.475.000 kr. Við kynnum nýjan alvörujeppa, KIA Sorento – fullbúinn jeppi með ríkulegum staðalbúnaði • hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting • ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél • ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control) • 16" álfelgur • þakbogar • vindskeið • þokuljós Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgis- menn á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn vinsælasti jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag. Nýtt verð BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR Í DAG ER FÖSTUDAGUR! Nauðganir í miðborginni hafa vakið athygli og óhug. Það ættu hins vegar allar nauðganir að gera. Síðustu 12 ár hafa 1.248 þol- endur nauðgana leitað til Neyðar- móttökunnar. um kynferðisbrot snýst oftar en ekki um dæmdar refsingar. Það eru hins vegar mörg önnur atriði sem skipta máli í sam- bandi við kynferðisbrot. Það er t.d. athyglisvert hversu mörg mál falla niður, án þess að ákært sé. Stór hluti kynferðisbrotamála fer aldrei fyrir dóm, ýmist vegna þess að þau eru ekki kærð eða vegna þess að ekki er talin ástæða til að gefa út ákæru. rannsóknir hafa sýnt að kærulíkur og líkur á sak- fellingu aukast eftir því sem lík- amlegir áverkar eru meiri og ef gerandinn er ókunnugur. Endur- speglar það kannski ríkjandi skoð- un um að þessi brot séu hinar raunverulegu nauðganir? liggur nokkur þekking á því hver algeng viðbrögð kvenna eru við nauðgun og þau eru sjaldn- ast að slást við árásarmanninn, enda ekki margar konur sem hafa betur í slagsmálum við karlmenn. Það getur verið erfiðleikum bundið að sanna hin hefðbundnu viðbrögð kvenna, svo sem að þær hafi grát- ið, beðið gerandann um að hætta eða lamast af hræðslu. Slík við- brögð skilja ekki eftir sig líkam- lega áverka. Skortur á líkamlegum áverkum veitir þess vegna ekki sönnun fyrir því að samræði hafi farið fram með vilja þolanda. til kvenna eru sömu- leiðis þversagnarkennd. Konum er stundum sagt að berjast ekki á móti ef á þær er ráðist, svo þær verði ekki fyrir enn meira ofbeldi. Það getur síðan komið þeim í koll þegar kemur að því að sanna brotið. Umræðan má ekki snúast um það að konur eigi að fara varlega, að þær eigi ekki að þiggja bílfar eða ganga einar heim að kvöldlagi. Það gefur skakka mynd af því hvenær konur eru í mestri hættu, það er nefnilega ekki úti á götum, heldur við aðstæður sem teljast öruggar. Það er sömuleiðis ekki hægt að gera aðra ábyrga fyrir nauðgunum en þá sem fremja þær. viðhorf birtast í rétt- inum, bæði í dómum og lagasetn- ingu, og þess vegna er mikilvægt að vera meðvitaður um það hver við- horf okkar eru til nauðgana, ástæð- ur þeirra og sök á þeim. Vægir dómar eru ekki eina vandamálið. Stærsta málið er að komast að ástæðum nauðgana með það fyrir augum að koma í veg fyrir þær. Nauðganir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.