Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 1

Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 1
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... Herða tökin | Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, gerði það að umtalsefni á aðalfundi stofnunarinnar að eignarhald á íslensku viðskiptabönkunum og Straumi-Burðarási hefur verið að þrengjast á síðustu misserum. Aukin samkeppni | Breska leiguflugfélagið Astraeus ætlar á næstunni að sækja um leyfi til íslenskra stjórnvalda fyrir flugi frá Íslandi til Bandaríkjanna í sam- vinnu við lággjaldaflugfélagið Iceland Express. Dýrt spaug | Hagnaður Actavis á þriðja ársfjórðungi nam ekki nema 715 milljónum króna vegna kostn- aðar af misheppnaðri tilraun til yfirtöku á króatíska lyfjafyrirtæk- inu Pliva. Undirliggjandi hagnaður nam rúmum 2,5 milljörðum króna. Lánshæfi staðfest | Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat ríkis- sjóðs Íslands. Lánshæfiseinkunn fyrir erlendar langtímaskuldbind- ingar er AA- og fyrir innlendar skuldbindingar AAA. Óbreytt verðbólga | Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,04 pró- sent milli október og nóvember. Verðbólgan er enn langt frá 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands og mælist 7,6 prósent á ársgrundvelli. FL stærri | FL hefur aukið við hlut sinn í Finnair Oyj um rúmt pró- sentustig á þriðja ársfjórðungi og átti í lok september tólf prósent hlutafjár. Hlutur Straums-Burðar- áss á sama tíma nam 11,1 prósenti. Hagnaður eykst | FL Group skil- aði rétt tæpum 11 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuð- um ársins samanborið við tæpa 6,6 milljarða króna í fyrra. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 5,25 milljörðum króna. Einfaldara þjóðhags- líkan Bætir spágerð Seðlabankans 8 Afþreyingarrisinn Disney Methagnaður á þriðja fjórðungi 6 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Baugur og breska konungsveldið House of Fraser bætist í hópinn 10-11 Heildarhagnaður 23 sparisjóða var rúmir 6,3 milljarðar króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins samkvæmt tölum frá Sambandi íslenskra sparisjóða. Til samanburðar nam hagnað- ur þessara sömu sparisjóða 9,5 milljörðum króna allt árið 2005. SPRON skilaði 2,6 milljarða hagnaði á fyrri hluta ársins, SpKef hagnaðist um einn millj- arð og SPM og SPV skiluðu um 600 milljóna króna hagnaði. Veruleg aukning hagnað- ar varð á þriðja ársfjórðungi 2006 hjá þeim sparisjóðum sem gert hafa upp. Þannig hagnaðist SPRON um tæpan 7,1 milljarð króna á ársfjórðungnum einum sem er meiri hagnaður en spari- sjóðirnir 23 sýndu á fyrri hluta ársins. Er því samanlagður hagn- aður sparisjóðanna orðinn 13,4 milljarðar á þessu ári; fjörutíu prósentum meiri en allt árið í fyrra. - eþa Yfir 6,3 milljarða hagnaður sparisjóða á fyrri hluta árs Krónan hefur veikst hátt á fjórða prósent undanfarna tvo daga. Hún veiktist um 1,9 prósent í fyrradag vegna óróa í kjölfar ítrekunar matsfyrirtækisins Fitch á að enn séu neikvæðar horfur fyrir lánshæfismat rík- issjóðs, þótt lánshæfiseinkunn- ir ríkisins hafi verið staðfestar. Veikingin gekk örlítið til baka í gærmorgun en tók svo snarpa dýfu aftur og hafði um þrjú leyt- ið í gærdag veikst um rúm tvö prósent. Sögur voru á kreiki í gær um stóran gjaldeyrissamning sem hefði ýtt veikingu krónunnar af stað. Birti fréttastofa Reuters meðal annars fréttir þess efnis og tengdi það stórum samningi sem Fons eignarhaldsfélag var að ganga frá. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefði sá samningur þó ekki nægt til þess að veikja gengið að svo miklu leyti sem raun bar vitni, nema af því að ekki var samsvarandi kaupáhugi fyrir krónu. - hhs Umtalsverð veiking krónu Óli Kristján Ármannsson skrifar Framkvæmdastjórn og ráðgjafarstjórn Stork fyrir- tækjasamstæðunnar í Hollandi tilkynnti í gær um þá niðurstöðu sína að ekki væri félaginu í hag að skipta því upp líkt og samþykkt var á hluthafafundi í byrjun október. Sá fundur var haldinn að beiðni stærstu hluthafa félagsins, en það eru bandarísku fjárfestingasjóðirnir Centaurus og Paulson. „Við höfum íhugað tillöguna vandlega, en í henni felst veruleg breyting frá farsælli stefnu félagsins síðustu ár,“ segir Sjoerd Vollebregt, forstjóri Stork. „Líkt og sjóðirnir teljum við að innan Stork séu mikilir möguleikar til virðisaukningar, en höfum eftir ítarlega greiningu komist að þeirri niðurstöðu að henni verði ekki náð með tillögu þeirra um upp- skiptingu.“ Niðurstaða framkvæmdastjórnar Stork er hins vegar önnur en greiningardeilda í Hollandi, en samhljómur er með þeim og stærstu hluthöfum fyrirtækisins um að verðmæti þess aukist til muna verði því skipt upp. „Ef hluthafalýðræði væri virt að vettugi með þessum hætti annars staðar þá myndi nú eitthvað heyrast,” segir Árni Oddur Þórðarson, stjórnar- formaður Marels, en fyrirtækið hefur um allangt skeið átt í óformlegum viðræðum við Stork um matvælavinnsluvélahluta samstæðunnar. Þær hafa hins vegar ekki enn komist á formlegt stig. „Niðurstaða framkvæmdastjórnar Stork gengur á svig við hluthafalýðræði og nýlega samþykkt tilmæli um góða stjórnarhætti (corperate govern- ance) í Hollandi,“ segir Árni Oddur. Hann kveður Marel deila þeirri sýn með stjórnendum Stork að töluverðir möguleikar séu á virðisaukningu þeirra félaga sem saman mynda Stork. „Við teljum hins vegar að einstök félög innan samstæðunnar hafi litla eða jafnvel neikvæða samlegð og erum sam- mála stærstu hluthöfum um að mesta virðisaukn- ingin sé með þeim hætti að hver leggur í starfsemi Stork taki þátt í þeim samrunaferlum sem eiga sér stað í hverjum geira fyrir sig. Stork hefur enda sagt opinberlega að þeir hefðu áhuga á að kaupa félag á borð við Marel og við höfum lýst áhuga á Stork Food Systems,“ segir hann og kveður eðlilegast að hluthafar hvors félags fyrir sig ráði för. Nokkur óvissa ríkir því um framhald málsins þar sem stærstu hluthafar og stjórn Stork eru ekki á einu máli um hvaða stefnu skuli taka í rekstr- inum. Líklegast er talið að Centaurus og Paulson fari fram á nýjan hluthafafund þar sem kosin verði ný ráðgefandi stjórn, en hún myndi svo ráða nýja framkvæmdastjórn. Ekki er þó útséð um að þessi leið sé stærstu hluthöfum fær, því til að kjósa nýja stjórn þarf 51 prósent virkra hlutabréfa. Saman fara sjóðirnir og Marel með 40 prósent í Stork. Fari málið þá leið að skipt verði um stjórn Stork telja sérfróðir að það myndi tefja uppskiptingu sam- stæðunnar um hálft ár eða svo. Ákvörðun sem brýtur í bága við hluthafalýðræði Framkvæmdastjórn Stork hafnar tilmælum hluthafafundar um að skipta upp félaginu. Marel ásælist hluta félagsins. Forgangsréttarútboði Trygginga- miðstöðvarinnar (TM) lauk á mánudag en rúmlega 134,6 millj- ón hlutir seldust fyrir rúman 5,1 milljarð króna. Samþykkt var að veita stjórn TM undir lok september heimild til að hækka hlutafé í félaginu um rúma 186,5 milljón hluti til að styrkja eiginfjárstöðu TM vegna kaupa á hlutum í norska trygg- ingafélaginu NEMI. Stjórn TM ákvað að hækka hlutafé um tæp 16,9 prósent og verða heildarhlutir eftir það tæp- lega 1,1 milljarður talsins. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur sölutryggt sölu allra hluta. Almennt hlutafjárútboð hófst í gærmorgun og lýkur í dag en lág- marksáskrift er fimm milljónir króna að markaðsvirði. - jab TM selur nýtt hlutafé Guðrún Dalía Salómonsdóttir nemurpíanóleik í Þýskalandi og hæfni hennarvarð lýðum ljós síðasta laugardag erhún lék til sigurs í Salnum. Guðrún Dalía er í stutth f aði að fá að læra á hljóðfæri og byrjaði níu ára í Tónmenntaskólanum hjá Steinunni Steindórsdóttur. Hún var frábær kennari og mjög hvetjandi,“ segir hún. Guðrún Dalía lýkur einnig lofsorði ádó Íslenskur iðnaður [ SÉRBLAÐ UM VIÐSKIPTI OG ATVINNULÍF– MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 ] BÆÐI ATVINNA OG ÁHUGAMÁL Rut Hallgrímsdóttir hefur rekið ljósmyndastofu í tæp 20 ár BLS. 2 ÖRFLÖGUR FYRIRALÞJÓÐAMARKAÐNimbleGen Systems á Íslandi framleiðir DNA- örflögur BLS. 4 STÓRIÐJUSKÓLINN ÍSTRAUMSVÍKHluti af lærdómsmenningu sem Alcan hefur þróað með sér í gegnum árinBLS. 6 TÆKNI OG VIT 2007Verður haldin í Fífunni í Smáranum í mars á næsta ári BLS. 8 GÓÐUR TÆKJAKOSTURHéraðsprent á Austurlandi BLS. 10 ÍSLENDINGARNÝJUNGAGJARNIRKaffitár er leiðandi í nýsköpun BLS. 12 EFNISYFIRLIT Lék til sigurs í Salnum Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri gagnrýnir heilbrigðisráðuneytið fyrir seina- gang við hönnun, útboð og byggingu nýs hjúkrunarheimilis í borginni. Hann segir að hjúkrunarheimilið í Mörkinni hafi verið í „endalausum viðræðum“ hjá ríki og borg og ekki sé enn búið að bjóða út verkið. Rúmlega fjögur ár eru liðin frá því að viljayfirlýsing um byggingu hjúkrunarheimilis í Mörkinni var undirrituð. „Það er ótækt út af fyrir sig hve seint og illa hefur gengið að undirbúa útboð þessa heimilis,“ segir borg- arstjóri. Engu máli skipti hvar hjúkrunarheimili verði byggt. Mestu skipti að það verði reist. Stefnt er að því að bjóða út jarð- vinnu vegna hjúkrunarheimilisins snemma á næsta ári og hefjast framkvæmdir í kjölfarið. Leifur Benediktsson, deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu, segir að hönn- un standi yfir og að henni ljúki fljótlega eftir áramót. Heimilið verði tekið í notkun árið 2008. Fyrirhugað hjúkrunarheimili verður tæplega átta þúsund fer- metrar að stærð og mun rúma hundrað og tíu heimilismenn. Byggingin verður á fjórum hæðum og hálfri betur. Leifur vill ekki gefa upp kostnaðartölu, segir fyrstu kostnaðaráætlun hafa verið of háa og hana verði að lækka. Segir seinaganginn ótækan Starfsmenn Ríkisút- varpsins óttast réttindamissi verði frumvarp um að gera Ríkisútvarp- ið að opinberu hlutafélagi að lögum óbreytt. Starfsmenn hafa lengi reynt að fá svör við því hvernig réttindi þeirra verða tryggð, án þess að fá svör. Starfsmenn segj- ast vera í algjörri óvissu um rétt- indamál sín og telja það illa með- ferð að fá ekki svör við því hvað fram undan sé. Þetta kemur fram í opnu bréfi sem trúnaðarmenn starfsmanna sendu Páli Magnús- syni útvarpsstjóra í gær. G. Pétur Matthíasson, frétta- maður og trúnaðarmaður starfs- manna RÚV, segir að starfsmenn séu að átta sig á að fram undan séu miklar breytingar. „Fólk sér líka að engin skýr tilmæli eru um það í frumvarpinu hvað tekur við. Það er algjörlega óljóst. Mér finnst að menn eigi að koma hreint fram við starfsmenn sem þeir ætla að ráða hér til starfa á ný.“ Í bréfinu segir að láglauna- stefna RÚV hafi gjarnan verið réttlætt með því að opinberir starfsmenn njóti betri réttinda en starfsmenn á almennum markaði og að nú líti út fyrir að þessi rétt- indi falli niður án bóta eða trygg- ingar að réttindin haldi sér. Páll Magnússon útvarpsstjóri segist ekki hafa umboð til að gefa yfirlýsingar um réttindamál starfsmanna fyrir félag sem ekki hefur verið stofnað og segir starfs- anda fyrirtækisins góðan. „En ég skil að fólk velti fyrir sér þessum breytingum. Það er eðlilegt að fólk sé uggandi um sinn hag en ég er sannfærður um að þetta verður leyst á farsælan hátt. Fólk ætti ekki að óttast þessar breytingar heldur frekar fagna þeim tæki- færum sem í þeim kunna að fel- ast.“ Spurð um réttindamál starfs- manna Ríkisútvarpsins segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra að málið sé til meðferðar hjá menntamála- nefnd sem muni fara yfir réttinda- mál starfsmanna. „Málið mun fá sinn eðlilega framgang en ætlunin er að sjálf- sögðu að réttindi starfsmanna Rík- isútvarpsins haldist.“ Starfsmenn RÚV óttast réttindamissi Starfsmenn Ríkisútvarpsins vilja að útvarpsstjóri skýri hvernig áunnin réttindi þeirra verði varin ef RÚV verður breytt í hlutafélag. Útvarpsstjóri segist ekki hafa umboð til þess. Ætlunin er að tryggja réttindi, segir menntamálaráðherra. Framleiða örflögur fyrir alþjóðamarkað FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is FORSALAN Á NÝJU JAMES BOND MYNDINA ER HAFIN Á MIDI.IS/BIO HEIMSFRUMSÝND EFTIR 2 DAGA! midi.is/bio Byssumenn, sem voru klæddir eins og lögreglumenn, rændu um fimmtíu starfsmönn- um og gestum af einni skrifstofu menntamálaráðuneytis Íraks í Bagdad í gær. Þremur gíslanna var sleppt ósködduðum nokkrum stundum eftir mannránið. Þetta er um- fangsmesta mannrán í Írak frá því að Bandaríkjamenn hernámu landið. Mannránið var hluti af mikilli öldu ofbeldis sem gekk yfir Írak í gær, en 82 menn létu lífið víðs vegar um landið. Ekki er vitað hver stóð að mannráninu, en lögreglustjóri í hverfinu þar sem ránið var framið var yfirheyrður í gær. Fimmtíu á valdi mannræningja Yfirvöld í menntaskólan- um Ion Mincu í Vaslui í Rúmeníu hafa gripið til þess ráðs að láta nemendur sem skrópa í tíma þrífa svínastíur. Er þetta gert af illri nauðsyn þar sem „engar aðrar aðgerðir virkuðu“, eins og skólastjórinn, Dan Magureanu, lét hafa eftir sér þegar aðgerðirnar voru kynntar. „Með þessu móti teljum við okkur geta gefið þeim sem ekki standa sig í skólanum skýr skilaboð um það hvernig framtíð blasir við þeim sem ekki mæta í skólann og gera skyldu sína.“ Þurfa að þrífa svínastíurnar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.