Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 30
Dagur íslenskrar tungu hefur nú fest sig í sessi og er hald- inn hátíðlegur í tíunda sinn á fæðingardegi Jónasar Hall- grímssonar, 16. nóvember. Námsgagnastofnun efnir í ár til nýyrðasamkeppni í grunnskól- um landsins. „Málræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum kom með hugmynd að þessari sam- keppni. Hugmyndin er að virkja börn og unglinga til að smíða ný orð úr orðum og orðrótum sem fyrir eru til í málinu,“ segir Jón Guð- mundsson hjá Námsgagnastofnun. Á vef stofnunarinnar er hluti sem nefnist Í dagins önn. Þar er tekið fyrir námsefni sem tengist líðandi stund og þar þótti tilvalið að móta efni í tilefni dagsins. Vegg- spjaldi með upplýsingum um sam- keppnina hefur verið dreift í alla grunnskóla og Jón segir viðbrögð kennara hafa verið gífurleg. „Við hlökkum mjög til að fá tillögurnar en viðbrögðin hafa verið slík að núna óttast ég mest að vera fram á vor að fara yfir tillögur,“ segir Jón hlæjandi. Íslendingar hafa löngum verið uppteknir af málvernd og þjóðin hefur verið dugleg við að finna nýyrði í gegnum tíðina. Slangur og erlend tökuorð hafa þó alltaf verið til staðar og sum orð er einfaldara að íslenska en önnur. Ensku orðin sem um er rætt eru casual, cross- over, date, fusion, nick, outlet, skate, surf, trendsetter, wannabe. „Með því að bjóða börnum og ungl- ingum að taka þátt í að móta tungu- málið held ég að þau verði meðvit- aðri um möguleika íslenskunnar og líti svo á að þeirra skoðun skipti máli,“ segir Jón og bætir við. „Ég held það höfði mjög til krakkanna að vita til þess að orð sem þau búa til gætu jafnvel orðið hluti af tungu- málinu og endað í orðabókum þegar fram líða stundir.“ Almenningi er líka velkomið að taka þátt og Jón hlakkar til að sjá hvort samkeppnin stuðli að nýyrð- um sem eiga eftir að festa sig í sessi í tungumálinu. Frestur renn- ur út 27.nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar eru á www. menntamalaraduneyti.is og www. nams.is Íslendingar hafa verið hvattir til að draga íslenska fánann að húni á degi íslenskrar tungu. Nýyrði óskast Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) eru sjálfboðaliða- og fræðslusamtök sem gefur ungu fólki tækifæri á að kynnast menningu og samfélagi ann- arra þjóða. Í ár fagna samtök- in 45 afmæli og bjóða því til veislu á laugardagskvöld. Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) voru stofnuð árið 1961 og hafa starfað óslitið síðan. Á þeim árum hafa meira en þúsund sjálfboða- liðar farið út á vegum AUS á Íslandi og nær 850 sjálfboðaliðar komið hingað til lands. „Markmið AUS er að stuðla að þroska ungs fólks til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir ein- staklingar í samfélaginu,“ segir Kjartan Due Nielssen, formaður samtakanna. „Fordómar og hleypidómar eru því miður ansi víða. Með því að bjóða erlenda gesti velkomna til Íslands og senda ungt íslenskt fólk til að skoða heiminn trúum við því að það stuðli að opnari samfélagi og betri heimi.“ AUS eru frjáls félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónar- miða og að stærstum hluta í sjálf- boðavinnu. „Slagorð AUS er „viltu gera meira en að ferðast?“ Með því reynum við að höfða til ung- menna sem vilja sjá heiminn og láta gott af sér leiða samtímis,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, fram- kvæmdastjóri AUS. Tvenns konar verkefni í gangi í AUS, annars vegar innan Evrópu og eru styrkt af Evrópusamband- inu þar sem ungt fólk tekur þátt í sjálfboðaliðastarfi og hins vegar utan Evrópu. Síðastliðin ár hefur verið langvinsælast að fara til Mið- og Suður-Ameríku þar sem margir hafa áhuga á spænsku um þessar mundir. Anna segir einnig vinsælt að sækja um til Afríku og það eru alltaf einhverjir sem vilja fara til Asíu. „Við erum einnig með verkefni hér á landi fyrir erlenda sjálfboðaliða og það kemur oft fólki á óvart að erlendir sjálfboðaliðar vilji koma hingað í 6-12 mánuði.“ Samtökin taka á móti 32 sjálfboðaliðum frá 22 löndum í ár og segir Kjartan að AUS sé með um 30 virka meðlimi hér á landi sem taka þátt í því félagslífi sem AUS býður upp á. „Við hittumst reglulega á kaffi- húsum, spilum fótbolta, ferðumst saman og höldum utan um hóp þeirra erlendu sjálfboðaliða sem eru hér á landi,“ segir Kjartan. Á laugardaginn halda samtökin upp á 45 ára afmælið sem Landsbank- inn og Ó. Johnson og Kaaber styrkja í sal Rúgbrauðsgerðarinn- ar í Borgartúni 6. Veislan hefst klukkan 20.00 og eru allir vel- komnir en gott er að láta vita á www.aus.is. Haldið upp á afmæli AUS Reiki Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK Kvöld- og helgarnámskeið í boði, næstu námskeið eru: I. stig kvöldnámskeið 20. – 22. nóvember. II. stig kvöldnámskeið 27. –29. nóvember. FYRIR BÆTTA LÍÐAN OG BETRI STJÓRN Á LÍFI ÞÍNU Pantanir í síma 553 3934, milli kl. 10 og 13 virka daga. Guðrún Óladóttir reikimeistari Þeir sem hafa áhuga á framhaldsnám- skeiði í sjálfsstyrkingu hafi samband. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.