Fréttablaðið - 13.11.2006, Qupperneq 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
SUZUKI GRAND VITARA V6
Nýskr. 06.03 - Sjálfsskiptur - Ekinn 1þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.840
.000.
-
Tveir Rúmenar um
þrítugt sem grunaðir eru um
stórfelld fjársvik í kjölfar þess
að kortalestursbúnaður fannst á
tveimur hraðbönkum á höfu-
borgarsvæðinu voru í gær
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
24. nóvember.
Búnaðurinn sem um ræðir
afritar upplýsingar greiðslu-
korta og pin-númer viðskipta-
vina hraðbankanna. Hann getur
litið út fyrir að vera eðlilegur
hluti af bönkunum og er oft á
tíðum komið fyrir við kortarauf
þeirra eða fyrir ofan lyklaborð-
ið. Lögreglan varðist allra frétta
af málinu í gær og sagði
rannsókn þess á viðkvæmu
stigi.
Tveir Rúmenar í
gæsluvarðhaldi
Prófkjör sjálfstæðis-
manna í Suðvesturkjördæmi á
laugardag einkenndist af mikilli
óvissu meðan á talningu stóð um
það hver myndi hljóta 4. sæti.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra bauð
sig ein fram í 1. sæti listans og
fékk stuðning 81 prósents þátt-
takenda í prófkjörinu í það sæti.
Alls höfðu 11.700 manns
atkvæðisrétt og af þeim greiddu
6.174 gild atkvæði.
Bjarni Benediktsson alþingis-
maður var sá eini sem sóttist
eftir 2. sæti og fékk það með
stuðningi 88 prósenta þátttak-
enda.
Ármann Kr. Ólafsson bæjar-
fulltrúi fékk örugga kosningu í 3.
sæti með 42 prósenta stuðningi í
þrjú efstu sætin.
Þau Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir bæjarstjóri og Jón Gunnarsson
framkvæmdastjóri, sem föluðust
eftir 3. sætinu eins og Ármann,
háðu harða baráttu allt til loka
talningarinnar um 4. sætið. Svo
fór að lokum að Jón hafði betur.
Ragnheiður fékk 38 atkvæðum
minna en Jón í 4. sætið og hlaut 6.
sætið.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
aðstoðarkona Geirs Haarde for-
sætisráðherra, náði 5. sætinu.
Ekki voru gefin upp fleiri sæti
en áðurnefnd sex efstu sem eru
bindandi.
„Enginn getur
verið ánægður með ástandið í
Írak núna,“ sagði Josh Bolten,
starfsmannastjóri Hvíta hússins
og æðsti ráðgjafi George W. Bush
Bandaríkjaforseta. „Allir hafa
lagt hart að sér, en það sem við
höfum verið að gera hefur ekki
virkað nógu vel eða nógu hratt.
Þannig að greinilega er kominn
tími til að líta á vandann öðrum
augum,“ sagði hann í gær.
Eftir sigur demókrata í þing-
kosningunum á þriðjudaginn og
brotthvarf Donalds Rumsfeld úr
embætti varnarmálaráðherra
þykir fullvíst að Bush muni fallast
á töluverðar breytingar á áhersl-
um í stríðinu, þótt enn sé ekki ljóst
í hverju þær breytingar verða
fólgnar og ekki víst að þær verði
mjög róttækar.
Í dag ætla Bush og aðrir helstu
ráðamenn öryggis- og hernaðar-
mála í Bandaríkjunum að setjast
niður með Íraksnefndinni, sem
hefur frá því í haust farið ofan í
saumana á því sem úrskeiðis
hefur farið í stríðinu í Írak og leit-
að leiða til þess að bæta þar úr.
Formenn nefndarinnar eru
repúblikaninn James A. Baker,
fyrrverandi utanríkisráðherra,
og demókratinn Lee Hamilton,
fyrrverandi þingmaður.
Nefndin sagðist í haust ætla að
birta niðurstöður sínar opinber-
lega eftir að þingkosningar hefðu
farið fram, en þær fóru fram í síð-
ustu viku. Fyrir kosningarnar
höfðu fjölmiðlum þó borist til
eyrna eitthvað af því sem komið
hefur til tals á fundum nefndar-
innar, þar á meðal að nefndin telji
nauðsynlegt annað hvort að gera
áætlunum um brotthvarf banda-
ríska hersins frá Írak eða fá bæði
írönsk og sýrlensk stjórnvöld til
samstarfs.
Einn af nefndarmönnunum er
Robert Gates, verðandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og það
eitt þykir benda til þess að tillögur
nefndarinnar slái tóninn um það
hvaða stefnubreytinga er að vænta
af hálfu Bandaríkjastjórnar varð-
andi stríðið í Írak.
Carl Levin, öldungardeildar-
þingmaður fyrir Demókrataflokk-
inn, sagðist í gær telja nauðsyn-
legt að byrjað verði að flytja
bandaríska hermenn heim frá Írak
innan hálfs árs. Levin verður að
öllum líkindum formaður her-
málanefndar deildarinnar þegar
nýtt þing tekur til starfa í byrjun
næsta árs, þannig að væntanlega
gefa orð hans til kynna hvað demó-
kratar leggja áherslu á, nú þegar
þeir verða í meirihluta í báðum
deildum Bandaríkjaþings.
Bush mun fallast á
breytingar í Írak
Í dag og næstu daga skýrist nokkuð hverra stefnubreytinga er að vænta af hálfu
Bandaríkjastjórnar varðandi stríðið í Írak. Bush ætlar að hitta Íraksnefndina í dag.
Rúmlega fjörutíu
prósent barna innflytjenda í
Danmörku hætta námi eftir að
skólaskyldu lýkur. Þetta gerist
þrátt fyrir að afkomendurnir
séu fæddir og uppaldir í
landinu.
Til samanburðar þá er
hlutfallið helmingi lægra meðal
barna með danskan bakgrunn,
eða einn á móti fimm. Þetta er
niðurstaða könnunar sem
Samstök atvinnurekenda í
Danmörku gerðu og greint er frá
í Berlingske tidende í gær.
Börnin endast
skemur í skóla
TF-LÍF, þyrla Landhelg-
isgæslunnar, sótti í gær slasaðan
rússneskan sjómann á olíuflutn-
ingaskip sem statt var um 210
sjómílum suðvestur af landinu.
Maðurinn, sem hlaut opið fótbrot,
var fluttur á Landspítalann í
Fossvogi og kom þangað rúmlega
fimm síðdegis.
Nýja þyrlan, sömu tegundar og
TF-LÍF, var einnig send af stað til
öryggis vegna þess hversu löng
flugleiðin var. Skyggni var gott
og vel gekk að síga að sögn
Gæslunnar, enda skipið með
sérútbúnum palli sem auðveldaði
lendingu. Það var á leið til New
York með 25.000 tonn af olíu.
TF-LÍF sótti fót-
brotinn Rússa
Pólskur karlmaður
á þrítugsaldri lést á laugardags-
kvöld þegar bifreið sem hann var
farþegi í skall á steyptum vegg við
Reykjanesbraut skammt frá nýrri
verslun IKEA í Garðabæ. Tveir
landar hans voru með honum í
bílnum en þeir sluppu báðir með
minniháttar meiðsl.
Töluverðar vegaframkvæmdir
standa yfir á þeim slóðum sem
slysið varð og er talið að ófull-
nægjandi merkingar á svæðinu
hafi haft áhrif á það að ökumaður
bifreiðarinnar missti stjórn á
henni. Veglýsing er auk þess lítil á
þessu svæði Reykjanesbrautinar-
innar.
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu,
sagði í kvöldfréttum NFS í gær að
mjög skýrar reglur gildi um
hvernig haga bæri merkingum við
framkvæmdir. Reglunum virðist
hins vegar ekki fylgt eftir og
greinilegt sé að eftirliti sé ábóta-
vant. Hann sagði bæði Vegagerð-
ina og lögreglu sinna eftirliti af
þessu tagi og að þeir aðilar verði
að svara fyrir það af hverju eftir-
fylgnin er ekki meiri.
Einar sagði að mjög víða megi
finna dæmi um óviðunandi merk-
ingar nálægt umferð og nefndi
sem dæmi á Sundabraut og við
Kalkofnsveg í Reykjavík. Ólíðandi
sé að ekkert sé aðhafst í þessum
málum.
Banaslys á Reykjanesbraut
Do you speak English, Níels?
Bandarískir
embættismenn og læknar á vegum
þeirra hafa fylgst grannt með
fréttum og
myndbirtingum
af Fídel Kastró
Kúbuleiðtoga.
Þeir telja
fullvíst að hann
sé með krabba-
mein og lifi vart
út árið 2007.
„Þetta er mál
sem ég vil ekki
vera með neinar
vangaveltur um,“ sagði Felipe
Perez Roque, utanríkisráðherra
Kúbu, í viðtali við AP fréttastof-
una í síðustu viku.
Þessi orð hans urðu einungis til
þess að styrkja grun þeirra, sem
telja Kastró alvarlega veikan.
Telja Kastró
vera dauðvona
Tæplega hundrað atkvæði
voru ekki talin í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi á
dögunum. Kjörstjórn sendi í
gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þar
sem fram kom að 87 atkvæði hefðu
gleymst. Í yfirlýsingunni kemur
fram að kjörstjórnin hafi yfirfarið
þessa kjörseðla vandlega og komist
að því að þeir breyti engu um röð
manna á listanum. Kjörstjórnin
biðst velvirðingar á mistökunum.
Mjótt var á mununum milli
Gunnars Svavarssonar og Þórunnar
Sveinbjarnardóttur í fyrsta sæti
listans.
Gleymdu 87
atkvæðaseðlum