Fréttablaðið - 13.11.2006, Síða 74
Tveir leikir fóru fram í
ensku úrvalsdeildinni í gær. Það
var stórleikur á Emirates Stadium
þar sem Arsenal tók á móti Liver-
pool. Svo fór að Arsenal sigraði
Liverpool 3-0 þar sem ólíklegustu
menn komust á blað sem marka-
skorarar. Reading vann góðan
sigur á Tottenham, 3-1, á heima-
velli sínum eftir að Tottenham
hafði komist yfir í leiknum.
Leiks Arsenal og Liverpool var
beðið með mikilli eftirvæntingu
enda um tvö stórlið að ræða. Leik-
urinn fór fjörlega af stað og Peter
Crouch náði að skora fyrir Liver-
pool en það mark var réttilega
dæmt af vegna rangstöðu. Mathi-
eu Flamini kom svo Arsenal yfir
stuttu fyrir leikhlé eftir góðan
undirbúning frá Cesc Fabregas.
Leikmenn Arsenal slógu ekki
slöku við í síðari hálfleik og bættu
við tveimur mörkum. Fyrst var það
varnarmaðurinn Kolo Toure sem
komst einn inn fyrir vörn Liver-
pool og skoraði af öryggi og þegar
tíu mínútur lifðu eftir af leiknum
náði William Gallas að innsigla sig-
urinn fyrir Arsenal með góðu
marki.
„Við þurftum á þessum sigri að
halda. Tímabilið snýst um að rífa
sig upp eftir slæmt gengi og við
vorum óheppnir á móti West Ham
um síðustu helgi. Ég vissi að þetta
yrði mikilvægur leikur fyrir
okkur. Við lékum gegn góðu liði
Liverpool og fyrsta markið gerði
gæfumuninn,“ sagði Arsene Weng-
er stjóri Arsenal eftir leikinn.
Ívar Ingimarsson lék allan leik-
inn í liði Reading sem vann góðan
sigur á Tottenham á heimavelli
sínum. Brynjar Björn Gunnarsson
kom inn á þegar fimm mínútur
voru til leiksloka.
Tottenham skoraði fyrsta mark-
ið úr vítaspyrnu en tvö mörk fyrir
leikhlé komu heimamönnum yfir.
Reading tryggði sér síðan sigur í
leiknum með marki skömmu fyrir
leikslok og 3-1 sigur liðsins stað-
reynd.
Martin Jol stjóri Tottenham
var að vonum ósáttur með tapið.
„Við ætluðum að gera betur í
þessum leik en það vantaði alla
baráttu í liðið. Það er pirrandi. Ef
við hefðum unnið þennan leik þá
hefði það verið frábært. Við
erum komnir í átta liða úrslit í
deildarbikarnum, erum að spila
vel í Evrópukeppninni og hefð-
um sennilega farið í sjöunda sæti
í deildinni. En við klúðruðum
því.“
Iceland Express deild kk:
Iceland Express deild kvk:
DHL-deild karla:
DHL-deild kvenna:
Evrópukeppnin í handb.:
Enska úrvalsdeildin:
Spænska úrvalsdeildin:
Skallagrímur frá
Borgarnesi fékk sér fínan bíltúr
í höfuðborgina í gær og yfirgaf
svæðið með ís í annarri og tvö
stig í hinni eftir öruggan sigur á
Haukum á Ásvöllum, 79-98.
Gestirnir tóku völdin strax
frá upphafi og náðu ágætis for-
skoti, þökk sé góðum leik þeirra
Zdravevskis og Flakes sem fóru
mikinn í sókninni. Haukarnir
héldu þó Sköllunum í um tíu
stiga fjarlægð lengst af en Roni
Leimu hélt þeim lengi vel á floti
í sókninni á meðan lítið kom út
úr Kevin Smith. Sex stiga munur
var á liðunum i leikhléi, 45-51.
Skallarnir voru mun sterkari
í þriðja leikhluta og virtust ætla
að stinga af. Haukar neituðu að
gefast upp, unnu sig inn í leikinn
aftur og munurinn tíu stig fyrir
síðasta leikhluta, 69-79.
Í lokaleikhlutanum sýndu
Skallarnir raunverulegan styrk
sinn, hreinlega keyrðu yfir
heimamenn og kláruðu leikinn
þegar nokkuð var eftir af honum.
Það var engu líkara en þeir hefðu
verið á hálfum hraða fram að því
og þeir litið á leikinn sem hluta
af huggulegum sunnudagsbíltúr.
„Við spiluðum vel og héldum
dampi í nánast fjörutíu mínútur.
Það voru fimm slakar mínútur
hjá okkur, annars var þetta mjög
gott, sagði kátur þjálfari Skall-
anna, Valur Snjólfur Ingimundar-
son. „Við spiluðum góða vörn og
þegar það gerist þá vinnum við.
Svo var sóknin líka að virka enda
skorum við um hundrað stig sem
er gott.“
Árangursríkur sunnudagsbíltúr hjá Sköllunum
Það var ótrúlegur leikur
sem áhorfendur í Ásgarði fengu
að sjá í gær. Akureyri komst einu
sinni yfir í leiknum og það var á
mikilvægasta augnablikinu, sek-
úndu áður en flautað var til leiks-
loka. Lokatölur urðu 22-23 og
dramatíkin var mikil í leikslok.
Stjörnumenn léku án Patreks
Jóhannessonar í gær en hann á við
meiðsli að stríða í baki og Kristján
Halldórsson tók enga áhættu með
leikmanninn. Ekki nóg með það
heldur byrjaði Tite Kalandaze á
bekknum í gær.
Leikurinn var mjög jafn í byrj-
un en Stjörnumenn höfðu þó yfir-
leitt yfirhöndina og lið Akureyrar
komst aldrei nær Stjörnunni en
svo að jafna leikinn. Það var oft á
tíðum ekki fallegur handbolti sem
leikmenn buðu áhorfendum upp á í
gær og til að mynda var sóknar-
leikur Akureyrar oft frekar
vandræðalegur á köflum.
Þegar um fimm mínútur voru
eftir af fyrri hálfleik tóku Stjörnu-
menn leikhlé í stöðunni 9-8. Eitthvað
hefur það verið sem Kristján þjálfari
liðsins hefur sagt sem virtist vera
vítamínsprauta fyrir heimamenn.
Stjarnan skoraði fimm næstu mörk
og breytti stöðunni úr 9-8 í 14-8.
Akureyri náði þó að skora síð-
asta mark hálfleiksins og staðan í
hálfleik var 14-9, Stjörnunni í vil.
Stjarnan hélt forskoti sínu fram-
an af síðari hálfleik en norðanmenn
börðust grimmilega. Smátt og
smátt minnkaði bilið á milli liðanna
og Akureyri náði að jafna metin í
fyrsta sinn í síðari hálfleik þegar
rúm mínúta var eftir af leiknum.
Stjörnumenn fóru illa að ráði
sínu og misstu boltann. Akureyri
brunaði upp völlinn og Tite
Kalandaze tók á það ráð að brjóta
gróflega á einum leikmanni
Akureyrar og fékk fyrir vikið að
líta rauða spjaldið. Þegar þetta
gerðist voru fjórar sekúndur
eftir af leiknum.
Akureyri tók aukakastið og
fékk víti þegar brotið var á
Aigalo Lazdins. Úr vítinu skor-
aði Goran Gucis og tryggði Akur-
eyri sigur. Þetta var í fyrsta og
eins skiptið sem Akureyri komst
yfir leiknum.
Sævar Árnason þjálfari Akur-
eyrar var að vonum ánægður
eftir leikinn. „Þetta er ótrúlega
sætur sigur. Við vorum yfir í
eina sekúndu í leiknum og það
var sekúndan sem skipti máli,“
sagði Sævar en það vakti athygli
að Hreiðar Guðmundsson, mark-
vörður Akureyrar, fór fram í síð-
ustu sókn liðsins.
„Hann kann ekkert að spila
sókn og það kom aldrei til greina
að senda á hann. Ég trúi heldur
ekki að þeir hafi ætlað að setja
mann á hann.“
Akureyri vann ótrúlegan sigur á Stjörnunni
Leikmenn Arsenal fóru illa með erkifjendur sína í Liverpool í gær. Ívar lék all-
an leikinn fyrir Reading þegar liðið vann góðan heimasigur á Tottenham.
Barcelona vann mikil-
vægan sigur á Zaragoza á
heimavelli í gær, 3-1, þar sem
Eiður Smári var í byrjunarliði
Barcelona.
Gestirnir í Zaragoza náðu
forystunni í leiknum með marki
frá Gabriel Milito á 17. mínútu.
Fram að því hafði leikurinn verið
einstefna af hálfu Barcelona og
markið kom því gegn gangi
leiksins. Ronaldinho náði að jafna
metin fyrir Barcelona á 31.
mínútu með skallamarki sem sést
ekki oft á þeim bænum.
Eiður Smári náði sér ekki á
strik í leiknum og var skipt út af
á 67. mínútu og inn á fyrir hann
kom Javier Saviola.
Sigurmark Barcelona kom
fjórum mínútum fyrir leikslok
þegar Ronaldinho skoraði
stórkostlegt mark beint úr
aukaspyrnu. Ronaldinho átti
góðan leik og markið kórónaði
leikinn hjá þessum brasilíska
snillingi, aukaspyrna beint í
bláhorni. Saviola skoraði svo
síðasta mark leiksins í uppbótar-
tíma.
Eiður náði sér
ekki á strik