Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 50
8 Sýningin Tækni og vit 2007 er ætluð þeim sem vilja kynna sér hvað þekk- ingariðnaðurinn hefur fram að færa. Sýningin er því áhugaverð fyrir alla þá sem starfa í hátækni- og þekk- ingariðnaði, fyrir stjórnendur og sérfræðinga í atvinnulífinu og einnig fyrir almenning sem hefur áhuga því nýjasta í tækniþróun. „Við höfum verið að kynna sýn- inguna í mánuð og fengið mjög góð viðbrögð,“ segir Margit Elva Ein- arsdóttir, framkvæmdastjóri Tækni og vits 2007. „Á þessum stutta tíma höfum við selt í um helminginn af sýningarsvæðinu en við veitum þeim tíu prósenta afslátt af fermetraverði sýningarrýmis sem skrá sig fyrir 24. nóvember. Þetta er fyrst og fremst fagsýning en við erum að reyna að víkka út sviðið og taka inn fleiri þætti í íslenskum iðnaði,“ segir Margit. Meðal þátttakenda á sýn- ingunni verða tölvu- og upplýsinga- tæknifyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, fyrirtæki í líf- og lyfjatækni og mörg öflugustu iðntæknifyrirtæki lands- ins. Að auki munu menntastofnan- ir, ráðgjafa- og fjármálafyrirtæki og ýmsar opinberar stofnanir koma að sýningunni. Einnig verður UT-dag- urinn haldinn í tenglsum við Tækni og vit 2007. Ráðstefna verður haldin í Salnum í Kópavogi þar sem meðal annars verður rætt um hvernig auka megi rafræna sjálfsafgreiðslu opin- berra stofnana. „Sýningin Tækni og vit 2007 gefur þannig fólki kost á að kynn- ast íslenskum hátækniiðnaði og þeim geira sem í kringum hann er,“ segir Margit. „Sýningin verður mjög fjölbreytt, enda eru þátttakendur af mjög breiðu sviði.“ Nánari upplýsingar um Tækni og vit 2007 má finna á www.taekniog- vit.is. Tækni og vit 2007 Sýningin Tækni og vit 2007 verður haldin í Fífunni í Smáranum 8. til 11. mars á næsta ári. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar og þjónustu sem í boði er í hátækni- og þekkingariðnaði og þau tækifæri sem eru til varðandi aðstöðu, fjármögnun og þjónustu. Óhætt er að fullyrða að vinnsla á járni úr jörðu hafi verið þróað- asta náttúrunám á Íslandi á mið- öldum. Járnið var unnið úr mýra- rauða en sú aðferð var algeng í Noregi fyrir landnám Íslands og líklegt að aðferðin hafi flust með norskum landnámsmönnum hingað til lands. Aðferðin, sem notuð var við járngerðina, var kölluð rauðablástur og byggðist á því að bræða járnið úr mýra- rauða yfir viðarkolaglóð í þar til gerðum ofni. Á þjóðveldisöld er líklegt að mestallt járn, sem notað var til framleiðslu á ýmsum nytjahlut- um, hafi verið unnið hér á landi og má því til stuðnings benda á að engar heimildir eru til um innflutning á smíðajárni á þeim tíma. Járngerð á Íslandi, rauða- blástur, lagðist af um 1500 þegar vinnsla járngrýtis hófst á Norðurlöndum. Í kjölfar þess hófst innflutningur á svokölluðu Ásmundarjárn en þó er líklegt að vinnsla járns úr mýrarauða hafi tíðkast eitthvað eftir 1500 þar sem slík þekking leggst ekki af á einni nóttu. Fyrsti Íslendingurinn, sem ber starfsheitið járnsmiður í ritaðri heimild, er landnámsmaðurinn Ljótólfur og má því segja að hann sé fyrsti járniðnaðarmað- urinn sem sögur fara af. Járn úr mýrarauða { Íslenskur iðnaður }
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.