Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 98
The Guardian lætur líkur
leiða að því í frétt sinni í gær að
aukinn skilningur og vinskapur sé
að skapast á milli Eggerts Magn-
ússonar og Terry Brown, núver-
andi stjórnarformanni West Ham
og stærsta hluthafa félagsins.
Eggert mun hafa eytt síðastliðn-
um föstudegi að skoða aðstæður
félagsins, bæði á leikvangi þess
sem og æfingasvæði.
Eggert þykir nú líklegastur til
að eignast meirihluta hlutabréfa í
félaginu og gerast þar með stjórn-
arformaður West Ham. Viðræður
eiga sér stað og hefur hann fengið
að skoða bókhald félagsins. Sam-
kvæmt venju væri því að vænta
formlegu tilboði fyrir lok vikunn-
ar og félagið gæti þá formlega
skipt um eigendur í janúar næst-
komandi.
Íraninn Kia Joorabchian og
Ísraelinn Eli Papaouchado voru
nálægt því að festa kaup á félag-
inu í síðustu viku en fregnir þess
efnis að félagið fengi ekki að flytja
á nýjan Ólympíuleikvang sem
verið er að reisa í borginni mun
hafa slegið verulega á áhuga
þeirra.
Vinskapur að takast með Eggerti
og núverandi stjórnarformanni?
Ryan Giggs mun í kvöld
leika sinn 60. landsleik fyrir
Wales. Hann verður fyrirliði er
liðið mætir Liechtenstein í kvöld í
vináttulandsleik. Hann sagði af
þessu tilefni að hann hefði aldrei
búist við að spila jafn marga leiki
og hann hefur gert nú í haust.
Hann nyti fótboltans sem aldrei
fyrr.
Giggs er 32 ára gamall og hefur
allan sinn feril leikið með
Manchester United þar sem hann
er löngu orðinn goðsögn. Hann er
vitanlega ánægður með gott gengi
í úrvalsdeildinni og að eins og
stendur hafi þeir vinninginn í bar-
áttunni við Chelsea. „Maður verð-
ur að hafa sigurviljann að vopni.
Það veitir manni mikla ánægju að
geta veitt Chelsea alvöru sam-
keppni,“ sagði hann á blaðamanna-
fundi í vikunni. „Hvað leikmenn
varðar stöndum við Chelsea jafn-
fætis. En þeir hafa sýnt mikinn
stöðugleika síðastliðin tvö ár og
hafa hin liðin liðið fyrir það. Mun-
urinn nú liggur í því að við höfum
ekki gefið eins mikið eftir í upp-
hafi tímabilsins eins og við gerð-
um síðustu tvö árin. Vonandi höld-
um við áfram á sömu braut.“
Giggs segist vera ánægður
með það stóra hlutverk sem hann
hefur spilað með liðinu en hann
hefur verið einn besti leikmaður
liðsins það sem af er tímabili. „Ég
bjóst ekki við að spila svona
marga leiki en ég er enn þá nokk-
uð ferskur. Ég er vitanlega
reynslumeiri en margir aðrir leik-
menn liðsins og það er hlutverk
þeirra eldri að leiðbeina þeim
yngri, bæði í leikjum og á æfing-
um. Eini munurinn er að ég hleyp
ekki jafn hratt og ég gerði áður.
Maður verður því að velja sprett-
ina skynsamlega.“
Teddy Sheringham er níu árum
eldri en Giggs en er enn að skora
mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Giggs segir þó að hann muni ekki
vera enn að eftir níu ár. „Það er
ótrúlegt afrek að spila enn í deild-
inni 41 árs gamall. Ég sé ekki fyrir
mér að ég muni ná því.“
Nýtur fótboltans sem aldrei fyrr
Kjartan Daníelsson, for-
maður landsliðsnefndar kvenna,
sagði í samtali við Fréttablaðið
fyrir tveim vikum að landsliðs-
nefndin myndi „gera eitthvað“
vegna ójöfnuðarins í launagreiðsl-
um til handa landsliðum karla og
kvenna. Í gær sagði Kjartan
nefndina ekkert hafa gert en til
stæði að funda með stjórn knatt-
spyrnusambandsins.
„Það var fundur hjá okkur
skömmu áður en þetta meinta mál
kom upp en það er stjórnarfundur
seinna í vikunni og þar verða þessi
mál örugglega rædd,“ sagði Kjart-
an við Fréttablaðið í gær en hann
segist gjarnan vilja sjá hvetjandi
greiðslur til handa kvennalands-
liðinu en stelpurnar fá enga árang-
urstengda bónusa eins og staðan
er í dag.
Kjartan segist hafa verið í sam-
bandi við félaga sína í landsliðs-
nefndinni sem og Eggert Magnús-
son, formann KSÍ, og Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóra
KSÍ, og rætt málið við þá þótt
engir formlegir fundir hafi verið
haldnir.
Fréttablaðið skoðaði á dögun-
um greiðslur til handa landsliðs-
fólkinu okkar en hvaða greiðslur
fær landsliðsnefndarfólkið sem
fer með sem fararstjórar í keppn-
isferðir?
„Það er ekki mikið. Mig minnir
að það sé um 3.500 kr. á dag,“ sagði
Kjartan en tveir aðilar úr lands-
liðsnefndinni fara með í ferðirnar
og oftast er einn starfsmaður frá
KSÍ einnig með í för. Þessi greiðsla
er vissulega ekki há en hún er
hlutfallslega mun hærri en leik-
menn landsliðsins fá sem er að
jafnaði um 2.000 kr. á dag. Kjartan
segir að hlutverk landsliðsnefnd-
arfólksins sé margþætt.
„Það eru móttökur sem þarf að
mæta í og svo getur ýmislegt
komið upp á eins og meiðsli, vand-
ræði með hótel og annað. Annars
er það þannig að því minna sem er
að gera hjá okkur þeim betur
gengur ferðin,“ sagði Kjartan.
Stjórn KSÍ mun funda með landsliðsnefnd kvenna fyrir helgi. Kjartan Daní-
elsson, formaður landsliðsnefndarinnar, segir ekkert hafa verið gert í málinu
síðustu tvær vikur á meðan beðið hafi verið eftir fundinum.
Bónus-vinningur14milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
30
100
130
milljónir
1. vinningur
MILLJÓNIR
Á LAUSU!
Vertu me›fyrir kl.17
Potturinn stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 30 milljónir og bónusvinningurinn í 14 milljónir.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
5
5
2
Tvöfaldur
pottur2